Öldrun - 01.05.2005, Qupperneq 13
13ÖLDRUN – 23. árg. 1. tbl. 2005 www.oldrun.net
Aðgerðin
Gerviliðurinn samanstendur af tveimur hlutum,
hágæða plastskál sem sett er í augnkarlinn (aceta-
bulum) og stálkúlu á skafti sem er sett niður í lærlegg-
inn og yfirleitt fest með beinsementi (Gerviliður í
mjöðm. Bæklingur, 1997).
Hér á landi eru notaðar tvær aðferðir við aðgerð-
irnar. Annars vegar er mjaðmarliðurinn opnaður aftan
frá og liggur sjúklingur þá á hlið í aðgerð og hins vegar
er liðurinn opnaður framan frá og liggur sjúklingur þá
yfirleitt á bakinu.
Eftir aðgerð er sá hluti liðpokans sem var opnaður
viðkvæmur fyrir álagi og því hætta á liðhlaupi sérstak-
lega fyrstu þrjá mánuðina á meðan vefir eru að gróa.
Mikilvægt er þó að fara varlega alla tíð. Þessa fyrstu
mánuði þarf því að fylgja ákveðnum varúðarráðstöf-
unum í sambandi við hreyfingu. Þegar liðurinn er opn-
aður aftan frá þarf að gæta þess að snúa fótleggnum
ekki inn á við, en þegar hann er opnaður framan frá þarf
að fara varlega í snúninga út á við. Í báðum tilfellum má
aðeins beygja að 90° í mjöðm (Gerviliður í mjöðm.
Fræðslubæklingur, 1997).
Góður árangur þessarar aðgerðar er háður því að
hún hafi gengið vel, að liðurinn sitji rétt og að fólk sé vel
meðvitað um ástand sitt og viti hvað það má gera og
hvað beri að varast (Ólöf R. Ámundadóttir, 2005).
Endurhæfingin
Niðurstöður rannsókna sýna að helstu vöðvahópar
sem eru slappir hjá einstaklingum bæði fyrir og eftir
gerviliðsaðgerð á mjöðm eru réttivöðvar mjaðmar (ext-
ensorar), beygjuvöðvar mjaðmar (flexorar), fráfærslu-
vöðvar mjaðmar (abductorar) og beygju- og réttivöðvar
í hné. Einnig geta verið styttingar í vöðvum kringum
mjöðm og hné (Shih, Du, Lin, og Wu, 1994).
Hreyfingarleysi samfara stórum aðgerðum og
sjúkrahúslegu veldur m.a. vöðvarýrnun (Suetta, o.fl.,
2004). Þá hafa verkir einnig áhrif á að hreyfigeta
minnkar og vöðvarýrnun eykst.
Almennt
Gerviliðsaðgerð á mjöðm er ein algeng-
asta bæklunaraðgerð sem gerð er á fólki
65 ára og eldra (Freburger, 2000).
Algengasta orsök þess að settur er gervi-
liður í mjöðm er slitgigt.
Markmiðið með þessari aðgerð er að losa
fólk við verki, auka liðferil, bæta starf-
ræna getu og auka lífsgæði.
Miklar framfarir hafa orðið bæði í þróun
gerviliða og tækni við aðgerðir. Einnig er
legutími mun styttri nú en áður var.
Áhætta sem fylgir þessum aðgerðum hefur
minnkað og árangur batnað (NIH Con-
sensus Development Conference on Total
Hip Replacement, 1995).
Endurhæfing eftir
ísetningu gerviliðar
í mjöðm
Harpa Hrönn Sigurðardóttir
sjúkraþjálfari á bæklunar-
lækningadeild LSH, Fossvogi