Fréttablaðið - 04.03.2016, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 04.03.2016, Blaðsíða 26
Þetta er algeng sjón. Pör sitja saman en yrða ekki hvort á annað. Símarnir taka alla athygli. MYND/GETTY Háskólinn í Toronto rannsakaði sambönd og Facebook-notkun og komst að því að þegar annar að- ilinn í sambandinu póstar sífellt gleðimyndum af sér með kærast- anum/kærustunni sé líklega verið að blekkja vinina á Face book. Sam- bandið sé ekki jafn sterkt og það virðist vera. Gleðimyndir eru not- aðar til að fela vandamálin. Sam- bandið getur auk þess dofnað ef annar aðilinn setur inn persónuleg- ar myndir án þess að spyrja mak- ann um leyfi. Alltaf ætti að spyrja sig áður en myndum er dreift á netið hvort þær eigi í raun heima þar. Vinasamband við gamlan kær- asta/kærustu á Face book getur sömuleiðis haft neikvæð áhrif á sambandið. Afbrýðisemi Þá hefur verið sýnt fram á að Face book getur aukið afbrýðisemi meðal para sem verði til þess að þau verji enn meiri tíma á sam- félagsmiðlum. Margar rannsókn- ir hafa farið fram á háskólanem- um og notkun þeirra á Facebook, sérstaklega þeim sem eru í föst- um samböndum. Facebook getur haft neikvæð áhrif á sambönd. Notkun á samfélagsmiðlum verð- ur oft ávanabindandi með þeim af- leiðingum að fólk talar ekki saman augliti til auglitis. Háskólanemar eru upplagðir í rannsóknir af þess- um toga þar sem sá vettvangur er mikið notaður til að miðla félags- legu tengslaneti í skólum og gæti haft áhrif á þetta unga fólk þegar það kemur út í atvinnulífið, þarf að stofna fjölskyldu og takast á við hið raunverulega líf. Mikil umræða hefur skapast á undanförnum árum um að sam- skipti fólks séu að breytast. Sú breyting blasir hvarvetna við þar sem fólk kemur saman. Flestir með hugann við símann fremur en fé- lagsskapinn í kring um sig. Aukið félAgslíf Rannsókn sem gerð var í Dan- mörku í fyrrahaust sýndi að fólk sem hætti að nota Facebook og eyddi prófílnum leið betur strax að viku liðinni en þeim sem héldu áfram að nota samfélagsmiðil- inn. Alls tóku 1.095 manns þátt í könnuninni og var þeim skipt í tvo hópa, annan sem hætti á Facebook og hinn sem hélt áfram að fylgjast með vinum sínum. Um 88 prósent þeirra sem hættu á Facebook töldu sig hamingjusamari eftir að hafa lokað aðgangi sínum. Þeir sögðust jafnframt hafa aukið félagslíf sitt og ættu betra með að einbeita sér að einföldustu verkum. siðferði Facebook er líka sögð geta aukið líkur á depurð og þunglyndi. Um- ræða um siðferði á samfélagsmiðl- um er alltaf að verða sterkari víða um heim. Í Svíþjóð er mikil um- ræða þessa dagana um siðferði á netinu. Sænski netmiðillinn Ex- pressen spyr hvort internetið og samfélagsmiðlar veiti einhverj- um gleði. Það er auðvitað ögr- andi spurning á tímum Facebook, Twitter og Instagram. Svenska Dagbladet hefur undanfarið fjallað mikið um siðferði og netheima og sömuleiðis Dagens Nyheter. Víst er að þessi umræða er á byrjun- arstigi og á án nokkurs vafa eftir að aukast mikið víða um heim, sér- staklega með tilliti til hatursorð- ræðu sem hefur aukist mikið á samfélagsmiðlum. elin@365.is HAmingjAn er ekki á fAcebook Samkvæmt niðurstöðum rannsókna sem gerðar hafa verið hjá bandarískum og kanadískum háskólum hefur Facebook-notkun mikil áhrif á ástarsamband. Pör eru ekki alltaf sammála um hversu langt á að ganga í að pósta myndum sem sýna skemmtilegar eða gleðilegar stundir í lífi þeirra. Það getur aukið mjög á togstreitu í sambandinu. Instagram, fyrirtæki sem Facebook hefur keypt á milljarða Bandaríkjadala. Tilvalið í veisluna eða á hlaðborðið. Fást í öllum helstu matvöruverslunum og í fiskborði stórmarkaðanna. Árstíðabundnar vörur sem hafa slegið í gegn Frískleg og ljómandi fyrir ferminguna Fæst á Academie snyrtistofum, flestum verslunum Lyfju og í Hagkaup Kringlunni, Smáralind og Skeifunni. Bronz´express Brúnkuvökvi sem virkar strax og gefur einstaklega fallegan og náttúrulegan lit. Hentar öllum húðtegundum. 4 . m a r s 2 0 1 6 F Ö s T U D a G U r6 F ó l k ∙ k y n n i n G a r b l a ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ i ∙ l í F s s T í l l 0 4 -0 3 -2 0 1 6 0 4 :1 9 F B 0 5 6 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 8 A 9 -F 1 A 0 1 8 A 9 -F 0 6 4 1 8 A 9 -E F 2 8 1 8 A 9 -E D E C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 5 6 s _ 3 _ 3 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.