Öldrun - 01.05.2005, Blaðsíða 3
3ÖLDRUN – 23. árg. 1. tbl. 2005 www.oldrun.net
23. árg. 1. tbl. 2005
EFNISYFIRLIT:
Gerviliðsaðgerðir á mjöðm 4
Þorvaldur Ingvarsson
Hjúkrun sjúklinga vegna aðgerða á mjöðm 8
Ingibjörg S. Guðmundsdóttir
Endurhæfing eftir ísetningu
gerviliðar í mjöðm 13
Harpa Hrönn Sigurðardóttir
Styttri legutími og bætt líðan
við gerviliðsaðgerð á mjöðm 16
Kristín Siggeirsdóttir
Heilsutengd lífsgæði aldraðra 22
Tómas Helgason
Útdráttur úr skýrslum ÖFFÍ 2004-2005 24
Samanburður á þjálfunaraðferðum og
þjálfunaráætlunum eldri aldurshópa 26
Janus Guðlaugsson
Byltu- og beinverndarmóttaka á Landakoti 28
Helga Hansdóttir
Námsstefna ÖFFÍ 2005:
Aldraðir innflytjendur á Íslandi 30
Ólafur Samúelsson
Námsstefna ÖFFÍ 2004:
Á tímamótum – nýr lífsstíll aldraðra 31
Sigríður Jónsdóttir
•
ÚTGEFANDI:
Öldrunarfræðafélag Íslands
Pósthólf 8391, 128 Reykjavík
www.oldrun.net
ÁBYRGÐARMAÐUR:
Smári Pálsson
PRÓFARKALESTUR:
Hervör Hólmjárn
FORSÍÐUMYND:
Róbert Fragapane
UMSJÓN AUGLÝSINGA:
Öflun ehf. – Faxafeni 5
UMBROT OG PRENTUN:
Gutenberg
UPPLAG:
700 eintök
Tímaritið Öldrun kemur út tvisvar á ári
STJÓRN
ÖLDRUNARFRÆÐAFÉLAGS ÍSLANDS
Pósthólf 8391 128 Reykjavík
Sigrún Ingvarsdóttir, formaður, formadur@oldrun.net
Ingibjörg Þórisdóttir, ritari, ritari@oldrun.net
Ólafur H. Samúelsson, gjaldkeri, gjaldkeri@oldrun.net
Geirlaug Dröfn Oddsdóttir, Berglind Indriðadóttir
Sigrún Guðjónsdóttir, Sigurveig H. Sigurðardóttir
ISSN 1607-6060
ÖLDRUN Frá ritnefnd
Tímaritið Öldrun er fagtímarit fyrir starfsfólk í öldrunarþjónustu
og aðra áhugasama um málefni aldraðra. Blaðið er gefið út af
Öldrunarfræðafélagi Íslands (ÖFFÍ) og er því helsti miðill
félagsins til að koma á framfæri upplýsingum um starfsemina til
félagsmanna sinna, s.s. um námsstefnur sem félagið heldur í
samstarfi við Endurmenntun Háskóla Íslands og skýrslur stjórna
félagsins. Í þessu tölublaði má því finna samantekt um efni tveggja
síðustu námsstefna ásamt útdrætti úr skýrslu fráfarandi formanns
ÖFFÍ og skýrslu vísindasjóðs félagsins.
Meginefni blaðsins er hins vegar greinar sem tengjast
gerviliðsaðgerð á mjöðm með einhverjum hætti, hvort sem það er
tengt lífsgæðum, byltu- og brotaforvörnum, endurhæfingu eða
aðgerðinni sjálfri. Þrátt fyrir að efnið sé afmarkað telur ritnefnd að
það eigi erindi til allra áskrifenda blaðsins, þar sem allmargir
aldraðir þurfa á slíkri aðgerð að halda og ætíð er gott að huga að
forvörnum. Einnig er að finna grein um mismunandi
þjálfunaraðferðir fyrir eldri borgara.
Á aðalfundi ÖFFÍ, 15. mars síðastliðinn, urðu eftirtaldar breytingar
á ritnefnd Öldrunar. Smári Pálsson mun stíga úr stóli ritstjóra nú
að lokinni vinnu við þetta tölublað. Við ritstjórastarfinu tekur
Berglind Indriðadóttir, sem setið hefur í ritnefnd undanfarið ár.
Ólafur Samúelsson hættir einnig störfum í ritnefndinni og munu
þá taka til starfa þær Guðlaug Guðmundsdóttir og Gríma Huld
Blængsdóttir. Ritnefnd þakkar þeim Smára og Ólafi samvinnuna og
býður Guðlaugu og Grímu Huld velkomnar í hópinn. Undanfarin
ár hefur Hervör Hólmjárn unnið mikið starf við kynningu á
félaginu og þar með talið blaðinu Öldrun, ásamt því að
prófarkalesa blaðið. Hún hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér frá
og með haustinu. Ritnefnd færir henni bestu þakkir fyrir farsælt og
gott samstarf.
Fráfarandi ritnefnd:
Smári Pálsson, taugasálfræðingur, ritstjóri
Soffía Egilsdóttir, félagsráðgjafi
Ólafur Samúelsson, öldrunarlæknir
Berglind Indriðadóttir, iðjuþjálfi
Ný ritnefnd:
Berglind Indriðadóttir, iðjuþjálfi, ritstjóri
Soffía Egilsdóttir, félagsráðgjafi
Guðlaug Guðmundsdóttir, hjúkrunarfræðingur
Gríma Huld Blængsdóttir, heilsugæslulæknir og sérfræðingur í
heimilislækningum
Netfang Öldrunar: ritnefnd@oldrun.net