Öldrun - 01.05.2004, Blaðsíða 21

Öldrun - 01.05.2004, Blaðsíða 21
21ÖLDRUN – 22. árg. 1. tbl. 2004 www.oldrun.net Hópvinna getur bætt líðan Tilgangur með hópvinnu er margþættur, má þar nefna: • að bæta líðan viðkomandi einstaklings, and- lega, félagslega og líkamlega • að bæta samskipti vistmanna innbyrðis og við aðra sem vistmenn hafa samskipti við • að auðvelda starfsfólki vinnuna og gera hana markvissari Markmið Markmið hópmeðferðar aldraðra eru einstaklings- bundin, markmið geta verið: • að ná betri tökum á vandamálum sínum • að auka sjálfstraust, að auka félagslega og líkamlega færni • að auka sátt og aðlögun að ævikveldinu Það eru til ýmiss konar hópar, misjafnlega saman- settir og hópvinna er þar af leiðandi misjöfn. Í okkar hópum er blandað saman ýmsum aðferðum m.a. huglægri atferlismeðferð, sem byggist á kenn- ingum Becks, atvik sem leiða til umhugsunar, við- bragða og athafnar. Markmið hennar er að umbreyta hugsunum og hegðun og finna hentugri lausnir eða að fá fólk til að hugsa um daginn í dag og hvernig hægt er að leysa úr vandamálum hans. Aðferðir til að ná markmiðinu er m.a. fræðsla t.d. um mannleg samskipti, sjúkdóma o.fl. Einnig er mikið lagt upp úr slökun, hreyfingu og endurminningum s.s. rætt um fæðingarstað, jól, skoð- aðar myndir o.fl. Mikilvægur þáttur hópstarfsins getur falist í að tækifæri gefist til að fylgjast nánar en ella með líðan fólksins og ef veikindi eru í aðsigi þá er hægt að grípa inn í. Það getur hindrað mikil veikindi og innlögn á spítala. Að velja í hóp Undirbúningur/ framkvæmd Hjúkrunarfræðingur sem leiðir hópinn velur 6-8 þátttakendur, sem þurfa ekki endilega að hafa sömu vandamál. Þeir mega vera af báðum kynjum, þó minnst tveir af hvoru kyni. Því næst eru einstaklingsviðtöl/forskoðun. Þá er mikilvægt að útskýra varlega og vel út á hvað hópvinna gengur. Gefa sér góðan tíma og vera í rólegu og þægilegu umhverfi, fá sjúkrasögu og gera sér grein fyrir vandamálum og kostum viðkomandi. Þá er mikilvægt að vera með fundina á ákveðnum tíma og á ákveðnum stað. Fundir eru haldnir einu sinni í viku og klukkustund í senn. Fundarstaður er í rólegu umhverfi og alltaf á sama stað. Setið er í góðum stólum við þægilegt borð. Vatn er í könnu og glös eru hjá hverjum og einum. Settar eru reglur í byrjun. Vissar reglur eru kynntar og farið yfir þær í upphafi hvers fundar: 1. Stundvísi og mætingarskylda 2. Þagnarskylda og trúnaður um það sem er rætt á fundum, ekki ræða um það við aðra utan fundar 3. Allir hafa jafnan rétt til að tjá sig, en enginn er skyldaður að taka til máls 4. Auðsýna öðrum tillitssemi, hjálpast að og vinna saman að markmiðum hópsins, þ.e. betri líðan og markvissara starfi Því næst er síðastliðin vika rifjuð upp. Oft koma þá ýmis vandkvæði sem reynt er að leysa úr síðar á fundinum. Einnig er farið yfir þau verkefni sem ákveðin voru hjá hverjum og einum á síðasta fundi. Verkefnin geta verið ýmisleg t.d. að fara í göngu daglega, tala við ættingja, byrja í leikfimi, æfa slökun, temja sér viðhorfsbreytingu eins og t.d. í stað þess að segja „ég get ekki“, segi maður „ég reyni“. Á sumum fundum er fræðsla aðalefnið. Þá eru tekin fyrir ýmis efni eins og svefntruflanir, ættfræði, eða annað skemmtilegt og þá er stundum hlegið dátt. Við endum á slökun og teygjuæfingum og æfum okkur að sjálfsögðu heima. Álit – mat – niðurstöður Sú meðferð sem er í boði byggist á því að tala saman, kryfja vandamál, beina fólki á jákvæða braut, ræða um hluti sem annars væri ekki talað um og reyna að hjálpa fólki að takast á við lífið og hversdagsleikann. Það hefur sýnt sig að hópvinna getur hjálpað, ásamt lyfjagjöf á sama tíma. Samtalsmeðferð í formi einstaklingsviðtala hefur almennt ekki verið í boði, þar sem hún þykir taka mikinn tíma og er dýr. Samtalsmeðferð hefur verið í boði í Seljahlíð og hefur sýnt frábæran árangur í vissum tilfellum. Það er áberandi hve vel vistmenn virða reglur hópsins og starfshætti. Slökunar- og teygjuæfingar sem æfðar eru í lok hvers fundar þykja góðar og fólk reynir að æfa sig heima. Félagsstarf Seljahlíðar er vandað og metnaðarfullt starf og margir sem tóku þátt í meðferðinni tóku þátt í því af krafti. Mat á hópstarfinu fólst bæði í huglægu mati sem byggðist á viðtölum við vistmenn, auk staðlaðra kvarða. Kvarðarnir og huglægt mat sýndu að líðan fólksins var mun betri eftir hópmeðferð en áður.

x

Öldrun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Öldrun
https://timarit.is/publication/1137

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.