Fréttablaðið - 04.03.2016, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 04.03.2016, Blaðsíða 12
 af seldum lítra renna til Samhjálpar í dag Í dag renna 2 krónur af hverjum lítra til Kaffistofu Samhjálpar Borgartúni 1. Notaðu dælulykilinn og styrktu gott málefni í leiðinni. ww.samhjálp.is lykilLinn að lægra verði kr.2 Fyrirtæki taka yfir heilu göturnar Er það að takast? Það er mikill hús- næðisvandi, ungt fólk á erfitt með að eignast íbúð og það er dýrt að leigja. „Þess vegna eru húsnæðismálin stóru málin hjá borginni og borgar- stjórninni,“ segir Dagur. Eru þau í forgangi? Er ekki bara verið að byggja hótel og hitt situr á hakanum? „Nei, nei, nei, húsnæðis- málin hafa verið í algjörum forgangi. Við erum búin að skipuleggja deili- skipulag fyrir 4.400 íbúðir. Það er annað eins í pípunum, mörg ný svæði og hverfi sem eru að koma sterk inn. Við erum að vinna með stúdentum, skrifuðum undir samn- ing við HÍ um 300 nýjar stúdenta- íbúðir á svæðinu. Við erum nýbúin að samþykkja skipulag um 350 nýjar stúdentaíbúðir fyrir HR. Þetta eru alls 4.400 íbúðir um alla borg sem eru komnar á skipulag. Það eru tæp- lega 2.000 komnar í byggingu. Það er verið að vinna í jarðvinnu fyrir aðrar 700. Þetta er mál málanna en tekur allt tíma. Það er alveg rétt að ferðaþjónustan hefur verið að setja ákveðna pressu á leigumarkaðinn með útleigu til ferðamanna, sér- staklega miðsvæðis. Það er að hluta til jákvætt að fólk hafi frekar efni á að búa í íbúðunum sínum þegar það leigir út frá sér. En þegar þetta er orðið þannig að það eru einstaka fyrirtæki farin að taka yfir nánast heilu göturnar og ýta íbúðahverfinu út þá er ég ekki sáttur.“ En ertu þá sáttur? Þessi þróun í miðborginni er staðreynd. „Mið- borgin er að þróast þannig og þess vegna höfum við sett fram hug- myndir um að fólk eigi auðveldara með að fá leyfi til að leigja út frá sér tímabundið, kannski 2-3 mánuði á ári, gegn því að það sé þá ekki gert hina mánuðina. Þá verði leigumark- aðurinn fyrir veturinn þegar mikil eftirspurn er eftir leiguhúsnæði fyrir námsmenn öruggari. Síðan ætlum við að fjölga leigu- og búsetaréttar- íbúðum um 2.500-3.000.“ Sigmundur Davíð úr takti Mikið hefur verið rætt um áhuga forsætisráðherra á skipulagsmálum í borginni. Heldurðu að Sigmundur Davíð sé að undirbúa borgarstjóra- framboð? „Góð spurning,“ segir Dagur og hlær. „Það er öllum velkomið að bjóða sig fram, ef þeir búa í Reykja- vík,“ heldur hann áfram, en Sig- mundur hefur ekki lögheimili í Reykjavík. Dagur segir alla umræðu um skipulagsmál skemmtilega og hún fái óhjákvæmilega meiri athygli ef forsætisráðherra tekur þátt. „Mér finnst hann hins vegar, hvernig hann fer í þetta, vera úr takti við það sem er raunverulega að gerast. Ólíkt því sem maður gæti haldið þegar maður hlustar á hann þá erum við líklega á einhverju mesta húsverndarskeiði í sögunni. Þetta finnst mér mikilvægt – að við séum að halda í söguna og vernda hús í Reykjavík, einmitt þegar við erum að byggja upp. En hverjir eru umdeildustu reitirnir sem hann hefur beitt sér mest í? Það eru ekki reitir þar sem verið er að rífa gömul hús, heldur bílastæði sem verið er að byggja á. Tollstöðvarplanið, bílastæðið við hlið Íslandsbanka í Lækjargötu. Þetta snýst kannski meira um smekk á arkitektúr.“ Breytt borg getur haft sína kosti Ferðamönnum hefur fjölgað mikið og hafa mörg ný hótel verið opnuð í miðborginni auk þess sem versl- unum sem selja ferðamannavarning hefur fjölgað. Er miðborgin ekki að missa sjarmann og Íslendingar sækja síður í miðborgina en áður? „Það er umræða sem hefur verið alveg frá því að Kringlan var byggð 1986. Að miðborgin sé á fallanda fæti. Það var mikil krísa í miðborginni fyrir 10-15 árum. Það var lítil fjárfesting, það var ekki verið að gera upp húsin. Annað hvert verslunarhúsnæði var tómt, veitingastaðir voru um tíma að taka þetta alveg yfir. Þá var settur kvóti á veitingastaðina. Ferða- þjónustan tók við sér. Gríðarlegum fjölda íbúða var bætt við í miðbæn- um og við erum að halda því áfram. Þetta hefur leitt til þess að núna er slegist um verslunarplássin. Það er í grunninn jákvætt en auðvitað þýðir það að einhverjar rótgrónar verslanir sem hafa verið þarna geta ekki keppt við leiguna sem hönn- unarbúðir og búðir sem selja ferða- ↣ mönnum eru tilbúnar að greiða. Það er eitt í þessari þróun sem mér finnst hafa farið fram hjá ótrúlega mörgum, að í gegnum þetta erum við búin að endurskoða deiluskipu- lag mjög víða. Hús sem áður átti að rífa fá að standa, þau eru gerð fallega upp, jafnvel eftir eldri teikningum, þau eru færð í upprunalegt horf.“ Hann skilur þó áhyggjur borgar- búa. „Akkúrat núna þegar við erum í miðjum framkvæmdafasa þá skil ég að uppi séu áhyggjur af ýmsu sem er að gerast. Ég held að myndin sé miklu blandaðri, miklu fleiri jákvæðir hlutir sem koma með en við gleymum að tala um í miðjum framkvæmdafasanum. Ef við höldum rétt á þessu þá held ég að verið sé að þróa borg sem er jafn- vel áhugaverðari og skemmtilegri en áður þó hún sé svolítið breytt.“ Borgin þarf að segja stopp Er jafn eftirsóknarvert fyrir ferða- menn að koma þegar verður allt fullt af hótelum og lundabúðum? Var fólk ekki að sækja í gömlu stemminguna? „Ég held þú viljir ekki fara til borg- ar þar sem eru bara hótel og túrista- búðir. Þess vegna erum við búin að setja stopp á fleiri hótel í kvosinni, erum að skoða að setja líka hótel- kvóta á Laugaveg og Hverfisgötu. Við erum að beina hóteluppbygg- ingu upp með Suðurlandsbraut og inn á Grensásveg. Við viljum dreifa álagi. Við teljum að fjárfesting sem fylgir ferðaþjónustu geti verið góð fyrir götu eins og Grensásveg, Skeif- una og blanda af hótelum, íbúðum og einhverju nýju megi smitast inn í Ármúlann, Skeifuna og fleiri svæði. Galdurinn er að finna rétta blöndu, ekkert má yfirgnæfa annað á einu svæði. Borgin þarf að vera óhrædd við að segja stopp. Við tölum stund- um eins og það sé ekki fólk á bak við þessi fyrirtæki og við ráðum þessu ekki. Ég vil vara hvern og einn, sem er í þessum rekstri og er að markaðs- setja sig gagnvart ferðamönnum, við því að fara klína stórum límmiðum um ódýrasta hamborgarann í rúð- urnar og Benidorm-væða þetta. Við eigum ekki að láta gróðavonina eða græðgi eða stress yfir að fylla ekki staðinn í dag ná yfirtökum. Við eigum að standa saman um að reka stað fyrir Reykjavík og gesti borgar- innar, við eigum að vera stolt af því hver við erum. Við þurfum enga „flashy“ límmiða á rúðurnar. Þetta þarf ekki að vera sjoppulegt til að fá viðskipti. Ég held það sé þvert á móti þannig að viðskiptin fara til þeirra sem eru með gæði á sann- gjörnu verði. Þegar verið er að bjóða upp á eitthvað sem er ekki nógu gott á of háu verði þá hef ég ekki trú á að þeir staðir lifi. Ég held við verðum aðeins að minna okkur sjálf á að við ráðum þessu, þeir sem eiga þessa staði. Þó að þetta virðist vera að ger- ast hratt þá eigum við að varðveita Reykjavík, karakterinn, stoltið yfir því sem við erum. Dreifa eins og við getum. Tryggja fjölbreytnina. Halda því sem sérkennir okkur.“ Vill vera fjögur ár í viðbót Dagur segist vilja vera borgarstjóri lengur en eitt kjörtímabil þar sem fjögur ár séu í það stysta til að gera breytingar. „Það er hægt að gera margt en ég held að við myndum ekki ná að fylgja öllu eftir nema við fengjum umboð í annað kjörtíma- bil. Það er eitthvað sem ég myndi vilja stefna að.“ En hvernig heldurðu að landslagið í flokkapólitíkinni verði þá? Muntu bjóða þig fram fyrir Samfylkingu? „Ég treysti mér ekki til að spá því hvernig flokkalandslagið verður, ég held það sé deigla og mikilvægt að muna að flokkar eru fyrst og fremst tæki til að vinna að því sem maður trúir á. Í mínu tilfelli er það jafnað- arhugsjónin sem er markmiðið. Það hefur gefið á bátinn hjá Samfylking- unni. Mín tilfinning er sú að býsna stór hluti Íslendinga sé einhvers konar jafnaðarmenn. Þeir kannski skilgreina sig ekki þannig en jafn- aðarstefnan og norræn sýn á sam- félag eiga hljómgrunn hjá mörgum. Það er kannski ógæfa vinstri flokk- anna og Samfylkingar að hafa ekki náð nema stuttum köflum. Annars get ég ekki kvartað. Samfylkingin fékk 32% í síðustu borgarstjórnar- kosningum. Þannig að ég held við megum ekki vera of dramatísk. Að hluta til er stóra breytingin sú að fólk er ekki svona eða hinsegin fyrir lífstíð. Sjálfstæðismaður eða sam- fylkingarmaður. Fólk áskilur sér rétt til að velja í næstu kosningum jafn- vel annað en það kaus síðast. Stjórn- málin verða þá að mæta því að það eru allir hugsanleg atkvæði. Enginn sem þú getur tekið sem gefnum. Þú þarft að standa þig, geta sýnt fram á samhengi þess sem þú segist trúa á og þess sem þú ert að gera.“ Ég held þú viljir ekki fara til borgar þar sem eru bara hótel og túristabúðir. Þess vegna erum við búin að setja stopp á fleiri hótel í kvosinni Dagur er ekki sáttur við að fasteignafyrirtæki taki heilu göturnar yfir. FréttaBlaðið/Ernir 4 . m a r s 2 0 1 6 F Ö s T U D a G U r12 F r é T T i r ∙ F r é T T a B L a ð i ð 0 4 -0 3 -2 0 1 6 0 4 :1 9 F B 0 5 6 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 8 A 9 -E 7 C 0 1 8 A 9 -E 6 8 4 1 8 A 9 -E 5 4 8 1 8 A 9 -E 4 0 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 5 6 s _ 3 _ 3 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.