Öldrun - 01.05.2004, Blaðsíða 14

Öldrun - 01.05.2004, Blaðsíða 14
14 www.oldrun.net ÖLDRUN – 22. árg. 1. tbl. 2004 Samspil heilabilunar og þunglyndis Þó að vitræn skerðing í ýmsu formi sé megin- einkenni heilabilunar þá eru önnur einkenni og heil- kenni oft fylgikvillar sjúkdómsins. Dæmi um þessa fylgikvilla eru kvíði, þunglyndi, ranghugmyndir, of- skynjanir og margs konar hegðunarvandamál (American Psychiatric Association, 1994). Sá fylgikvilli sem hlotið hefur mesta athygli er þunglyndi, en sambandið á milli heilabilunar og þunglyndis er oft mjög flókið. Tilraunir til að aðgreina þessa tvo sjúkdóma með taugasálfræðilegum og taugalífeðlis- fræðilegum mælingum hafa að mestu leyti verið árangurslitlar (Teri og Wagner, 1992). Vandamálin við aðgreininguna eru eftirfarandi: Þunglyndi eitt og sér getur haft í för með sér einhverja vitræna skerðingu og þannig líkt eftir einkennum heilabilunar. Til dæmis kvartar fólk með alvarlegt þunglyndi oft undan minniserfiðleikum og að eiga erfitt með að hugsa og einbeita sér. Slíkir erfiðleikar koma einnig fram á taugasálfræðilegum prófum. Oft er vísað til þess konar þunglyndis sem afturkallanlegrar heilabilunar eða gerviheilabilunar (pseudodementia) vegna þess að einkenni vitrænnar skerðingar hverfa þegar þunglyndið hefur verið meðhöndlað. Heilabilun ein og sér getur einnig falið í sér ýmsar breytingar á svefni, matarlyst, hreyfigetu, hugrænum þáttum og framtakssemi og þannig líkt eftir mörgum aðaleinkennum þunglyndis. Þannig er ljóst að mörg einkenni þunglyndis og heila- bilunar skarast sem gerir sundurgreiningu á þessum tveimur sjúkdómum oft erfiða. Þetta málefni flækist enn frekar við það að þunglyndi getur að einhverju leyti verið einn af áhættuþáttunum fyrir heilabilun þar sem rannsóknir hafa sýnt fram á að einstaklingar sem þjást af þunglyndi eiga það frekar á hættu að þróa með sér Alzheimers-sjúkdóm (Devanand o.fl., 1996). Orsakir þunglyndis hjá sjúklingum með heilabilun Árið 1989 var fyrst farið að leggja áherslu í rannsóknum á þunglyndi sem kemur í kjölfar heila- bilunar. Það var bent á að þó að mikilvægt sé að greina á milli þessara tveggja sjúkdóma þarf að hafa í huga að sami einstaklingurinn getur þjáðst af báðum sjúk- dómum á sama tíma (Reifler o.fl., 1989). Miklar vanga- veltur hafa verið um það hvað orsaki þunglyndi hjá þeim sem þjást af heilabilun. Sumir halda því fram að þunglyndi brjótist fram vegna þess að eitthvað við sjúkdóminn heilabilun hrindi af stað birtingu gene- tískrar næmni til að þróa með sér þunglyndi. Það sem styður þessa kenningu er að þunglyndi er mun algengara hjá þeim Alzheimers-sjúklingum sem hafa fjölskyldusögu um þunglyndi en hjá þeim sem ekki hafa slíka sögu (Strauss og Ogrocki, 1996). Önnur kenning, sem mönnum þykir líklegri er sú að þunglyndi hjá sjúklingum með heilabilun sé tilfinningalegt viðbragð við hugrænni hnignun og minni almennri virkni (Teri og Wagner, 1992). Stuðningur við þessa kenningu er sá að það er ekki bein fylgni á milli framgangs heilabilunar og þunglyndis. Þannig virðist vera að þunglyndi sé algengast á vægari stigum heilabilunar þegar fólk hefur meiri innsýn inn í þá vitrænu skerðingu sem er að eiga sér stað (Fitz og Teri, 1994; Forsell og Winblad, 1998). Engin meðvitund eða innsýn í vitræna skerðingu (anosognosia) virðist vera nokkurs konar hlífðar- skjöldur sem kemur í veg fyrir að fólk upplifi þunglyndi. Í rannsókn Starkstein o.fl. (1997) kom fram að „anosognosia“ jókst og þunglyndi minnkaði eftir því sem vitræn skerðing Alzheimers-sjúklinga varð meiri. Þunglyndi meðal þeirra sem þjást af heilabilun Erla S. Grétarsdóttir er að ljúka doktorsprófi í klínískri öldrunarsálfræði

x

Öldrun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Öldrun
https://timarit.is/publication/1137

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.