Fréttablaðið - 04.03.2016, Blaðsíða 6
Vinnumarkaður „Það er mjög
fátítt að það komi kvartanir um
kynferðislega áreitni á okkar borð
og það kemur á óvart í allri þessari
vitundarvakningu sem hefur orðið
síðustu misseri um kynbundið
ofbeldi. Fólk er meðvitað um að
sætta sig ekki við einelti, en svo
virðist sem annað gildi um kyn-
ferðislega áreitni,“ segir Sonja Ýr
Þorbergsdóttir, lögfræðingur BSRB.
Sonja mun skýra nýjar reglur um
kynferðislega áreitni sem tóku gildi
í nóvember á síðasta ári á hádegis-
verðarfundi sem haldinn verður í
tilefni af alþjóðlegum baráttudegi
kvenna þann 8. mars.
Hún telur að með aukinni
fræðslu um kynferðislega áreitni
á vinnustöðum og skyldur
atvinnurekanda sé hægt að opna
umræðuna. Skýrsla Alþjóðasam-
bands verkalýðsfélaga sýni að um
helmingur kvenna á vinnumarkaði
verði fyrir áreitni. „Atvinnurek-
endur eiga með nýjum reglum að
vernda starfsfólk sitt. Bæði er þeim
skylt að meta áhættuþætti í starfi
og gera áætlun um forvarnir, þar
sem á að tilgreina aðgerðir og við-
brögð.“
„Þolendur eiga erfitt með að stíga
fram, það eru ýmsar mýtur sem
valda því,“ segir Finnborg Salome
Steinþórsdóttir, doktorsnemi í
kynjafræði við stjórnmálafræði-
deild Háskóla Íslands. „Mýturnar
draga úr alvarleika áreitni, áreitnin
er kannski sett í einhvern grínbún-
ing og lítið gert úr viðbrögðum. Ég
ætla að fjalla um vandann út frá
kynjaðri menningu og samfélaginu
sem við búum í,“ segir hún.
Finnborg nefnir að bæði karlar
og konur verði fyrir kynbundinni
og kynferðislegri áreitni. Konur þó
í meiri mæli. „Konur upplifa frekar
áreitni frá samstarfsmönnum
og yfirmönnum en karlar frekar
frá þeim sem þiggja þjónustu frá
þeim.“ kristjanabjorg@frettabladid.is
Þolendur eiga erfitt
með að stíga fram
Fátítt er að fólk sem hefur orðið fyrir kynbundinni og kynferðislegri áreitni á
vinnustöðum ræði það opinberlega. Um helmingur kvenna á vinnumarkaði
hefur orðið fyrir áreitni samkvæmt skýrslu Alþjóðasambands verkalýðsfélaga.
Meira en helmingur
kvenna og fjórðungur karla í
þjónustugeiranum á Íslandi
hefur orðið fyrir kynferðis-
legri áreitni. Konur upplifðu
skerta öryggistilfinningu á
vinnustaðnum í kjölfarið.
Rannsókn SGS og RIKK
Kynbundið áreiti Hegðun sem
tengist kyni þess sem fyrir henni
verður, er í óþökk viðkomandi og
hefur þann tilgang eða þau áhrif að
misbjóða virðingu viðkomandi og
skapa aðstæður sem eru ógnandi,
fjandsamlegar, niðurlægjandi,
auðmýkjandi eða móðgandi fyrir
viðkomandi.
Kynferðisleg áreitni Hvers
kyns kynferðisleg hegðun sem
er í óþökk þess sem fyrir henni
verður og hefur þann tilgang eða
þau áhrif að misbjóða virðingu við-
komandi, einkum þegar hegðunin
leiðir til ógnandi, fjandsamlegra,
niðurlægjandi, auðmýkjandi eða
móðgandi aðstæðna. Hegðunin
getur verið orðbundin, táknræn
og/eða líkamleg.
Ofbeldi Hvers kyns hegðun sem
leiðir til, eða gæti leitt til, líkamlegs
eða sálræns skaða eða þjáninga
þess sem fyrir henni verður, einn-
ig hótun um slíkt, þvingun eða
handahófskennd svipting frelsis.
Frá kr.
74.900
m/morgunmat
BARCELONA
PRAG
LJUBLJANA
BORGARFERÐ
Frá kr. 89.900
sértilboð
Netverð á mann m.v.
2 í herbergi með
morgunmat.
23. mars í 5 nætur.
Frá kr. 74.900
m/bók.afsl.
Netverð á mann m.v.2 í
herbergi með morgunmat.
5. maí í 4 nætur.
Frá kr. 98.900
Netverð á mann m.v.
2 í herbergi með
morgunmat.
13. maí í 3 nætur.
Hotel 4
Barcelona
Hotel ILF
Hotel Park
Bir
t m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
r r
étt
til
le
iðr
étt
ing
a á
sl
íku
. A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fy
rir
va
ra
.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
73
93
0
23.-28. mars
Sértilboð
21.-25. apr I 5.-9. maí
13.-16. maí
Skelltu þér í
RÓM
Frá kr. 99.900
sértilboð
Netverð á mann m.v.
2 í herbergi með
morgunmat.
28. apríl í 4 nætur.
Hotel
Presidente
28. apr -2. maí
Sértilboð
VALENCIA
Frá kr. 94.900
Netverð á mann m.v.
2 í herbergi með
morgunmat.
5. maí í 4 nætur.
Exe Rey
Don Jaime
5.-9. maí
Bók.afsl.
Jose Manuel Coelho, þingmaður Verkamannaflokks Portúgals (PTP), brá í mótmælaskyni á það ráð á
svæðisþinginu í Madeira að afklæðast og afhenda föt sín forseta þingsins. Með þessu vildi þingmaðurinn
mótmæla sekt sem hann var dæmdur til að greiða og hýrudrætti sem fylgdi í kjölfarið. Fréttablaðið/EPa
Óvænt uppákoma
4 . m a r s 2 0 1 6 F Ö s T u D a G u r6 F r é T T i r ∙ F r é T T a B L a ð i ð
0
4
-0
3
-2
0
1
6
0
4
:1
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
A
9
-E
C
B
0
1
8
A
9
-E
B
7
4
1
8
A
9
-E
A
3
8
1
8
A
9
-E
8
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
5
6
s
_
3
_
3
_
2
0
1
6
C
M
Y
K