Öldrun - 01.05.2004, Side 12

Öldrun - 01.05.2004, Side 12
12 www.oldrun.net ÖLDRUN – 22. árg. 1. tbl. 2004 Grikkir til forna lögðu rækt við líkamlega hreysti og töldu heilbrigði vera heilbrigða sál í hraustum líkama. Sterk tengsl eru enda þekkt milli sálar og líkama, sem birtist á ýmsan hátt svo sem í göngulagi og hreyfingu fólks. Áhrif líkama á sál eru ekki síður mikil en áhrif sálar á líkama. Lífsgæði felast í því að verða, vera og tilheyra og þó aðhreyfigeta sé ekki nauðsynleg forsenda fyrir lífsgæðum, þá aukast þau með fullri hreyfigetu. Sýnt hefur verið fram á í fjölda rannsókna að reglubundin áreynsla og þjálfun gegnir lykilhlutverki í forvörn gegn ótímabærri færniskerðingu á efri árum og til þess að draga úr áhrifum langvinnra sjúkdóma. Þannig má efla alla hreystieiginleikana, vöðvastyrk, þol, jafnvægi og snerpu. Þeir, sem þurfa helst að bæta sig til að mæta athöfnum daglegs lífs geta náð árangri með mun minni þjálfun en áður var talið, að því tilskyldu að tegund þjálfunar, þjálfunartími og álag sé einstaklingsmiðað og taki mið af þörfum hvers og eins. Reglubundin þjálfun í formi daglegrar hreyfingar, til dæmis göngu, þarf að vera að minnsta kosti samanlagt 30 mínútur á dag og ekkert mælir gegn því að þjálfa í lotum. Lengri eða álagsmeiri þjálfun gefur þó meiri árangur. Hafa ber hugfast að sígandi lukka er best í stignun og hlutfallslega er betra að auka þyngd æfinga en hraða þeirra. Alhliða þjálfun þar sem reynir á þol, snerpu og jafnvægi til skiptis er æskilegust. Aldraðir kjósa oft fremur hreyfiþjálfun með félagslegu ívafi. Gönguhópar með sjálfskipaðan leiðtoga, með eða án göngustafa, hafa gefist vel. Kaffisopi að lokum verður eins og rúsína í pylsuenda og virkar félagslega hvetj- andi til hreyfingar. Þolþjálfun eykur súrefnisflutning um allan líkamann, einnig til heilans, og hefur það jákvæð áhrif á athygli, einbeitingu og minni í framhaldinu. Það er aldrei of seint að hefja líkamsþjálfun til alhliða heilsubótar og ánægju. Reglubundin styrktar- og þolþjálfun er mikilvæg í meðferð á þunglyndi og hefur einkar góð áhrif á vægt þunglyndi og getur dugað þar ein og sér og er án aukaverkana. Áhugaverðar greinar Blumenthal, J.A., Babyak, M.A., Moore, K.A., Craighead, W.E., Herman, S., Khatri, P., Waugh, R., Napolitano, M.A., Foreman, L.M., Applebaum, M., Doraiswamy, P.M., og Krishnan, K.R. (1999). Effects of exercise training on older patients with major depression. Archives of Internal Medicine, 159, 2349-2356. Clarkson-Smith, L. (1989). Relationships between physical exercise and cognitive abilities in older adults. Psychology and Aging, 4, 183-189. Kramer, A.F., Hahn, S., Cohen, N.J., Banich, M.T., McAuley, E., Harrison, C.R., Chason, J., Vakil, E., Bardell, L., Boileau, R.A., og Colombe, A. (1999). Ageing, fitness and neurocognitive function. Nature, 400 (6743), 418-419. Singh, N.A., Clements, K.M., Singh, M.A. (2001). The efficiacy of exercise as a long-term antidepressant in elderly subjects: a randomized, controlled trial. Journals of Gerontology, Series A, Biol Sci Med Sci, 56, M497-504. Hreyfing viðheldur sál og líkama Þórunn B. Björnsdóttir sjúkraþjálfari, öldrunarsviði LSH

x

Öldrun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Öldrun
https://timarit.is/publication/1137

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.