Öldrun - 01.05.2004, Síða 25
25ÖLDRUN – 22. árg. 1. tbl. 2004 www.oldrun.net
Tengja þarf kynslóðir betur saman
Sú þróun sem hefur átt sér stað í samfélaginu
síðustu ár, að skipta kynslóðum jafn mikið upp og nú
tíðkast, er ekki farsæl. Það þarf að efla tengslin á milli
aldurshópanna. Í þemamánuðinum fjallaði séra Sig-
finnur Þorleifsson um það að eiga aldraða foreldra og
mikilvægi þess að hlúa vel að þeim sem manni þykir
vænt um. Einnig voru kynnt verkefni þar sem unnið
hefur verið að því að tengja kynslóðir saman. Í félags-
starfi Gerðubergs hefur fólk á öllum aldri t.d. unnið
saman að trjárækt og spilað félagsvist. Í mörgum verk-
efnum miðla þeir eldri til þeirra yngri. Í Námsflokkum
Reykjavíkur hefur þessu einnig verið snúið við þar sem
þeir yngri kenna þeim eldri á tölvur. Einnig fréttist af
skemmtilegu vinaverkefni fyrir austan milli eldri
borgara og leikskólabarna þar sem hvert leikskólabarn
fékk einn vin af eldri kynslóðinni.
Lyf geta verið nauðsynleg en þau eru ekki
lausn við leiða
Í þemamánuðinum var fjallað um það hvort
þunglyndi og kvíði séu eðlilegir fylgifiskar efri áranna.
Raunin er sú að þeir eru það ekki. Þetta eru vandamál
sem þarf að taka á hjá eldra fólki eins og því yngra.
Tilhneigingin hefur verið sú, að leysa þennan vanda hjá
eldra fólki eingöngu með lyfjagjöf. Lyfin geta oft hjálpað
fólki tímabundið, en það er nauðsynlegt að huga einnig
að félagslegum þáttum og bjóða aðrar meðferðir sam-
hliða. Ef leiðindi gera vart við sig er lausnin ekki fólgin
í lyfjum. Það er miklu betra að finna sér eitthvað að gera
til að vinna bug á leiðindunum. Kvíði og þunglyndi eru
annars eðlis og mikilvægt að bregðast rétt við og þá á
fólk á öllum aldri að leita sér aðstoðar t.d. á heilsu-
gæslustöðvum.
Iðjuleysið má ekki ná yfirhöndinni
Það skiptir miklu máli að eiga sér áhugamál, ekki
síst þegar aldurinn færist yfir og fólk fer að minnka við
sig vinnuna. Allir ættu að reyna að finna sér eitthvað til
að hafa fyrir stafni, hvort sem það er að rækta gömul
áhugamál eða uppgötva einhver ný. Það er hægt að taka
þátt í alls konar starfsemi ef áhugi er fyrir hendi. Margs
konar félagsstarfsemi er í boði á vegum Félags eldri
borgara og í félagsmiðstöðvum víða um borg og bý þar
sem fólk kemur saman til að spila, syngja og leika á
hljóðfæri eins og Vinabandið, sem er hljómsveit eldri
borgara í Breiðholti, gerir. Vinabandið spilaði á öllum
hádegisverðarfundunum í þemamánuðinum við mikla
lukku. Hreyfing er einnig mikilvæg. Guðrún Nielsen
kynnti félag áhugafólks um íþróttir aldraðra þar sem
hún er formaður, en félagið hvetur fólk á efri árum til að
hreyfa sig reglulega. Margir vinna einnig að ýmiss
konar listgreinum. Aðrir vilja láta til sín taka í sam-
félaginu og þá er ýmiss konar samfélagsþjónusta í boði
eins og sjálfboðaliðastarfsemi t.d. á vegum Rauða kross-
ins eða kirkjunnar. Það skiptir öllu máli að hver og einn
finni sér einhverja iðju sem hann hefur áhuga á, því
iðjuleysið má ekki ná yfirhöndinni.
Í þemamánuðinum
kynnti Valgerður
Snæland Jónsdóttir
hláturjóga þar sem hún
kenndi fólki að auka
hláturinn í lífinu, þar
sem hláturinn lengir og
bætir lífið.