Vestfirðir - 26.11.2015, Síða 9

Vestfirðir - 26.11.2015, Síða 9
26. Nóvember 2015 9 hvörfum, athyglisbresti eða einhverfu. „Vísindalegar framfarir eru af hinu góða, en eins og öðru þá má misbeita þeim, hvort sem er viljandi eða óvilj- andi. Það verður að meta árangur þeirra í siðfræðilegu samhengi og með það í huga í hvers konar þjóðfélagi við viljum búa í.“ segir í greininni. Veikur lagagrundvöllur Til er félag áhugafólks um Downs heilkenni. Á síðasta ári sagði þáver- andi formaður félagsins Jóna María Ásmundsdóttir í viðtali á visir.is að það væri sláandi að fólk væri hrætt við eitthvað sem er öðru vísi, en það værie kkert skelfilegt að eignast barn með Downs heilkenni. Jóna María segir að spyrja megi hvort það sé siðferði- lega rétt að geta sigtað út eytt. Núver- andi formaður er Þórdís Ingadóttir og hún benti á veikan lagagrundvöll fyrir fóstureyðingunum nýlega á fundi Mannerfðafræðilegs Íslands. Hún segir að Downs heilkennið sé erfðafræðilegur breytileiki og hafnar læknisfræðilegu skilgreiningunni um vansköpun eða alvarlegan sjúkdóm. Þórdís bendir á að heilsa einstaklinga með Downs sé yfirleitt góð og það sem upp kemur sé yfirleitt meðhöndlan- legt með nokkuð auðveldum hætti. Lífslíkur einstaklinga með Downs nú eru 60 ár en voru aðeins 9 ár árið 1930. Bæði félag áhugafólks um Downs heilkennið og landssam- tökin Þroskahjálp gera út frá þessu viðhorfi að Downs einstaklingar séu heilbrigðir athugasemdir við laga- grundvöllinn sem allt ferlið hvílir á. Þroskahjálp segir á heimasíðu sinni að „fósturskimun fyrir þungaðar konur í leit að frávikum varðar manngildið í okkar þjóðfélagi“ og að samtökin telji það ekki verkefni heilbrigðisyfirvalda að leita að lágri greind í móðurkviði. Samtökin telja óeðlilegt að heilbrigð- isstarfsemnn einir ákvarði hvernig þessum málum er skipað og segja það samfélagsins og þjóðkjörinna fulltrúa að móta stefnuna. Bent er á alþjóðlega samninga sem Ísland er aðili að auk ákvæði í lögum til stuðnings því að fatlaðir einstak- lingar eigi sama rétt til lífs og lífskjara og aðrir þjóðfélagsþegnar. Nefna má ákvæði 1. gr. laga um málefni fatlaðs fólks frá 1992 sem kveður á um að við framkvæmd laganna skuli tekið mið af alþjóðlegum samningum sem íslensk stjórnvöld hafi gengist undir og ákvæði í Mannréttindasáttmála Evrópu sem lögfestur var 1994, þar sem kveðið er á um réttinn til lífs og um bann við mismunun. Af al- þjóðlegum samningum er vísað til Sáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi einstaklinga með fatlanir þar sem kveðið er á um virðingu fyrir fjölbreytileika og viðurkenningu á fötluðu fólki sem hluta af mann- legum margbreytileika og mannkyni. Einnig er vísað til alþjóðasamningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins og um sáttmála um bann við hópmorði. Fleiri samþykktir og samningar eru undir en verða ekki fleiri taldir upp hér. Alvarlegur trúnaðarbrestur Niðurstaðan af athugun á þessu máli er að það er alvarlegur skoðanaágrein- ingur og trúnaðarbrestur milli heil- brigðiskerfisins, einkum læknanna og foreldra og aðstandenda einstaklinga með Downs heilkennið sem kemur fram í gerólíkri afstöðu til einkenn- isins. Heilbrigðiskerfið lítur á litn- ingafrávikið sem galla sem æskilegt er að eyða en í hinni afstöðunni er litið á einstaklingana með einkennið sem einstaklinga í mannlífsflórunni , öðrum jafnréttháir til lífs og lífskjara. Það sem tæknin gerir kleift hefur sínar siðferðilegu hliðar og þjóðfé- lagið hefur vanrækt að leiða umræðu um þær til ásættanlegrar niðurstöðu. Fósturskimun er ekki einkamál nokkurra heilbrigðisstarfsmanna. Gunnlaugur Stefánsson : Hvað á að aðskilja? 17. nóvember 2015 Gallup spyr í skoðana-könnunum sínum hvort aðskilja eigi kirkju og ríki. Með spurningunni gefur Gallup út skýr skilaboð, að kirkja og ríki séu saman eitt. Það er tæpast pólitísk afstaða, langtum fremur ábyrgðar- laus áróður. Nú á Gallup mikið undir trúverðugleika og trausti, en grefur undan því með þátttöku í þessum leik. Fyrirtækið fer án efa að ríkis- lögum í rekstri sínum og gerir samn- inga við ríkið. Er þá fyrirtækið rík- isrekið og spyr næst: „Viltu aðskilja ríki og Gallup“? Einu sinni var Ögmundur Jón- asson, þáverandi innanríkisráð- herra, spurður í fjölmiðlum hvort hann vildi aðskilja ríki og kirkju. Hann svaraði að bragði: „Hvað á að aðskilja“? Þá varð ekkert um svör. Björn Bjarnason, þáverandi kirkjumálaráðherra, sagði frá því á kirkjuþingi fyrir nokkrum árum, að nú væri ekkert eftir af rekstri og verkefnum kirkjunnar í ráðuneytinu nema, að ráðherra gæfi út gjaldskrá fyrir aukaverk presta. Allt annað væri í umsjá kirkjunnar sjáfrar. Enda er hverjum manni ljóst, sem les lögin um Þjóðkirkjuna frá árinu 1998, að hún er sjálfstæð og aðskilin frá ríkinu. Það er kjarninn í lögunum. Krafan um aðskilnað ríkis og kirkju er því aumkunarverð tímaskekkja og kæfir alla skynsamlega umræðu um skipan trúmála í landinu. En ríki og kirkja eiga með sér traust samstarf eins og gildir um fjölmörg félög og fyrirtæki í landinu, starfa samkvæmt lögum og gera samninga við ríkið af ýmsum toga. T.d. eru lög um skipulag og rekstur fjármálafyr- irtækja langtum ítarlegri, en lögin um kirkjuna. Engum dettur í hug að þau þurfi að aðskilja frá ríkinu, nema þau séu eign þess. Hvergi í lögum er kveðið á um að ríkið eigi kirkjuna, þvert á móti, þar sem lögð er áhersla á að hún sé sjálfstæð og lúti eigin stjórn og skipulagi. Samningur ríkis og kirkju um kirkjujarðirnar frá 1997 hefur gjarnan verið nefndur sem dæmi um sérstaklega náin ríkistengsl kirkjunnar. En þau, sem skoða þann samning, sjá strax að er viðskipta- samningur á sjálfbærum grunni, og ekki síst hagstæður ríkinu sem fékk til fullra umráða kirkjueignirnar og arðinn af þeim. Þar á meðal eru dýr- ustu jarðir landsins og verða sumar aldrei metnar til fjár. Í afgjald fyrir jarðirnar greiðir ríkið m.a. laun 138 prestsembætta, sem hefur með niður- skurði undanfarinna ára fækkað í 107 embætti. Nú má eflaust hugsa sér annað fyr- irkomulag á samingnum, en breytir því ekki, að jarðirnar eru eign kirkj- unnar og verða ekki frá henni teknar, án þess að gjald komi fyrir, og enginn breytir því með óskhyggju sinni. Þá gæti komið til álíta, að ríkið þjóðnýti jarðirnar. Ef til vill hafa ungir sjálf- stæðismenn hafat það í huga á lands- fundi Sjálfstæðisflokksins í kröfu sinni um aðskilnað rikis og kirkju, og yrði þá stærsta þjóðnýting sem fram hefur farið á Íslandi. Ég hefði búist við, að ungliðum Vinstri grænna og Samfylkingar gæti frekar dottið slíkt í hug, hvað sem það mundi svo kosta íslenska skattgreiðendur. En sú að- gerð myndi á engan hátt breyta stöðu kirkjunnar sem yrði áfram sjálfstæð og aðskilin frá ríkinu eins og hún er í núna. Annar aðaltekjustofn kirkjunnar eru sóknargjöldin, elstu félagsgjöld á Íslandi, og ríkið innheimtir fyrir öll trú-og lífsskoðunarfélög í gegnum skattkerfið. Það er þekkt, að ríkið innheimti félagsgjöld fyrir atvinnu- -og félagslífið í landinu. Þess nýtur t.d. Siðmennt. Er það þá ríkisrekið lífsskoðunarfélag og þurfi að aðskilja frá ríkinu? Eða verklýðsfélögin sem ríkið innheimtir ýmis gjöld fyrir, t.d. félagsgjöldin af starfsfólki sínu. Að vísu hefur ríkið undanfarin ár tekið væna sneið af sóknargjöldunum í sinn eigin rekstur og nemur nærri fjórðungi gjaldsins. Líklega hafa engin frjáls mannúðarfélög eins og trúfélögin greitt annað eins í aukaskatt í ríkissjóð af lögbundnum tekjum sínum. Einnig er bent á, að prestarinir séu opinberir embættismenn. Það er rétt, en ekki ríkisins, heldur kirkj- unnar sem borgar þeim laun með afgjaldinu af kirkjujörðunum. Enda skipar Biskup presta í embætti, en ekki ráðherra, eins og áður gilti. Þar skilur á milli og ítrekar aðskilnað og sjálfstæði kirkjunnar frá ríkinu. En með því að vera opinberir embætt- ismenn, þá falla prestarnir undir við- komandi lög um réttindi og skyldur, ekki síst vegna almannaþjónustunnar sem þeir veita, og almenningur hefur mikla hagsmuni af og eðlilegt er að vernda með skýrum ákvæðum laga. Þá er oft haft á orði að kirkjan sé ríkisrekin með ákvæðinu í 62. gr. stjórnarskrárinnar. Þar stendur: „Hin evangelíska lúterska kirkja skal vera Þjóðkirkja á Íslandi og skal ríkisvaldið að því leyti styðja hana og vernda“. Hér er engin skipun um ríkiskirkju. Þvert á móti. Það er aðskilið á milli kirkju og ríkis. Margir einblína þá á verndina og stuðninginn við kirkj- una, en þá er það skilyrt. Ákvæðið felur í sér, að Þjóðkirkjan sé evang- elísk og lútersk, og „að því leyti“ njóti hún verndar og stuðnings. Þetta er því ekki síður yfirlýsing um stuðning og vernd við ræktun menningar á kristnum grunni. Um þetta ákvæði var kosið í þjóðaratkvæðagreiðslunni um stjórnarskrána, þar sem lagt var til að það yrði afnumið. Því var hafnað með afgerandi meirihluta og var ein- asta tillagan í þeirri atkvæðagreiðslu sem þjóðin hafnaði. Hér er einmitt komið að kjarna máls. Þjóðkirkjan er samofin sögu og menningu þjóðarinnar og hefur umsjón með dýrmætum menningar- verðmætum, boðar og ræktar kristinn sið um mannréttindi, frelsið, helgi lífs og virðingar sem hefur mótað samfélög Norðurlanda um aldir, þar sem lútersk menning og gildismat festi dýpstu rætur. Þar standa ríki og kirkja náið saman um að rækta sambúð kristni og þjóðar. Viljum við breyta því? Gallup gæti spurt um það. Snorri og Þórdís með dætrum sínum tveimur, Ágústu Hlín og védísi eir. Mynd: visir.is Mynd: Þroskahjálp. Jóna maría Ásmundsdóttir. Mynd: visir.is Gunnlaugur Stefánsson sóknar- prestur í Heydölum

x

Vestfirðir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestfirðir
https://timarit.is/publication/1082

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.