Öldrun - 01.02.2001, Page 13
13ÖLDRUN – 19. ÁRG. 1. TBL. 2001
uði. Oft er þörf á samræmingu á
þjónustu eins og þegar fólk fer á
dagspítala.
8. Sjúkraþjálfun. Fyrir inn-
lögn voru 6 í sjúkraþjálfun. Við
útskrift var áætluð áframhald-
andi sjúkraþjálfun fyrir 31 (42%).
Af þeim fengu 16 sjúkraþjálfun á
dagspítala, 8 í heimahúsi, 4 á
einkastofu og 3 á göngudeild.
Við 4 vikur voru 22 byrjaðir í
sjúkraþjálfun en 15 voru í sjúkra-
þjálfun við 5 mánuði. Framboð á
sjúkraþjálfun í heimahúsi hefur
aukist. Á dagvistunarstofnunum
er ekki boðið upp á sjúkra-
þjálfun.
9. Hjálpartæki. Hjálpartæki
eru mikið notuð. Af þeim 74 sem
tóku þátt í könnuninni notuðu 52
eitt eða fleiri hjálpartæki fyrir
innlögn en 66 (89%) við útskrift.
Þeir sem notuðu gönguhjálpar-
tæki voru 44 og 19 voru með
öryggishnapp fyrir innlögn.Við
útskrift voru pöntuð gönguhjálp-
artæki fyrir 28 og öryggis-
hnappur fyrir 17. Alls notuðu 56
(76%) einhverskonar göng-
uhjálpartæki við útskrift og 36
(49%) voru með öryggis-
hnapp.Við útskrift höfðu verið
pöntuð 205 hjálpartæki. Pöntað
var allt frá 1 - 8 tæki / einstak-
ling. Alls voru 31 (15%) ýmist
ekki notuð, ekki sett upp eða
aldrei sótt. Þegar litið er á til-
lögur um breytingar í heimilisat-
hugun er misjafnt hversu vel er
farið eftir þeim.
10. Félagsstarf aldraðra.
Fimmtán einstaklingar (20%)
sóttu félagsstarf aldraðra fyrir
innlögn. Við útskrift ætluðu 7
(9%) að taka þátt í starfinu. Eftir
4 vikur sóttu það 2 en 6 eftir 5
mánuði.
11. Skammtímainnlögn.
Áætluð skammtímainnlögn fyrir
10 (14%) við útskrift. Eftir 4
vikur hafði 1 einstaklingur verið
í skammtímainnlögn og 7 við 5
mánuði .
12. Vistunarmat. Alls áttu
36 (49%) sjúklingar vistunarmat
við útskrift. Sótt var um hjúkrun-
arrými fyrir 20 og um þjónust-
Mynd 1.
Mynd 2.
Mynd 3.
Áætlun við útskrift
Prósentuhlutfall þátttakenda (n=74)
Heimahjúkrun –
meðaltalsfjöld innlita á viku
Heimahjúkrun 5 mánuðum frá útskrift
miðað við áætlun (n=48)
Heimilishjálp – fjöldi stunda á viku við
útskrift og eftir 4 vikur
Heimilishjálp – 5 mánuðum frá
útskrift miðað við áætlun