Nesfréttir - 01.10.2014, Page 12
12 Nes frétt ir
Sett hefur verið upp facebook-
síða þar sem hægt er að fylgjast
með ýmsu sem er að gerast í
félags og tómstundastarfi hjá
eldri bæjarbúum á Nesinu,
koma inn upplýsingum og skoða
myndir. Farið endilega inn á
síðuna, gerist vinir, líkið við og
deilið. Það er forvitnilegt að
sjá hvort þetta er góð leið til að
koma dagskránni á framfæri.
Aðgangurinn er: eldri borgarar
á Seltjarnarnesi.
Starfið hefur farið líflega af
stað, góð skráning á öll nám-
skeið og aðrar uppákomur.
Fyrsta „óvissuferð“ haustsins var
sameiginleg ferð félagsstarfsins og
kirkjunnar þann 16. september sl.
Ferðin var mjög vel heppnuð í alla
staði. Ferðaplanið var að fara að
Fitjum í Skorradal með viðkomu í
Mosfellsbænum í morgunkaffi og
að Hjalla/Kaffi kjós í síðdegiskaffi á
bakaleiðinni. Vel var tekið á móti
hópnum á öllum viðkomustöðum
og veðrið eins og best var á kosið.
Fimmtudaginn 25. september
var haustfagnaður/grillkvöld í
salnum á Skólabrautinni. Kvöldið
heppnaðist vel og voru allir
kátir þó svo að maturinn hafi
komið aðeins of seint í hús, en
fólk notaði þá bara tímann til að
spjalla saman, dansa og syngja.
Dagskrá félags og tómstundastarf-
sins sem send var í hús til eldri
bæjarbúa í september er í gildi til
áramóta. Minnum þó á eftirfarandi
dagskrárliði.
Fimmtudaginn 23. október kl.
13.00 er næsta „óvissuferð“. Þá
byrjum við á því að aka um ný
hverfi í efri byggðum höfuðbor-
garsvæðisins og heimsækjum
síðan Hannesarholt við Grundar-
stíg. Þar fáum við kaffi og góðgæti
ásamt því að fræðast um sögu hús-
sins, íbúa þess og fleira. Síðasti
skráningardagur er 21. október.
Þriðjudagur 28. október kl.
14.00 Bingó og ástarpungar í
Golfskálanum. „Sætaferðir“ frá
Skólabrautinni
Miðvikudagur 29. október kl.
20.00. Gaman saman í Selinu
félagsmiðstöð unga fólksins. Allir
velkomnir.
Fimmtudagur 30. október
kl. 20.00. Nikkukvöld í salnum
Skólabraut. Við fáum til okkar
harmonikkuleikara, syngjum og
dönsum og eigum saman skem-
mtilega kvöldstund. Boðið verður
upp á léttar veitingar. Síðasti
skráningardagur er þriðjudagurinn
28. október. Fyrirhugað er að fara í
kvikmyndahús í byrjun nóvember
og sjá Afann og Þjóðleikhúsið eftir
miðjan nóvember og sjá Karitas.
Allar nánari upplýsingar um dag-
skrána og skráning er hjá Kristínu
í síma 8939800.
Fé lags starf eldri bæj ar búa
á Sel tjarn ar nesi
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Suðurhlíð 35, Rvík. • Símar 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is
Sverrir
Einarsson
Kristín
Ingólfsdóttir
Hinrik
Valsson
Tímabært er að golfvöllurinn á
Suðurnesi verði tekinn undir almennt
útivistarsvæði. Seltjarnarnesbær
vinnur að aðalskipulagi, en það er
stefnuyfirlýsing bæjarstjórnar um
landnotkun, samgöngu- og þjónus-
tukerfi, umhverfismál og þróun
byggðar innan bæjarfélagsins.
Samkvæmt formanni Golfklúbbsins
Ness á opnum fundi eru liðlega 600
félagsmenn í klúbbnum, þar af um
helmingur Seltirningar. Klúbburinn
er með um 30 hektara útvistarsvæði
á Suðurnesi sem eingöngu er fyrir
klúbbfélaga.
Þótt golf sé göfug íþrótt þá er það
ekki réttlátt að fámennur hópur fólks
fái þau forréttindi frá bæjarfélaginu
að halda fyrir sig 30 hektara af útiv-
istarlandi til eilífðarnóns.
Á Suðurnesi mætti koma
upp sparkvelli, hundagirðingu,
hjólreiða- og
göngustígum,
s k r ú ð g a r ð i ,
hreystivelli og
mörgu öðrum
útivistarmögu-
leikum sem
myndu þjóna
margfalt fleiri
einstaklingum
en þeim sem
stunda golf.
Bæjarfélagið getur ekki starfið í
þágu forréttindahóps, jafnvel þótt
hann sé hávær og kröfuharður, heldur
verður að líta til almannahagsmuna.
Almannahagsmunir eru að
Suðurnes verði tekið undir útivis-
tarsvæði fyrir almenning.
Páll Vilhjálmsson
Höfundur er kennari.
Golfvöllur verði
útivistarsvæði
17 ára reynsla og
þekking í sölu fasteigna ANDRI SIGURÐSSON
Löggiltur fasteignasali
s. 690 3111www.frittsoluverdmat.is
Páll
Vilhjálmsson.
Hringbraut 119
Sími: 562 9292