Öldrun - 01.05.2005, Síða 19
19ÖLDRUN – 23. árg. 1. tbl. 2005 www.oldrun.net
uðum eftir aðgerð voru minni verkir (p=0,005) hjá
fræðsluhópnum. Eftir fjóra mánuði hafði fræðsluhópur-
inn minni tilfinningaviðbrögð (p=0,022) og félagslega
einangrun (p=0,010). Að sex mánuðum liðnum stóð
samanburðarhópurinn sig betur hvað varðaði orku-
skort (p = 0,007), verki (0,021), hreyfigetu (p = 0,003)
og félagslega einangrun (p = 0,033). Munur á skorun í
HHS og á Meurle d´Abuigne og Postel-kvarða var ekki
marktækur, en öll gildin voru alltaf fræðsluhópnum í
hag.
Samkvæmt niðurstöðum okkar virðist sem styttri
legutími á sjúkrahúsi hafi síður en svo óæskileg áhrif á
líðan eftir liðskipti í mjöðm, ef stytt sjúkrahúslega er
bætt upp með heimahjúkrun, vandaðri fræðslu og leið-
beiningum fyrir og eftir aðgerð.
Tafla 2.
Starfræn geta og verkir samkvæmt Oxford Hip Score miðað við meðferðarhóp
2 mán. 4 mán. 6 mán.
Fyrir aðgerð eftir aðgerð eftir aðgerð eftir aðgerð
Fræðsluhópur
N 27 27 26 27
Meðaltal (SD) 33,1 (7,5) 19,0 (6,3) 15,4 (4,2) 14,2 (4,3)
Miðgildi (IQR) 31,0 (25,0-39,0) 17,0 (15,0-21,0) 13,5 (12,0-17,5) 12,0 (12,0-15,0)
Samanburðarhópur
N 21 21 22 20
Meðaltal (SD) 36,6 (6,5) 24,0 (9,0) 22,0 (8,7) 20,5 (7,2)
Miðgildi (IQR) 35,0 (31,5-43,0) 24,0 (16,5-27,5) 20,5 (13,8-30,3) 21,0 (12,3-25,8)
P-gildi* 0,061 0,032 0,007 0,001
* Tölfræði samkvæmt Mann-Whitney prófi
Lokaorð
Heimahjúkrun og endurhæfing eftir vissa sjúkdóma
og aðgerðir hafa verið reynd víða með góðum árangri
(Jones, o.fl., 1999; Parker, o.fl., 1991; Wilson, o.fl.,
1999). Þessi rannsókn er hinsvegar sú eina sinnar teg-
undar á Norðurlöndunum sem hefur skoðað endurhæf-
ingu þeirra sem fá gervilið í mjöðm frá áðurgreindu
sjónarhorni.
Það sem rýrir nokkuð ályktunargildi þessarar rann-
sóknar var nauðsyn þess að víkja frá upphaflegri áætlun
um að taka einungis sjúklinga frá Landspítalanum.
Vegna skipulagsbreytinga þar reyndist því miður nauð-
synlegt að taka inn sjúklinga af öðru sjúkrahúsi í rann-
Þegar risið er upp úr stól er skorni fóturinn
færðu fram á við og armar stólsins notaðir.
Farið í/úr bíl, Skyggði fóturinn er sá skorni,
farþegasætið er fært eins langt aftur og hægt
er, bakið látið halla aftur á bak, sessa eða
púði er sett í sætið ef þörf er á.