Nesfréttir - 01.03.2015, Blaðsíða 3

Nesfréttir - 01.03.2015, Blaðsíða 3
Tveggja og þriggja herbergja íbúðir hafa verið vinsælastar á Seltjarnarnesi að undanförnu. Það má segja að markaðurinn hafi aðallega verið í þessum minni eignum og þær hafa líka hækkað mest í verði á undanförnum árum. Þetta segir Ólafur Finnbogason sölumaður hjá fasteignasölunni Mikluborg í samtali við Nesfréttir. Ólafur segir að það virðist vera mikill straumur á Nesið í dag og því sé einnig skortur á eignum í millistærð og raðhúsum um 200 fermetra og góðum hæðum. Allar eignir sem koma í þeim flokkum séu að seljast vel. „Mikill gangur hefur verið eftir áramót á Hrólfsskálamelnum og hafa fimm íbúðir selst þar á árinu. Einnig var salan á Skerjabraut 1 til 3, þar sem Prjónastofan Iðunn stóð, mjög góð og seldist húsið nánast upp á fyrstu vikunni þannig að verktakarnir eiga einungis eina tveggja herbergja íbúð herbergja íbúð eftir í því húsi.“ Ólafur segir að vegna góðrar sölu þar verði spennandi að fylgjast með hvernig salan á Hrólfsskálamel 1 til 5 sem fer í sölu vonandi á þessu ári muni ganga en þar sé um að ræða fjölbreyttar íbúðir sem henta bæði fyrir yngra fólkið sem fyrsta eign sem og eign fyrir þá sem vilja minnka við sig. „Helsta aðdráttarafl Seltjarnarnesins er gott skipulag á bænum. Þar er stutt á milli skóla og tómstunda og einstakt á höfuðborgarsvæðinu að ekki þurfi að skutla börnum á milli skóla og tómstundarsóknar, enda er öll aðstaða á sama reitnum. „Góð sala hefur verið á Nesinu síðastliðið ár en skortur er á eignum og vonandi mun salan á Hrólfsskálamel 1 til 5 koma hreyfingu á markaðinn með auknu úrvali af eignum í millistærð. Erfitt er að segja hvaða svæði séu dýrust á Seltjarnarnesi en auðvitað hafa sjávarlóðirnar og sunnanvert Nesið alltaf verið aðeins dýrara en norðanmegin“, segir Ólafur Finnbogason. Nes ­frétt ir 3 Tveggja og þriggja herbergja vinsælastar Ólafur Finnbogason sölumaður hjá fasteignasölunni Mikluborg Nesbúar aka oftast á löglegum hraða. Þetta kemur fram í hraða- mælingum sem gerðar voru á tímabilinu frá kl. 14.30 til 15.30 þann 24.02.15 en þá var umferð vöktuð með hraðamyndavél gagnvart bifreiðaumferð, sem ók austur Norðurströnd á Seltjarnar- nesi og var tilgangurinn að kanna ökuhraða á þessum vegarkafla og í nefnda akstursstefnu. Á lessari akstursleið er 60 km hámarkshraði og talsverð snjókoma var meðan á vöktuninni stóð. Á ofan- greindu tímabili vaktaði vélin 106 ökutæki og var meðalhraði þeirra 56 km. Af vöktuðum ökutækjum voru ljósmynduð 5 brot eða tæp 5%. Meðal- hraði brotlegu var 72 km og hraðast ekið á 78 km hraða. Þessar upplýsing- ar komu frá Lögreglustjóranum á Höfuðborgarsvæðinu. Oftast á löglegum hraða SUMARSTÖRF HJÁ SELTJARNARNESBÆ 2015 Seltjarnarnesbær vill ráða ungt fólk til sumarstarfa 18 ára og eldri (fædd 1997 og eldri). Um er að ræða almenn garðyrkjustörf, verkamannastörf, skapandi sumarstörf og ýmis afleysingastörf. Einnig er auglýst eftir ungmennum 20 ára og eldri (1995 og eldri) í störf flokkstjóra og leiðbeinenda. Opnað verður fyrir umsóknir um störf 19. mars. Sjá nánar á heimasíðu Seltjarnarnesbæjar. Umsóknarfrestur er til 7. apríl 2015 Sótt er um störfin á heimasíðu Seltjarnarnesbæjar, www.seltjarnarnes.is. Nánari upplýsingar eru veittar á heimasíðu og í þjónustuveri Seltjarnarnesbæjar í síma 5959 100. ViNNUSkóLi 8. – 10. BEkkUR og 17 ÁRA F. 1998 Vinnutími Vinnuskóla verða 7 stundir á dag, 4 daga vikunnar fyrir umsækjendur sem fæddir eru 1998 og 1999. Vinnutími verða 3,5 stundir á dag, 4 daga vikunnar fyrir umsækjendur sem fæddir eru 2000 og 2001. Ekki er unnið á föstudögum. Vinnutímabil Vinnuskólans er frá 10. júní til 23. júlí. Umsóknarfrestur er til 18. maí 2015 Vinnuskólinn verður settur 9. júní kl. 11:00 í Valhúsaskóla

x

Nesfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nesfréttir
https://timarit.is/publication/1112

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.