Öldrun - 01.05.2004, Blaðsíða 4

Öldrun - 01.05.2004, Blaðsíða 4
4 www.oldrun.net ÖLDRUN – 22. árg. 1. tbl. 2004 Cíceró ritaði sitt víðfræga rit Um ellina handa vini sínum á sjötugs aldri. Ritið glímir við nokkrar fullyrðingar um ellina og Cíceró svarar þeim með bjartsýni og tengir við hamingjuna. Ellin getur verið jafn hamingjuríkt skeið og hvert annað. Hér verður fjallað um hamingjuna og rök færð fyrir því að sennilega eigi hún helst heima hjá elstu kynslóðinni. I. Orðin og gátan Einu sinni skrifaði ég grein í Morgunblaðið um elstu kynslóðina í landinu og notaði orðin gamall, gömul og gamla fólkið. Stuttu síðar fékk ég þá gagnrýni hjá fræðimanni að orðin væru niðurlægjandi fyrir þessa kynslóð, ég hefði átt að notað orðið aldraðir. Þetta kom mér í opna skjöldu, því mér fannst felast virðing í þessum orðum og þannig áttu þau að virka. Orðið aldraður merkir gamall, svo að það er tíðarandinn sem gefur orðunum virðingu. Elli er einnig alþekkt orð yfir það að vera orðinn gamall. Það er sama hvaða orð verða notuð í þessari grein um ellina, þau eiga öll að fela í sér virðingu. Ungur heyrði ég gátu: Hvað er það sem allir vilja verða en enginn vill vera? Svarið fannst mér athyglis- vert: Gamall. Marcús Túllíus Cícero orðar þetta keim- líkt í bók sinni Um ellina sem fyrst kom út í Rómaborg 44 árum fyrir kristið tímatal, og ef til vill er gátan samin upp úr orðum hans: „Ellina sem allir þrá að höndla, en fárast svo yfir þegar hennar verður vart” (1). II. Ellin og hamingjan Ég hef alltaf tengt saman elli og hamingju, og skrifaði í heimspekirit sem ég gaf út: „Hámark hamingjunnar er svo að vera öldungur í ruggustól og líta í rólegheitunum yfir farinn veg. Sál hans er feit eins og selur og spikið er hamur hans og hús. Hann sér líf sitt sem sögu, sögu sem er um eitthvað og að lokum grunar hann um hvað sagan er. Öldungur sem rær í hamingjuspikinu og lifir ævilokin” (2). Kenningin sem ég setti fram er byggð á kenningu Aristótelesar um hamingjuna í Siðfræði Nikómakkosar (3). Kenningin er spunnin út frá spurningunni um hvaða líferni er eftirsóknarverðast? Svarið er: Það líf- erni sem leiðir til hamingju. En hvers vegna hamingja? Því ef við erum hamingjusöm, þurfum við ekki á neinu öðru að halda. Hamingjan er fullnægjandi, aðeins þarf að keppa að henni, og allir stefna leynt eða ljóst að hamingju. Að njóta þess sem liðið er Gunnar Hersveinn heimspekingur og blaðamaður á Morgunblaðinu

x

Öldrun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Öldrun
https://timarit.is/publication/1137

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.