Öldrun - 01.05.2005, Blaðsíða 26
26 www.oldrun.net ÖLDRUN – 23. árg. 1. tbl. 2005
Markmið rannsóknar
Meginmarkmið rannsóknarinnar var annars vegar
að bera saman árangur þjálfunaráætlana og þjálfunarað-
ferða á hóp eldri aldurshópa, 67 ára og eldri, og hins
vegar að kanna hvernig nýta megi magn og ákefð þjálf-
unar við val á heilsurækt fyrir þennan aldurshóp.
Framkvæmd
Þátttakendur í rannsókninni voru 105 eldri borgarar
af höfuðborgarsvæðinu. Allir þátttakendur voru látnir
framkvæma SPPB-próf (Short Physical Performance
Battery). Prófið er þróað í Bandaríkjunum þar sem það
hefur verið mikið notað fyrir eldri aldurshópa, (Establis-
hed Population for the Epidemiologic Study of the Eld-
erly). Prófið mælir jafnvægi, gönguhraða og styrk. Höf-
undur þess er Jack Guralnik. Í upphafi rannsóknar var
einnig lögð heilsufarskönnun fyrir hvern þátttakanda
svo ganga mætti úr skugga um hvort þeir væru hæfir til
þátttöku eða ekki. Ólafur Þór Gunnarsson lyf- og öldr-
unarlæknir fór yfir niðurstöður og sjúkraskrá þátttak-
enda. Þá var kannað nákvæmlega hvort þátttakendur
gætu tekið þátt í 12 vikna þjálfunaráætlun þar sem lág-
marksmætingarskylda í þjálfun var 80%. Af þessum 105
einstaklingum voru 79 (n=79) sem tóku þátt í verkefn-
inu. Meðalaldur þátttakenda var 74,1 ár. Mælingar á
öðrum þáttum, fyrri mæling, fór fram í lok janúar 2004.
Þessar mælingar voru m.a. 6 mínútna göngupróf,
styrktarpróf og mælingar á heilsutengdum lífsgæðum,
HL-prófið (IQL – Icelandic quality of life), þar sem þátt-
takendur svöruðu almennum spurningum um eigin
líðan. Í byrjun febrúar hófst 12 vikna þjálfunaráætlun.
Áður en 12 vikna þjálfun hófst var þátttakendum
skipt tilviljunarkennt í þrjá jafn stóra tilraunahópa,
styrktarhóp, þolþjálfunarhóp og viðmiðunarhóp. Hver
hópur fékk dagskrá sem náði yfir 12 vikur. Allir þátttak-
endur fengu dagbók til útfyllingar. Þolhópur fékk sér-
staka þjálfunaráætlun sem byggð var á gönguþjálfun
fimm sinnum í viku, þrisvar undir eftirliti en tvisvar sjálf-
stæð þjálfun, þar sem tímalengd og ákefð þjálfunar var
fyrirfram ákveðin. Styrktarþjálfun fékk einnig sérstaka
þjálfunaráætlun sem skipt var í styrktarþjálfun í sér-
Samanburður á
þjálfunaraðferðum og
þjálfunaráætlunum
eldri aldurshópa
Janus Guðlaugsson,
B.Sc-íþróttafræðingur, Dipl.Ed.próf í
uppeldis- og menntunarfræðum
Verkefnið er liður í
meistaraprófsnámi höfundar
við Kennaraháskóla Íslands,
íþróttafræðiseturs að
Laugarvatni.
Leiðbeinendur verkefnisins eru
Erlingur Jóhannsson, dósent við KHÍ og
Ólafur Þór Gunnarsson, lyf- og öldrunarlæknir, á
Landspítala–háskólasjúkrahúsi.