Fréttablaðið - 04.03.2016, Síða 18
Ýmsir hagsmunagæslumenn verslunar og áhugamenn um Evrópusambandsaðild Íslands
hæðast að læknum og vísinda-
mönnum sem vara við innflutningi
á fersku kjöti frá Evrópusambandinu
í framhaldi af ráðgefandi áliti EFTA-
dómstólsins um innflutningshömlur
á slíkri vöru.
Farfuglar og ferðamenn eru sagðir
fljúga hingað án þess að skapa lýð-
heilsuhættu. Íslendingar eru sagðir
fara til annarra Evrópulanda í frí,
til náms eða vinnu til skemmri eða
lengri tíma án þess að verða meint
af. Íslensk dýr eru sögð alin upp við
sömu aðstæður og eftir sömu reglum
og gilda í Evrópu og því sé íslenskt
kjöt ekkert merkilegra eða heilbrigð-
ara en það útlenda. Sumar þessara
fullyrðinga standast en aðrar alls ekki.
Tvær algengar ástæður matarsýk-
inga í Evrópu eru bakteríur af kamp-
ýlobakter- og salmonellustofnum.
Fólk getur veikst af því að borða
sýktar dýraafurðir. Afleiðingar birtast
sem slappleiki, niðurgangur og hiti en
í alvarlegustu tilvikum sem liðbólgur,
lömun og bólgur í hjartvöðva. Matar-
sýkin getur hreinlega verið banvæn.
Björgvin Páll Gústavsson lands-
liðsmarkvörður fékk að kenna á
alvarlegum afleiðingum matarsýk-
ingar erlendis fyrir fjórum árum.
„Hlakka til að geta gengið aftur,“
sagði þessi öflugi íþróttamaður.
Eftir lífsreynslu sína telur hann mat-
vælaöryggi örugglega ekki til gaman-
mála.
Síðast þegar ESB mældi kamp-
ýlóbakter í kjúklingakjöti á sam-
ræmdan hátt í öllum ríkjum sam-
bandsins reyndust 70% kjúklinga í
prófunum sýktir. Í annarri rannsókn
í Danmörku fannst kampýlóbakter
í ríflega þriðjungi sýna úr fersku
kjúklingakjöti í verslunum. Enn má
nefna niðurstöður kampýlóbakter-
mælinga í Bretlandi í fyrra þegar
73% af kjúklingum voru sýkt. Kamp-
ýlóbakter er þannig landlægt víða,
meira að segja í ríkjum sem teljast
með þeim þróaðri innan ESB.
Kampýlóbakter hefur vissulega
verið til vandræða líka á Íslandi.
Árið 2000 var gripið til markvissra
aðgerða gegn þessum ófögnuði
í innlendu kjúklingaeldi og með
samstilltu átaki eftirlitsaðila og
kjúklingabænda náðist frábær
árangur. Matís birti skýrslu um
öryggi íslenskra kjúklingaafurða á
neytendamarkaði árið 2013. Rann-
sóknin stóð yfir í 12 mánuði og á
þeim tíma mældust engin tilvik
salmonellu eða kampýlóbakters í
íslensku kjúklingakjöti.
Svona gerist ekki af sjálfu sér. Hjá
Matfugli ehf. höfum við til dæmis
lagt í miklar fjárfestingar til að bæta
eldishúsin okkar. Við erum með
dýralækni í fullu starfi við að þjálfa
starfsfólkið í umgengni við kjúkling-
ana og til að hafa yfirumsjón með
smitvörnum.
Opinbert eftirlit meira hér
Opinbert eftirlit með kjúklingarækt
er miklu meira á Íslandi en annars
staðar í Evrópu. Hér eru tekin sýni
úr hverjum einasta kjúklingahópi
á eldistímanum til að skima fyrir
kampýlóbakter- og salmonellusýk-
ingu. Greinist eitthvað athugavert er
umsvifalaust gripið til aðgerða. Svo
strangt eftirlit þekkist ekki í ESB.
Það er því rangt að sambærilegar
reglur gildi um kjúklingarækt í ESB
og á Íslandi og rangt líka að kjúkl-
ingur í ESB sé jafn hollur kostur og
sá íslenski.
Öryggi matvæla er stórt lýðheilsu-
mál sem bæði hefur áhrif á lífsgæði
neytenda og kostnað í heilbrigðis-
kerfinu. Einn þeirra sem gerðist
talsmaður matvælaöryggis á Íslandi
var Sighvatur Björgvinsson, þáver-
andi alþingismaður. Þegar kamp-
ýlóbakter fárið 1999 stóð sem hæst
lagði hann fyrirspurn í nokkrum
liðum fyrir heilbrigðisráðherra á
Alþingi og spurði meðal annars:
„Mun ráðherra beita sér fyrir því að
matvæli sem greinast með kampýló-
baktersmit verði tekin af íslenskum
markaði?“
Sé Sighvatur samkvæmur sjálfum
sér hlýtur hann nú að skipa sér í
sveit með íslenskum bændum, lækn-
um og vísindamönnum sem berjast
fyrir því að Ísland haldi áfram að
stemma stigu við innflutningi á
fersku kjöti frá Evrópusambandinu.
Matvælaöryggi getur verið
dauðans alvara
Gunnar Þór
Gíslason
stjórnarformaður
Matfugls ehf.
Hvalrekaskattur
Þegar ég var ungur læknir á Siglufirði fyrir 35 árum með brennandi áhuga á heimilis-
lækningum kvaddi ég mér hljóðs á
kosningafundi Jóns Baldvins og Sig-
hvats Björgvinssonar á Hótel Höfn.
Það var augljóst að að Sighvatur
yrði heilbrigðisráðherra enda
framhandleggsbrotinn og prýddur
forláta gifsumbúðum. Ég mannaði
mig upp og spurði þá félaga hvort
Alþýðuflokkurinn ætti einhverja
framtíðarstefnu í heilbrigðismál-
um. Það varð fátt um svör og þeir
fóstbræður slógu þessu öllu upp í
grín enda var mjög gaman á fund-
inum.
Sighvatur varð heilbrigðisráð-
herra og reyndi að koma á þjón-
ustustýringu í heilbrigðiskerfinu
en varð frá að hverfa með slíkar
hugmyndir. Á þessum tíma var
hver einasta staða heimilislæknis
setin bæði í þéttbýli og dreifbýli og
mikið hugsjónastarf unnið innan
heimilislæknisfræðinnar. Í dag eru
margar stöður ósetnar í þéttbýli,
umsóknir fáar eða engar og og heilu
landshlutarnir án fastra lækna.
Vandinn falinn
Árið fyrir hrun höfðu heilsu-
gæslustöðvarnar verið skyldaðar til
að skrá fólk „á heilsugæslustöð“ án
heimilislæknis þó listar allra lækna
þar væru yfirfullir og læknarnir
hefðu enga möguleika á að sinna
þessu sem skyldi. Þannig var vand-
inn falinn án þess að koma með
raunhæfar aðgerðir til að bregðast
við heimilislæknaskorti.
Atburðarásin um og eftir efna-
hagshrunið var svo grafalvarleg.
Heilbrigðisyfirvöld voru í skjóli
niður skurðar á góðri leið með
að ganga af heimilislækningum
dauðum. Á vormánuðum 2010 var
sagt upp samningi við 12 sjálfstætt
starfandi heimililækna sem sinntu
tugþúsundum skjólstæðinga.
Boðuð var á sama tíma starfræksla
svokallaðrar „forvaktar“ í samstarfi
Landspítala og Heilsugæslu höfuð-
borgarsvæðisins. Tilkynnt var einn-
ig að samningur yrðu ekki endur-
nýjaður við Læknavaktina sem
veitir skjóta þjónustu sérfræðinga
í heimilislækningum utan dag-
vinnutíma öllum sem þangað leita.
Boðuð var sameining og stækkun
stöðva innan Heilsugæslu höfuð-
borgarsvæðis. Stækkun og samræm-
ing átti að koma í stað fjölbreytni og
dreifstýringar.
Ekkert var litið til reynslu
nágrannaþjóða eða til annarra
rekstrarforma sem hafa þó reynst
vel og komið vel út úr þjónustu-
könnunum (Lágmúlastöðin, Sala-
stöðin, sjálfstætt starfandi heim-
ilislæknar).
Boðuð var samræming sem virt-
ist þjóna hagsmunum stjórnsýslu
stórfyrirtækisins en ekki þörfum
sjúklinganna. Fagfélag heimilis-
lækna var í 4 ár tilneytt að verjast
vondum hugmyndum frekar en að
nýta fagþekkingu sína til að móta
breytingar til framtíðar.
Ábyrgðarhluti
Heilsugæslan skiptist í tvo megin-
þætti. Læknasvið og hjúkrunarsvið.
Þessi tvö svið skarast vissulega.
Hefðbundin hjúkrun er í góðum
farvegi, mönnun er viðunandi og
aðgengi gott. Öðru máli gegnir um
heimilislæknamóttökuna. Lang-
flestir vilja hafa greiðan aðgang að
heimilislækni. Lækni sem er hæfur
og vel menntaður og þekkir til
þeirra og þeir geta treyst fyrir sínum
heilsufarsmálum, annaðhvort leyst
úr þeim eða komið þeim í réttan
farveg. Lækni sem er til staðar
þegar þörf krefur. Heimilislækna-
móttakan er einfaldlega þjónusta
sem fólk vill hafa í lagi. Það er þess
vegna ábyrgðarhluti þegar stjórn-
málamenn vilja setja upp hindranir
á þessa þjónustu.
Annars staðar á Norðurlönd-
unum þar sem velferð er hvað
þróuðust í heiminum forðast heil-
brigðisyfirvöld miðstýringu í heim-
ilislækningum. Byggt er á litlum
einingum og gerðir þjónustusamn-
ingar við læknana. Best hefur reynst
að láta heimilislæknana sjálfa bera
ábyrgð á umsjá sinna skjólstæðinga
enda hafi þeir mesta þekkingu á
aðstæðum og þörfum þeirra.
Ferskir vindar blása nú meðal
lækna á Íslandi og er góð samstaða
meðal lækna um heilbrigðiskerfið
til framtíðar. Læknar eru sammála
um að gott heilbrigðiskerfi verði
ekki byggt upp á brotinni grunn-
þjónustu. Áhugi yngri lækna á
heimilislækningum fer vaxandi og
læknadeild vill gera heimilislækn-
ingum hærra undir höfði.
Heilbrigðisráðherra boðar nú
áherslur í heilsugæslunni sem allir
geta sameinast um. Að bjóða íbúum
landsins val á heimilislækni og að
auka nýliðun heimilislækna með
því að bjóða þeim val um starfsað-
stöðu.
Það er ljós í myrkrinu!
Heilsugæsla í vanda
en ljós í myrkrinu
Hvert erum við eiginlega komin í þessu landi þar sem almenn-ingur tók á sig hrun heils
bankakerfis, að örfáir og útvaldir
menn fái að valsa um og útfylla sinn
eigin launaseðil? Þetta er algjörlega
óásættanlegt í svona litlu þjóðfélagi.
Fólkið í landinu horfir upp á spill-
inguna í Landsbankanum/Borgun,
Straumi/ALMC og Arionbanka/Sím-
anum og gapir. Stjórnvöld virðast vera
úrræðalaus.
Spillingar- og sjálftökumál komu
líka upp í Bretlandi eftir einkavæðingu
Thatcher-áranna á opinberum fyrir-
tækjum, en Verkamannaflokkurinn
gerði það að kosningamáli sínu 1997
að setja á svokallaðan hvalrekaskatt,
þ.e. „windfall levy“, á ýmsa gjafagjörn-
inga hinna örfáu og útvöldu. Þessi
eyrnamerkta skattlagning heppnaðist
afar vel og naut mikilla vinsælda. Af
hverju förum við ekki í smiðju Breta
og setjum á háan hvalrekaskatt, t.d.
90% á bankabónusa og aðra sjálftöku-
gjörninga? Já, af hverju ekki?
Guðmundur
Franklín Jónsson
viðskipta
fræðingur
Heilbrigðisráðherra boðar
nú áherslur í heilsugæslunni
sem allir geta sameinast um.
Að bjóða íbúum landsins val
á heimilislækni og að auka
nýliðun heimilislækna með
því að bjóða þeim val um
starfsaðstöðu. Það er ljós í
myrkrinu!
Þórarinn
Ingólfsson
heimilislæknir í
EfraBreiðholti og
formaður Félags
íslenskra heimilis
lækna
Snið // Núverandi ástand
HLEMMUR
033 // HLEMMUR
mkv: 1:200 // A4TRÍPÓLÍ ARKÍTEKTÚR
18.maí 2015
Í V
INN
SL
U
EK
KI
TIL
NO
TK
UN
AR
Á B
YG
GIN
GA
RS
VÆ
ÐI
Upprunalegur hönnuður:
Öll mál eru í mm. Mælið ekki af teikningum. Öll mál athugist á staðnum. Ósamræmi í teikningum og vafaatriði skal tilkynna arkitektum strax. Tölvuskrá:
© TRÍPÓLÍ | ARKITEKTAR
ÖLL AFNOT OG AFRITUN TEIKNINGAR AÐ HLUTA EÐA Í HEILD ER HÁÐ SKRIFLEGU LEYFI HÖFUNDA
Jón Davíð Ásgeirsson FAÍ
kt: 250280-5729
MKV.:
.RNÐAR.RNKREV ÚTGÁFA
TEIKNAÐ:
YFIRFARIÐ:
TEGUND VERKS
VERKKAUPI / EIGANDI
BLAÐSTÆRÐ:
GATA/STAÐSETNING
STAÐGR.:
LANDNÚMER:
MHL:
ÚTGÁFA DAGS:
Klapparstígur 16 | 101 Reykjavík | S: 6929883 | tripoli@tripoli.is | www.tripoli.is
TRÍPÓLÍ | ARKITEKTAR
A3
Útg. Dags.Skýring / Breyting. YfirfariðTeiknað
C:\Users\Jon\Desktop\Hlemmur\Hlemmur.rvt
Reykjavíkurborg
Hlemmur
Author
Checker
0001 A112
langsnið, núverandi
0 2 5 10m
VI LTU VE RA
H LEMMARI?
Í haust mun mathöll opna í fyrsta sinn á Íslandi á
Hlemmi. Á Hlemmi verða ólíkir rekstraraðilar sem
afgreiða ferska matvöru, sérvöru og/eða tilbúinn mat
og drykk til að njóta á staðnum. Á Hlemmi mun allt
snúast um gæði varanna og lifandi markaðsstemningu.
Hlemmur verður einstakur áfangastaður fyrir alla
sælkera og gesti miðborgarinnar.
Ef þig langar að vera með, sendu
okkur þá umsókn á hlemmur@
sjavarklasinn.is. Við viljum vita
allt um hugmyndina þína, matinn
þinn, reynslu og framtíðar sýn. Við
leitum sérstaklega að þrenns konar
frumkvöðlum:
Þeim sem geta komið hug
myndinni sinni fyrir á 13
fermetrum (geymslur og lager
pláss ótalið, við sköffum það
auka lega). Kostur er ef hugmyndin
felur bæði í sér sölu á sérvöru og
veitingum til að njóta á staðnum.
Þetta er þó ekki skilyrði, við erum
opin fyrir öllum hugmyndum.
Þeim sem geta komið hug
myndinni sinni fyrir á 7
fermetrum (geymslur og lager
pláss ótalið, við sköffum það
auka lega). Hér er einkum sóst eftir
frumkvöðlum sem vilja framreiða
götumat af bestu sort.
Þeim sem vilja setja upp
lítinn veitingastað með
vínveitingaleyfiá13til
25 fermetrum (geymslur og
lagerpláss ótalið).
Gerðir verða leigu samningar í 1
til 3 ár í senn og stefnt er að því
að mathöllin verði opin alla daga
vikunnar. Sameiginlegt sætapláss
verður fyrir um 80 gesti.
Farið verður með allar umsóknir
sem trúnaðarmál og öllum verður
svarað.
Umsóknarfrestur er til 21.
mars næstkomandi.
Frekari upplýsingar má finna
á hlemmurmatholl.is
4 . m a r s 2 0 1 6 F Ö s T U D a G U r18 s k o ð U n ∙ F r É T T a B L a ð i ð
0
4
-0
3
-2
0
1
6
0
4
:1
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
A
9
-E
2
D
0
1
8
A
9
-E
1
9
4
1
8
A
9
-E
0
5
8
1
8
A
9
-D
F
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
5
6
s
_
3
_
3
_
2
0
1
6
C
M
Y
K