Öldrun - 01.02.2001, Síða 24
24 ÖLDRUN – 19. ÁRG. 1. TBL. 2001
Fjórðungssjúkrahúsið á Ísafirði er hluti af Heilbrigð-isstofnuninni Ísafjarðarbæ, sem varð til við sam-
runa heilbrigðisstofnana á norðanverðum Vest-
fjörðum. Sjúkrahúsið sinnir bráðaþjónustu á starfs-
svæði sínu, sem nær frá Arnarfirði og inn Djúp. Aðrir
stórir þættir í starfseminni eru almenn handlæknis-
þjónusta, almennar lyflækningar, fæðingarhjálp, endur-
hæfing og öldrunarlækningar.
Á endurhæfingardeild FSÍ starfa nú fjórir sjúkra-
þjálfarar. Deildin býr við ágæta aðstöðu, og er ágætlega
tækjum búin. Haustið 1997 réðst öldrunarlæknir til
starfa við FSÍ, og í kjölfar þess voru skoðaðir mögu-
leikar á því að koma upp endurhæfingarmeðferð fyrir
aldraða á stofnuninni. Eftir nokkra undirbúningsvinnu,
var farið af stað í janúar 1998, og fyrstu sjúklingarnir
innritaðir.
Prógrammið sem stuðst er við er að mestu byggt á
reynslu Ólafs Þórs við þjálfun og endurhæfingu aldr-
aðra, en styðst einnig við aðra þætti sem eru þekktir í
endurhæfingu aldraðra. Sjúklingarnir eru “keyrðir”
nokkuð hart, en reynslan hefur sýnt að þannig næst
bestur árangur. Til að þetta sé hægt eru allir mældir
nákvæmlega í upphafi, og í kjölfarið sniðið prógramm
sem hentar hverjum einstaklingi.
Starfsemi Endurhæfingardeildar
FSÍ á Ísafirði
Fyrstu tveir dagarnir af 4 vikna prógrammi fara
venjulega í mælingar og prófanir, og síðan er hafist
handa. Áður hafa sjúklingarnir í langflestum tilfellum
verið metnir af öldrunarlækni, til að meta hæfni þeirra
til að taka þátt í slíku prógrammi yfirleitt.
Sjúklingarnir eru í æfingum að jafnaði 2-3 tíma á
dag í sal, og auk þess er vinnustofa þar sem boðið er
upp á margskonar handavinnu, og ætlast til að þátttak-
endur mæti. Prógrammið er blanda af styrktar og
úthaldsæfingum, en auk þess er boðið upp á sérhæfð-
ari æfingar eftir því sem við á hverju sinni. Þannig eru
mismunandi áherslur hjá einstaklingum með lungna-
sjúkdóma og þeim sem eru aðallega með slitgigt,
o.s.frv. Endurhæfingarteymið, sem samanstendur af
lækni, sjúkraþjálfara, hjúkrunarfræðingi á sjúkrahús-
inu, hjúkrunarfræðingi heimahjúkrunar og starfs-
manni vinnustofu, hittist vikulega þar sem farið er yfir
framgang einstakra sjúklinga og framhaldið ákveðið. Á
teymisfundum eru einnig tekin fyrir mál annarra sjúk-
linga sem gætu komið til greina í prógrammið, og tekn-
ar ákvarðanir um samsetningu næstu hópa.
Frá upphafi hafa nú rúmlega 90 manns komið til
endurhæfingar, en komurnar eru nú ríflega eitthund-
rað. Meðallegutíminn hefur verið réttur mánuður, og
Ólafur Þór Gunnarsson
Lyf-og öldrunarlæknir
Sigurveig Gunnarsdóttir
Yfirsjúkraþjálfari