Öldrun - 01.05.2004, Síða 8

Öldrun - 01.05.2004, Síða 8
8 www.oldrun.net ÖLDRUN – 22. árg. 1. tbl. 2004 Inngangur Margt hefur verið rætt og ritað um þunglyndi á undanförnum árum. Efnið er orðið nokkuð vinsælt í fjölmiðlum, fólk kemur í sjónvarpið og segir lífs- reynslusögur sínar og blöð og tímarit fjalla oft um þetta efni. Á veggjum heilbrigðisstofnana má sjá spjöld þar sem athygli gesta og gangandi er vakin á sjúkdómnum. Á þessum spjöldum eru gjarnan litmyndir af fólki með mikinn angistarsvip eða hamingjusvip og áletranirnar með stríðsfréttaletri. Í jólabókaflóði undanfarinna ára má finna bækur sem að meira eða minna leyti eru helgaðar þessum sjúkdómi. Það er því ekki að undra þótt hinn almenni borgari sé orðinn all vel heima í greiningu og eðli þessa sjúkdóms og er það vel. Við þessa miklu umræðu virðist hugtakið „þunglyndi“ vera orðið eilítið óskýrara en það var og orðið virðist að einhverju leyti vera að fá viðbótarmerkingu sem er nær því sem hingað til hefur verið kallað „lífsleiði“ og núorðið heyrist orðið „þunglyndi“ einstaka sinnum notað sem lýsingarorð og nær þá yfir eitthvað sem er leiðinlegt eða óheppilegt. Undanfarin 10-15 ár hefur sjúkdómurinn verið rannsakaður í vaxandi mæli. Fjöldi útgefinna greina um þunglyndi aldraðra á ári hefur sexfaldast á undan- förnum 20 árum, á árinu 1984 voru þær rúmlega 50, en árið 2002 voru yfir 300 greinar um þunglyndi aldraðra birtar. Það er þess vegna hægt að slá því föstu að þekking á þunglyndi aldraðs fólks hefur aukist mikið á síðustu árum. Í þessari grein verður reynt að taka saman helstu atriði um þunglyndi aldraðra sem sannprófuð hafa verið með rannsóknum á sjúkdómnum. Hér er um að ræða niðurstöður rannsókna sem að bestu manna yfirsýn eru mjög áreiðanlegar, þ. e. a. s. rannsóknaraðferðin stenst ströngustu kröfur og niðurstöður staðfestar af fleiri en einni slíkri rannsókn. Hvað er þunglyndi? Meðal lækna er víðtækt samkomulag um hvernig setja skal greininguna þunglyndi. Í alþjóða sjúkdóms- greiningalistanum (1) eru talin upp þau einkenni sem til þarf. Einkennunum er skipt í tvo flokka, höfuðeinkenni og almenn einkenni. Höfuðeinkenni: 1. Stöðugt „langt niðri“ í a. m. k. tvær vikur 2. Minnkaður áhugi eða ánægja við venjubundnar athafnir 3. Aukin þreyta og minnkuð orka Almenn einkenni: 1. Minnkað sjálfsöryggi eða léleg sjálfsmynd 2. Aukin sektarkennd 3. Endurteknar hugsanir um dauða; sjálfsvígs- hugmyndir eða hegðun sem bendir til slíkra hugmynda 4. Minnkuð hæfni til einbeitingar 5. Tregða í hreyfingum 6. Svefntruflanir 7. Breytingar á matarlyst og tilsvarandi breyting á líkamsþyngd Nokkrar staðreyndir um þunglyndi hjá öldruðum Hallgrímur Magnússon geðlæknir, öldrunarsviði LSH

x

Öldrun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Öldrun
https://timarit.is/publication/1137

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.