Fréttablaðið - 04.03.2016, Blaðsíða 12
af seldum
lítra renna til
Samhjálpar
í dag
Í dag renna 2 krónur af hverjum lítra til Kaffistofu
Samhjálpar Borgartúni 1. Notaðu dælulykilinn og
styrktu gott málefni í leiðinni.
ww.samhjálp.is
lykilLinn
að lægra
verði
kr.2
Fyrirtæki taka yfir heilu
göturnar
Er það að takast? Það er mikill hús-
næðisvandi, ungt fólk á erfitt með að
eignast íbúð og það er dýrt að leigja.
„Þess vegna eru húsnæðismálin
stóru málin hjá borginni og borgar-
stjórninni,“ segir Dagur.
Eru þau í forgangi? Er ekki bara
verið að byggja hótel og hitt situr á
hakanum? „Nei, nei, nei, húsnæðis-
málin hafa verið í algjörum forgangi.
Við erum búin að skipuleggja deili-
skipulag fyrir 4.400 íbúðir. Það er
annað eins í pípunum, mörg ný
svæði og hverfi sem eru að koma
sterk inn. Við erum að vinna með
stúdentum, skrifuðum undir samn-
ing við HÍ um 300 nýjar stúdenta-
íbúðir á svæðinu. Við erum nýbúin
að samþykkja skipulag um 350 nýjar
stúdentaíbúðir fyrir HR. Þetta eru
alls 4.400 íbúðir um alla borg sem
eru komnar á skipulag. Það eru tæp-
lega 2.000 komnar í byggingu. Það
er verið að vinna í jarðvinnu fyrir
aðrar 700. Þetta er mál málanna en
tekur allt tíma. Það er alveg rétt að
ferðaþjónustan hefur verið að setja
ákveðna pressu á leigumarkaðinn
með útleigu til ferðamanna, sér-
staklega miðsvæðis. Það er að hluta
til jákvætt að fólk hafi frekar efni
á að búa í íbúðunum sínum þegar
það leigir út frá sér. En þegar þetta
er orðið þannig að það eru einstaka
fyrirtæki farin að taka yfir nánast
heilu göturnar og ýta íbúðahverfinu
út þá er ég ekki sáttur.“
En ertu þá sáttur? Þessi þróun í
miðborginni er staðreynd. „Mið-
borgin er að þróast þannig og þess
vegna höfum við sett fram hug-
myndir um að fólk eigi auðveldara
með að fá leyfi til að leigja út frá sér
tímabundið, kannski 2-3 mánuði á
ári, gegn því að það sé þá ekki gert
hina mánuðina. Þá verði leigumark-
aðurinn fyrir veturinn þegar mikil
eftirspurn er eftir leiguhúsnæði fyrir
námsmenn öruggari. Síðan ætlum
við að fjölga leigu- og búsetaréttar-
íbúðum um 2.500-3.000.“
Sigmundur Davíð úr takti
Mikið hefur verið rætt um áhuga
forsætisráðherra á skipulagsmálum
í borginni. Heldurðu að Sigmundur
Davíð sé að undirbúa borgarstjóra-
framboð?
„Góð spurning,“ segir Dagur og
hlær. „Það er öllum velkomið að
bjóða sig fram, ef þeir búa í Reykja-
vík,“ heldur hann áfram, en Sig-
mundur hefur ekki lögheimili í
Reykjavík. Dagur segir alla umræðu
um skipulagsmál skemmtilega og
hún fái óhjákvæmilega meiri athygli
ef forsætisráðherra tekur þátt.
„Mér finnst hann hins vegar,
hvernig hann fer í þetta, vera úr
takti við það sem er raunverulega
að gerast. Ólíkt því sem maður gæti
haldið þegar maður hlustar á hann
þá erum við líklega á einhverju
mesta húsverndarskeiði í sögunni.
Þetta finnst mér mikilvægt – að við
séum að halda í söguna og vernda
hús í Reykjavík, einmitt þegar við
erum að byggja upp. En hverjir eru
umdeildustu reitirnir sem hann
hefur beitt sér mest í? Það eru ekki
reitir þar sem verið er að rífa gömul
hús, heldur bílastæði sem verið
er að byggja á. Tollstöðvarplanið,
bílastæðið við hlið Íslandsbanka
í Lækjargötu. Þetta snýst kannski
meira um smekk á arkitektúr.“
Breytt borg getur haft sína kosti
Ferðamönnum hefur fjölgað mikið
og hafa mörg ný hótel verið opnuð
í miðborginni auk þess sem versl-
unum sem selja ferðamannavarning
hefur fjölgað. Er miðborgin ekki að
missa sjarmann og Íslendingar sækja
síður í miðborgina en áður? „Það er
umræða sem hefur verið alveg frá
því að Kringlan var byggð 1986. Að
miðborgin sé á fallanda fæti. Það var
mikil krísa í miðborginni fyrir 10-15
árum. Það var lítil fjárfesting, það
var ekki verið að gera upp húsin.
Annað hvert verslunarhúsnæði
var tómt, veitingastaðir voru um
tíma að taka þetta alveg yfir. Þá var
settur kvóti á veitingastaðina. Ferða-
þjónustan tók við sér. Gríðarlegum
fjölda íbúða var bætt við í miðbæn-
um og við erum að halda því áfram.
Þetta hefur leitt til þess að núna er
slegist um verslunarplássin. Það
er í grunninn jákvætt en auðvitað
þýðir það að einhverjar rótgrónar
verslanir sem hafa verið þarna geta
ekki keppt við leiguna sem hönn-
unarbúðir og búðir sem selja ferða-
↣
mönnum eru tilbúnar að greiða.
Það er eitt í þessari þróun sem mér
finnst hafa farið fram hjá ótrúlega
mörgum, að í gegnum þetta erum
við búin að endurskoða deiluskipu-
lag mjög víða. Hús sem áður átti að
rífa fá að standa, þau eru gerð fallega
upp, jafnvel eftir eldri teikningum,
þau eru færð í upprunalegt horf.“
Hann skilur þó áhyggjur borgar-
búa. „Akkúrat núna þegar við
erum í miðjum framkvæmdafasa
þá skil ég að uppi séu áhyggjur af
ýmsu sem er að gerast. Ég held að
myndin sé miklu blandaðri, miklu
fleiri jákvæðir hlutir sem koma
með en við gleymum að tala um í
miðjum framkvæmdafasanum. Ef
við höldum rétt á þessu þá held ég
að verið sé að þróa borg sem er jafn-
vel áhugaverðari og skemmtilegri en
áður þó hún sé svolítið breytt.“
Borgin þarf að segja stopp
Er jafn eftirsóknarvert fyrir ferða-
menn að koma þegar verður allt fullt
af hótelum og lundabúðum? Var fólk
ekki að sækja í gömlu stemminguna?
„Ég held þú viljir ekki fara til borg-
ar þar sem eru bara hótel og túrista-
búðir. Þess vegna erum við búin að
setja stopp á fleiri hótel í kvosinni,
erum að skoða að setja líka hótel-
kvóta á Laugaveg og Hverfisgötu.
Við erum að beina hóteluppbygg-
ingu upp með Suðurlandsbraut og
inn á Grensásveg. Við viljum dreifa
álagi. Við teljum að fjárfesting sem
fylgir ferðaþjónustu geti verið góð
fyrir götu eins og Grensásveg, Skeif-
una og blanda af hótelum, íbúðum
og einhverju nýju megi smitast inn
í Ármúlann, Skeifuna og fleiri svæði.
Galdurinn er að finna rétta blöndu,
ekkert má yfirgnæfa annað á einu
svæði. Borgin þarf að vera óhrædd
við að segja stopp. Við tölum stund-
um eins og það sé ekki fólk á bak við
þessi fyrirtæki og við ráðum þessu
ekki. Ég vil vara hvern og einn, sem
er í þessum rekstri og er að markaðs-
setja sig gagnvart ferðamönnum, við
því að fara klína stórum límmiðum
um ódýrasta hamborgarann í rúð-
urnar og Benidorm-væða þetta. Við
eigum ekki að láta gróðavonina eða
græðgi eða stress yfir að fylla ekki
staðinn í dag ná yfirtökum. Við
eigum að standa saman um að reka
stað fyrir Reykjavík og gesti borgar-
innar, við eigum að vera stolt af því
hver við erum. Við þurfum enga
„flashy“ límmiða á rúðurnar. Þetta
þarf ekki að vera sjoppulegt til að
fá viðskipti. Ég held það sé þvert á
móti þannig að viðskiptin fara til
þeirra sem eru með gæði á sann-
gjörnu verði. Þegar verið er að bjóða
upp á eitthvað sem er ekki nógu gott
á of háu verði þá hef ég ekki trú á að
þeir staðir lifi. Ég held við verðum
aðeins að minna okkur sjálf á að við
ráðum þessu, þeir sem eiga þessa
staði. Þó að þetta virðist vera að ger-
ast hratt þá eigum við að varðveita
Reykjavík, karakterinn, stoltið yfir
því sem við erum. Dreifa eins og við
getum. Tryggja fjölbreytnina. Halda
því sem sérkennir okkur.“
Vill vera fjögur ár í viðbót
Dagur segist vilja vera borgarstjóri
lengur en eitt kjörtímabil þar sem
fjögur ár séu í það stysta til að gera
breytingar. „Það er hægt að gera
margt en ég held að við myndum
ekki ná að fylgja öllu eftir nema við
fengjum umboð í annað kjörtíma-
bil. Það er eitthvað sem ég myndi
vilja stefna að.“
En hvernig heldurðu að landslagið
í flokkapólitíkinni verði þá? Muntu
bjóða þig fram fyrir Samfylkingu?
„Ég treysti mér ekki til að spá því
hvernig flokkalandslagið verður, ég
held það sé deigla og mikilvægt að
muna að flokkar eru fyrst og fremst
tæki til að vinna að því sem maður
trúir á. Í mínu tilfelli er það jafnað-
arhugsjónin sem er markmiðið. Það
hefur gefið á bátinn hjá Samfylking-
unni. Mín tilfinning er sú að býsna
stór hluti Íslendinga sé einhvers
konar jafnaðarmenn. Þeir kannski
skilgreina sig ekki þannig en jafn-
aðarstefnan og norræn sýn á sam-
félag eiga hljómgrunn hjá mörgum.
Það er kannski ógæfa vinstri flokk-
anna og Samfylkingar að hafa ekki
náð nema stuttum köflum. Annars
get ég ekki kvartað. Samfylkingin
fékk 32% í síðustu borgarstjórnar-
kosningum. Þannig að ég held við
megum ekki vera of dramatísk. Að
hluta til er stóra breytingin sú að
fólk er ekki svona eða hinsegin fyrir
lífstíð. Sjálfstæðismaður eða sam-
fylkingarmaður. Fólk áskilur sér rétt
til að velja í næstu kosningum jafn-
vel annað en það kaus síðast. Stjórn-
málin verða þá að mæta því að það
eru allir hugsanleg atkvæði. Enginn
sem þú getur tekið sem gefnum. Þú
þarft að standa þig, geta sýnt fram á
samhengi þess sem þú segist trúa á
og þess sem þú ert að gera.“
Ég held þú viljir
ekki fara til borgar
þar sem eru bara hótel og
túristabúðir. Þess vegna
erum við búin að setja stopp
á fleiri hótel í kvosinni
Dagur er ekki sáttur við að fasteignafyrirtæki taki heilu göturnar yfir.
FréttaBlaðið/Ernir
4 . m a r s 2 0 1 6 F Ö s T U D a G U r12 F r é T T i r ∙ F r é T T a B L a ð i ð
0
4
-0
3
-2
0
1
6
0
4
:1
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
A
9
-E
7
C
0
1
8
A
9
-E
6
8
4
1
8
A
9
-E
5
4
8
1
8
A
9
-E
4
0
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
5
6
s
_
3
_
3
_
2
0
1
6
C
M
Y
K