Nesfréttir - 01.12.2014, Side 2
Skattar á íbúa lækka og tóm-
stundastyrkir hækka er grunnur-
inn í fjárhagsáætlun Seltjarnarnes-
bæjar fyrir árið 2015 og þriggja
ára áætlun sem samþykkt var
á fund bæjarstjórnar nýverið.
Helstu tíðindi úr áætluninni eru
að fasteignaskattar lækka um 5%
og tómstundastyrkir verða hæk-
kaðir um 65%, fara í 50 þúsund
krónur, en þeir voru 30 þúsund
krónur á hvert barn. Þar með
er Seltjarnarnesbær með hæstu
styrki af þessu tagi á landinu.
Fasteignaskattar lækka um 5% og
verða nú 0,20% sem er með því
lægsta á landinu. Niðurgreiðslur
til foreldra með börn hjá dagforel-
drum hafa einnig hækkað og eru
nú 65 þúsund krónur með hverju
barni. Inntökualdur barna í leik-
skóla bæjarins er við 14 mánaða
aldur miðað við ágúst ár hvert.
Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri
segir fjárhagáætlun unna á sam-
ráðsfundum meiri- og minnihluta
í bæjarstjórn. ,,Þær áherslur sem
eru í fjárhagsáætlun bæjarins koma
barnafjölskyldum vel og það er
samstaða um að batnandi hagur
bæjarsjóðs skuli komi fjölskyldu-
fólki til góða”, segir Ásgerður og
kveðst ánægð með að Nesið skuli
vera í farabroddi á landinu hvað
varðar tómstundastyrkina og lág
leikskólagjöld. Á landsvísu eru skat-
tar almennt lægstir á Seltjarnarnesi
en útsvarið nemur 13,70%.
Sterk staða bæjarsjóðs
„Fjárhagsleg staða bæjarsjóðs
er mjög sterk. Bærinn hefur greitt
niður skuldir og engin ný lán hafa
verið tekin undan farin ár. Rekstr-
arafgangur verður 8 milljónir króna,
samkvæmt áætluninni. Skuldahlut-
fall sveitarfélagsins er 54% sem er
með því lægsta á landinu og fer læk-
kandi,“ segir Ásgerður. Hún þakkar
góða rekstarafkomu starfsmönnum
bæjarfélagsins sem hafa lagt sig
fram um skilvirkan rekstur. Rúmur
helmingur útgjalda aðalsjóðs bæja-
rins fer til fræðslumála. Þjónustan
sem skólarnir veita er mjög góð,
úttektir frá menntamálaráðuneytinu
styðja það sem og árangur á sam-
ræmdum prófum borið saman við
aðra skóla landsins.
Nýtt hjúkrunarheimili rís
og ungmennin fá vinnu
Eins og bæjarbúar hafa eflaust
tekið eftir hafa ýmsar framkvæm-
dir verið unnar á þessu ári, miklar
viðhaldsframkvæmdir hafa staðið
yfir sl. fjögur ár sem nema alls
einum milljarði á tímabilinu. Nú
er hafin vinna við undirbúning á
byggingu hjúkrunarheimilis við
Safnatröð en áætlaður kostnaður
er rúmur milljarður. Þá má geta
þess að á liðnu sumri störfuðu
um 150 ungmenni 18 ára og eldri
við ýmis störf hjá bænum en allir
námsmenn sem leituðu til bæjarins
um sumarstarf fengu starf. „Það er
liður í sumarátaki bæjarins að unga
fólkið fái vinnu í stað þess að ganga
um atvinnulaust,“ segir Ásgerður
og kveðst hafa orðið vör við
almenna ánægju með þetta framtak
bæjarins. Það kosti fjármuni en sé
hluti af forgangsröðun sem taki mið
af aðstæðum hverju sinni hvernig
skattfé íbúanna er varið.
ÚT GEF ANDI:Borgarblö›,Eiðistorgi13-15,170Seltjarnarnes,Pósthólf172.S: 511 1188 • 552 1953 • 895 8298
RITSTJÓRI:KristjánJóhannsson•ÁBYRG‹ AR MA‹ UR:KristjánJóhannsson•BLAÐAMAÐUR: ÞórðurIngimarsson
UM BROT:ValurKristjánsson•NETFANG:borgarblod@simnet.is•HEIMASÍ‹A:borgarblod.is
Nesfréttir koma út mána›arlega og er dreift frítt í hvert hús á Seltjarnarnesi
2 Nes frétt ir
www.borgarblod.is
Verður að taka tillit
til Seltirninga
Leið ari
Einu sinni tilheyrði Reykjavík
Seltjarnarnesi!
Nesbúinn
Seltirningar eru háðir nágrönnum sínum í Reykjavík um samgön-gur. Helstu leiðir frá Seltjarnarnesi til umheimsins liggja um; Ánanaust og Hringbraut, Ánanaust og Geirsgötu, Nesveg og
Hofsvallagötu og Nesveg, Ægissíðu og Suðurgötu. Aðrar leiðir koma
vart til greina nema sjóleiðin.
Í skipulagi Reykjavíkur og einnig í fyrirætlunum borgaryfirvalda er gert ráð fyrir mikilli þéttingu byggðar í vesturhluta Reykjavíkur, ein-
kum á Háskólasvæðinu og við hafnarsvæðið og í nágrenni þess sem
kallar á meiri umferð. Á sama tíma eru komnar fram hugmyndir um að
þrengja að umferðinni – jafnvel að stofnbrautum til að draga úr svone-
fndu umferðarónæði. Þegar hefur verið ráðist í umdeildar aðgerðir við
Hofsvallagötu, rætt er um að hægja á og jafnvel að draga úr umferð
um Suðurgötu og Hringbrautin er ekki ósnertanleg þegar kemur að
þessum málaflokki. Þá er ljóst að vaxandi umferðarþungi um Geirs-
götu og hafnarsvæðið getur komið niður á möguleikum Seltirninga til
að komast leiðar sinnar.
Auðvelt er að skilja áhuga fólks á að verða fyrir sem minnstu ónæði af umferð en það hefur einnig þörf fyrir að komast á milli staða.
Hvað sem áhuga Reykvíkinga líður verða borgaryfirvöld í Reykjavík
að vera þess minnug og taka tillit til að vestan borgarmarkanna er
sveitarfélag með um 4.400 íbúa sem á sér ekki aðrar leiðir á landi en
í gegnum Vesturhluta Reykjavíkur. Borgaryfirvöldum og ríkisvaldinu
eftir atvikum ber skilda til að halda samgöngum Seltirninga við aðrar
byggðir opnum. Af því verður skipulag borgarinnar að taka mið.
Fasteignaskattar
lækka um 5%
Geri við allar tegundir startara, alternatora, beinar
innspýtingar, rafmagn í bílum og bátum.
Sævar
Bíla- og bátarafmagn
Sími 561-1466 - Kirkjubraut 13, Seltjarnarnesi
ra
fm
ag
n@
m
i.i
s
Auglýsingasími 511 1188