Nesfréttir - 01.03.2015, Qupperneq 23
Nes frétt ir 23
Hvað mynd ir þú gera ef þú ynn ir
5 millj ón ir í happ drætti? Ég myndi
eyða einni milljón í útlandaferð með
fjölskyldunni, gefa einhvern slatta til
góðgerðamála og leggja rest inn á banka.
Hvað mynd ir þú gera ef þú vær ir
bæj ar stjóri í einn dag? Ég myndi setja
nýtt gólf inn í litla sal íþróttahússins,
beturumbæta klefa meistaraflokks
kvenna og búa til mitt eigið herbergi í
húsinu.
Að hverju stefn ir þú í fram tíð inni?
Að gerast atvinnumaður í minni
íþróttagrein, mennta mig sem mest og
lifa hamingjusöm til æviloka.
Hvað gerðir þú í sum ar frí inu?
Ég vann í unglingavinnunni ásamt fríðu
föruneyti, fór til Parísar í tvær vikur
með fjölskyldunni og undirbjó mig fyrir
handboltatímabilið.
Seltirn ing ur mán að ar ins að þessu
sinni er Lovísa Thompson, leikmaður
nýkrýndra bikarmeistara Gróttu
í handbolta. Lovísa hefur staðið sig
frábærlega með meistaraflokki Gróttu
þrátt fyrir ungan aldur.
Fullt nafn? Lovísa Thompson.
Fæð ing ar d. og ár? 27. október 1999.
Starf? Nemi og aðstoðarþjálfari í Gróttu.
Farartæki? Hjólið góða.
Helstu kost ir? Læt aðra dæma um það.
Eft ir læt is mat ur? Mexíkósk kjúklinga-
súpa og fiskibollurnar hennar ömmu.
Eftirlætis tónlist? Engin sérstök, bara
allt það vinsælasta í dag.
Eft ir læt is í þrótta mað ur? Daninn og
stórskyttan, Mikkel Hansen.
Skemmti leg asta sjón varps efn ið?
The Mindy Project og allir íþróttaviðburðir
sem eru á dagskrá.
Besta bók sem þú hef ur les ið?
Tár, bros og takkaskór eftir Þorgrím
Þráinsson.
Uppáhalds leikari? Mindy Lahiri, hún er
sjúklega fyndin.
Besta kvik mynd sem þú hef ur séð?
Ég er mikið fyrir söng- og dansmyndir svo
ég segið allt frá High School Musical til
Pitch Perfect.
Hvað ger ir þú í frí stund um þín um?
Ég reyni að læra sem mest, er upp í
íþróttahúsi og fer á æfingar eða keppi.
Hitti svo vini mína inn á milli ef það er
ekki brjálað að gera.
Fallegasti staður sem þú hefur komið
á? Hertz höllin mín og borg ástarinnar,
París.
Hvað met ur þú mest í fari ann arra?
Jákvæðni, gleði og bros á vör.
Hvern vild ir þú helst hitta?
Handboltafólkið Mikkel Hansen og Anita
Görbicz.
Upp á halds vef síða? hsi.is
Hvað vild ir þú helst fá í af mæl is gjöf?
Nýja handboltaskó og íþróttabakpoka.
SELTIRNINGUR MÁNAÐARINS
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Suðurhlíð 35, Rvík. • Símar 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is
Sverrir
Einarsson
Kristín
Ingólfsdóttir
Hinrik
Valsson
Fanney Hauksdóttir, kraftlyftingakona úr Gróttu og Viggó Kristjánsson
handbolta- og fótboltamaður einnig úr Gróttu voru kjörin íþróttafólk
Seltjarnarness að þessu sinni.
Fanney sigraði á Íslandsmótinu í bekkpressu í janúar sl. (110 kg). Hún
keppti fyrir hönd Íslands á heimsmeistaramóti unglinga í bekkpressu í maí
sl. þar sem hún varð heimsmeistari í bekkpressu þegar hún lyfti samtals 135
kg. Hún sigraði ekki einungis í sínum flokki (63 kg) heldur stóð hún uppi sem
sigurvegari mótsins! Með þessu stórbætti hún Íslandsmetið í bekkpressu.
Fanney er nú í 7. sæti á heimslista IPF í 63 kg flokki.
Viggó er 21 árs gamall og leikur stöðu hægri skyttu. Viggó hefur mikinn
leiksskilning og framúrskarandi sendingar- og skottækni. Hann lék með yngri
landsliðum Íslands áður en hann ákvað að snúa sér alfarið að knattspyrnu-
iðkun árið 2009. Viggó hefur leikið 28 meistaraflokksleiki í handbolta með
Gróttu og skorað í þeim 166 mörk. Það sem af er vetri hefur Viggó verið
lykilleikmaður liðsins og langmarkahæsti leikmaður fyrstu deildarinnar. Auk
þess að vera marksækinn spilar hann félaga sína oft uppi og hefur gott auga
fyrir línuspili. Hann er flottur íþróttamaður og leggur sitt af mörkum fyrir
félagið meðal annars við dómgæslu yngri flokka og á yngri flokka mótum.
Fanney og Viggó
íþróttafólk
Seltjarnarness
heitur matur
í hádeginu
og á kvöldin
taktu meÐ
borÐaÐu á staÐnum
eða
Alvöru matur
eða
Fanney Hauksdóttir og
Viggó Kristjánsson
íþróttafólk Seltjarnarness.
Auglýsingasími:
511 1188
borgarblod@simnet.is