Öldrun - 01.05.2004, Blaðsíða 9
9ÖLDRUN – 22. árg. 1. tbl. 2004 www.oldrun.net
Greiningin er sett á eftirfarandi hátt:
Vægt þunglyndi: A. m. k. tvö höfuðeinkenni og
fjögur almenn einkenni
Þunglyndi: A. m. k. tvö höfuðeinkenni og sex
almenn einkenni
Alvarlegt þunglyndi: Öll þrjú höfuðeinkennin og a.
m. k. fimm almenn einkenni
Alvarlegt þunglyndi hjá öldruðum er í öllum
aðalatriðum sams konar sjúkdómur og hjá yngra fólki,
en vægari gerðir eru hjá öldruðum að sumu leyti
frábrugðnar því sem algengast er á miðjum aldri. Hér er
helst um að ræða eftirtalin atriði.
1. Aldraðir eru sjaldnar „langt niðri“ en yngri hópar
(2)
2. Kvartanir um líkamleg einkenni án vefrænna
sjúkdóma eru algengari hjá öldruðum (2)
3. Skerðing á vitrænni starfsemi getur verið fylgi-
fiskur þunglyndis hjá öldruðum og getur við
alvarlegt þunglyndi verið svo mikil að það líkist
heilabilun (3)
4. Kvíði er algengur. Allt að helmingur aldraðra
með þunglyndi þjáist einnig af kvíða (4)
Afleiðingar þunglyndis
Þunglyndi hefur miklar afleiðingar fyrir sjúklinginn
sjálfan og nánasta umhverfi hans. Afleiðingarnar fyrir
þjóðfélagið eru einnig verulegar. Þessar eru helstar:
1. Þunglyndi hjá öldruðum er einn af þeim átta
sjúkdómum sem valda mestri fötlun (2)
2. Þunglyndi aldraðra leiðir oft til ónauðsynlegra
innlagna (5)
3. Þunglyndi er stærsti áhættuþátturinn fyrir
sjálfsvígum aldraðs fólks (2)
4. Þunglyndi aldraðra eykur á fötlun vegna
líkamlegra sjúkdóma (6)
5. Þunglyndi aldraðra leiðir til lengri dvalartíma á
sjúkrahúsum (2)
6. Þunglyndi aldraðra eykur á erfiðleika aldraðra til
að taka lyfin sín rétt (2)
7. Þunglyndi aldraðra dregur verulega úr
lífsgæðum (2)
8. Þunglyndi eitt og sér minnkar lífslíkur fólks (2)
Algengi þunglyndis aldraðra
Rannsóknir frá Evrópu og Norður-Ameríku benda
sterklega til að á hverjum tíma sé milli 8% og 15%
aldraðra með þunglyndi. Hér er verið að tala um allar
gerðir þunglyndis, bæði alvarlegt og vægt og allt þar á
milli. Í Evrópu var þessi tala 12.3% (7). Svo virðist sem
algengi (fjöldi með þunglyndi á hverjum tíma) sé svipað
í öllum þjóðfélögum og hjá öllum kynþáttum (7).
Milli 17% og 30% aldraðra sem leita heimilislæknis
hafa veruleg þunglyndiseinkenni (2).
Á sjúkrahúsum er algengi þunglyndis hjá öldruðum
hærra en í þjóðfélaginu almennt. Í flestum rannsóknum
eru 10%-45% aldraðra sem innlagðir eru á sjúkrahús
með þunglyndi (2). Á hjúkrunarheimilum er talan enn
hærri. Þar eru milli 30% og 45% vistmanna með sjúk-
dóminn (2). Ekki er vitað með vissu hvort þunglyndi er
algengara hjá öldruðum en hjá þeim sem yngri eru.
Rannsóknum ber ekki saman um þetta, sumar sýna
óbreytta tíðni, aðrar hærri tíðni hjá öldruðum og til eru
þær rannsóknir sem benda til lægri tíðni þunglyndis hjá
öldruðum en hjá yngra fólki.
Orsakir og áhættuþættir
Erfðaþættir hafa mun minni þýðingu við þunglyndi
aldraðra en hjá yngra fólki (8). Ýmsir þættir hafa áhrif á
líkur þess að einstaklingurinn fái þunglyndi. Þessir eru
helstir:
1. Fólk með svefntruflanir er líklegra en aðrir til að
fá þunglyndi (9)
2. Fólk með fötlun vegna líkamlegra sjúkdóma er
líklegra en aðrir til að fá þunglyndi (9)
3. Konur eru líklegri til að fá þunglyndi en karlar.
Þessi munur helst fram á efri ár þótt grunur sé
um að hann minnki með aldrinum (2)
4. Sterk tengsl eru milli líkamlegra sjúkdóma og
þunglyndis(8)
5. Ýmiss konar áföll geta komið þunglyndi af stað
(8). Meðal þeirra er sorg, skilnaður, bráð og
alvarleg líkamleg veikindi, miklar fjárhags-
kröggur
6. Vitað er að ýmis lyf geta valdið aukaverkunum
sem minna mjög á þunglyndi
Stundum er hægt að ráða bót á sumum þessara
áhættuþátta svo sem svefntruflunum og óheppilegri
lyfjagjöf.
Greining þunglyndis
Skimun eftir þunglyndi hjá öldruðum er oft gerð
með spurningalistum. Þá eru lagðir fyrir spurninga-
listar sem gefa til kynna hvort líklegt sé að viðkomandi
einstaklingur þjáist af þunglyndi eða ekki. Slíkir
spurningalistar eru ekki nothæfir til greininga heldur
gefa aðeins vísbendingu um mögulega greiningu (10).
Sá spurningalisti sem mest er notaður í þessu sambandi
nefnist GDS (Geriatric Depression Scale). Hann var
búinn til árið 1983 (11). Listinn hefur komið út í
mörgum útgáfum síðan og verið þýddur á fjölmörg
tungumál. Hann hefur verið þýddur á íslensku og er