Öldrun - 01.05.2004, Blaðsíða 20

Öldrun - 01.05.2004, Blaðsíða 20
20 www.oldrun.net ÖLDRUN – 22. árg. 1. tbl. 2004 Ellin hefur ekki eingöngu í för með sér líkamlega hrörnun og öldrunar- sjúkdóma. Andleg afturför og geðrænir sjúkdómar eru kannski ekki eins áberandi, en örugglega jafn alvarlegir. Í greininni verður sagt frá meðferðar- vinnu sem hófst í Seljahlíð árið 2000. Sama ár var gerð tilraun með hópvinnu/meðferð og einstaklingsviðtöl. Hér verður fjallað um hópvinnuna. Hjúkrunarfræðingur var ráðinn í 40% vinnu, einnig læknir sem kom einu sinni í viku til að vera með. Fengin var handleiðsla hjá reyndum sálfræðingi. Inngangur Þunglyndi meðal aldraðra er algengt vandamál. Til eru rannsóknir sem segja að þunglyndi meðal aldraðra á stofnunum sé meira en hjá þeim sem búa sjálfstætt. Samkvæmt RAI-mati árið 2000 var þunglyndi algengt á hjúkrunardeild Seljahlíðar. Utanaðkomandi þættir geta haft áhrif á þunglyndi aldraða. Sjúkdómar og andlát höggva skarð í vina- og ættingjahópinn. Hinn aldraði er e.t.v. orðinn heilsulítill sjálfur og upp á aðra kominn, getur ekki lifað eins og hann langar til eða ætlaði sér. Því upplifir hann oft einmanaleika og sorg og getur verið illa í stakk búinn til að takast á við þess konar vandamál. Einkenni þunglyndis eru margvísleg og getur verið erfitt að greina þau hjá öldruðum þar sem líkamleg einkenni s.s. þreyta, slappleiki, svefntruflanir, lystar- leysi o.fl. eru algeng hjá öldruðum án þess að um þunglyndi sé að ræða. Þessi líkamlegu einkenni eru einnig oft einkenni þunglyndis. Tilfinningaleg einkenni þunglyndis þar sem hinn aldraði upplifir kvíða, einmanaleika og ótta getur brotist út í reiði, mikilli vanlíðan og depurð, auk annarra líkamlegra einkenna. Á vitsmunalega sviðinu hægir á hugsun, eðlilegir hlutir verða að vandamálum sem einstaklingur getur ekki leyst og ranghugmyndir geta komið í ljós t.d. ofsóknarhugmyndir, einnig einbeitingartruflanir og sljóleiki. Virkni hjá einstaklingnum minnkar, hann verður áhugalaus og getur haft löngun til þess að deyja. Þunglyndi fylgir oftast kvíði, spenna, sektarkennd, þráhyggja og stundum sjálfsvígshugsanir. Hópvinna/viðtöl á öldrunarstofnunum Soffía Snorradóttir hjúkrunarfræðingur, Seljahlíð

x

Öldrun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Öldrun
https://timarit.is/publication/1137

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.