Nesfréttir - 01.12.2014, Page 14
14 Nes frétt ir
Guðný Guðmundsdóttir fiðlu-
leikari og konsertmeistari efnir til
tónleika í Seltjarnarneskirkju 21.
desember n.k. kl. 16.00. Efnisskrá
tónleikanna verður í höndum
bæði núverandi og fyrrverandi
nemenda Guðnýjar.
Fyrst munu verða flutt nokkur
samspilsatriði nemenda hennar
auk hennar sjálfrar en í lokin verður
leikin alveg splunkuný útsetning af
Scacconnu Bachs, sem er eitt fræ-
gasta verka hans fyrir einleiksfiðlu.
Bjarni Frímann Bjarnason er búinn
að gera glæsilega útsetningu fyrir
fiðlukór með víólum. Guðný kveðst
vera að hóa í alla fyrrverandi
nemendur til að taka þátt og telur
heimtur verði bara góðar. Margir
séu þó uppteknir og sumir ekki
staddur á landinu.
Guðný með
tónleika í
Seltjarnarneskirkju
Guðný Guðmundsdóttir
fiðluleikari og konsertmeistari.
Nemendur og starfsfólk Mýró
héldu dag íslenskrar tungu
hátíðlegan að vanda með samkomu
á sal skólans.
Að þessu sinni komu góðir
gestir þegar elstu börnin á Leik-
skólanum komu á eina sýninguna.
Fyrstu bekkingar sungu íslensk
lög, 3. bekkingar sýndu leikþátt
um ævi Jónasar Hallgrímssonar og
5. bekkingar fóru á kostum þegar
þeir fluttu söngleik um landnám
Íslands undir stjórn Ingu Bjargar
tónmenntakennara og Elísabetar
Brekkan, sem samdi söngleikinn.
Hátt í 40 nemendur úr 5. og
6. bekkjum heimsóttu svo allar
deildir leikskólans og lásu fyrir
krakkana þar.
Dagur íslenskrar
tungu í Mýró
Jólin nálgast og margur er farinn að hugleiða hvað skal nú hafa í matinn á jólunum.
Hjá mörgum er slíkt í föstum skorðum og jafnvel löngu ákveðið hvaða veisluréttur
verður á jólaborðinu. Hitt er oft erfiðara hvaða ljúfa vín skal hafa með hátíðarréttinum.
Því gerum við bragð úr ellefta boðorðinu í ár og sleppum uppskriftum.
Þess í stað leggjum við sérstaka áherslu á hvaða víntegundir passa best með jólamatnum.
Masi Campofiorin
– Veneto – Ítalía
2.899 kr.
Kirsuberjarautt.
Meðalfylling, ósætt, fersk
sýra, mild tannín.
Þurrkaðir ávextir, kirsuber,
krydd, vanilla.
Rosemount Cabernet /
Merlot - Ástralía
2.299 kr.
Rúbínrautt.
Létt meðalfylling, þurrt,
mild sýra, mild tannín.
Sætkenndur berjablámi,
plóma.
Piccini Memoro
– Ítalía
1.999 kr.
Dökkrúbínrautt.
Þétt fylling, þurrt, fersk
sýra, þroskuð tannín.
Sælgætiskenndur berjablámi,
vanilla, eik.
Rosemount Shiraz
– Ástralía
2.560 kr.
Rúbínrautt.
Meðalfylling, ósætt, fersk
sýra, mjúk tannín.
Brómber, minta, plóma.
M a t u r o g v í n :
HamborgarHryggur Nautaste ik