Fréttablaðið - 04.03.2016, Blaðsíða 20
Í dag
19.00 Þór Þ. - Njarðvík Sport
19.40 Roma - Fiorentina Sport 2
19.40 Middlesbr. - Wolves Sport 3
22.00 Körfuboltakvöld Sport
01.00 NBA: Cavs - Wizards Sport
19.15 Þór Þ. - Njarðvík Þorlákshöfn
Nýjast
handbolti Það er að verða um
einn og hálfur mánuður síðan Aron
Kristjánsson hætti störfum sem
landsliðsþjálfari í handknattleik.
HSÍ hefur því haft drjúgan tíma til
þess að finna arftaka hans en ekkert
bólar á honum.
„Það er ekkert búið að gerast
í þessum málum sem hægt er að
greina frá. Við erum að vinna í mál-
inu og því miðar aðeins áfram. Það
er þó ekkert í hendi,“ segir Guð-
mundur B. Ólafsson, formaður HSÍ.
Á svona löngum tíma hefur oft
kvisast út að búið sé að ræða við
hinn og þennan. Engar slíkar sögur
hafa verið í gangi núna. Miðað við
það sem Fréttablaðið hefur heyrt þá
er ekki enn búið að tala við neinn
þjálfara um að taka að sér starfið.
„Ég vil ekki gefa neitt upp um
hvort búið sé að ræða við einhvern.
Við tókum málið mjög vítt í upp-
hafi,“ segir formaðurinn en hvað
þýðir það eiginlega? „Þá erum við
að líta breitt á allt sviðið. Hvað sé í
boði, hverjir hafi áhuga, hverjir séu
í boði og annað slíkt.“
Þó svo þetta ferli hafi þegar tekið
langan tíma hefur HSÍ sett sér tíma-
ramma í málinu.
„Við erum með það markmið að
klára dæmið í þessum mánuði. Það
er æfingavika hjá landsliðinu í apríl
og þá verðum við að hafa þjálfara,“
segir Guðmundur en þessi æfinga-
vika er hluti af undirbúningi liðsins
fyrir HM-umspilið næsta sumar.
Landsliðið mun ekki spila neinn
leik í apríl eins og staðan er núna.
Formaðurinn segist ekki geta úti-
lokað neitt á þessu stigi. Ekki varð-
andi hvort stefnan sé að fá íslenskan
eða erlendan þjálfara.
„Það er ekki hægt að útiloka neitt
og við teljum okkur enn hafa tíma.
Við vonumst til að loka þessu máli
áður en við lendum í einhverri tíma-
pressu. Við höldum samt ró okkar.“
Íslenska landsliðið hefur verið á
stalli með bestu landsliðum heims
um árabil og því ætti starfið að vekja
athygli margra. Hefur HSÍ fengið
mikið af umsóknum og fyrirspurn-
um um starfið?
„Það hefur eitthvað verið af því að
menn hafi látið vita af sér. Aðallega
útlendingar. Ég man þó ekki hversu
margar þessar fyrirspurnir eru
en það er innan við tuginn,“ segir
Guðmundur en hvernig vinnur HSÍ
þetta mál? Hverjir sjá um og leiða
þetta mál?
„Það er landsliðsnefnd karla sem
er með verkefnið ásamt mér, vara-
formanninum og framkvæmda-
stjóranum. Það er frekar breiður
hópur sem kemur að þessu. Í lands-
liðsnefndinni eru gamlir landsliðs-
menn meðal annars sem eru með
mikla reynslu. Við höfum hist
þegar við teljum vera þörf á en
ég leiði vinnuna.“
Þó svo málið virðist
lítið hafa þokast áfram
síðustu vikur þá er for-
maðurinn langt frá því
að vera áhyggjufullur.
„Alls ekki. Við telj-
um okkur vera með
gott starf í boði og
trúum ekki öðru en
að við finnum góðan
mann í starfið. Við
viljum aftur á móti
vanda valið við að
finna góðan mann.“
henry@frettabladid.is
Klárum málið í þessum mánuði
Formaður HSÍ, Guðmundur B. Ólafsson, hefur engar áhyggjur þó svo ekki sé búið að finna arftaka Arons
Kristjánssonar sem hætti í janúar. Ekki virðist vera búið að ræða við neinn þjálfara um að taka að sér starfið.
Tíminn tifar. Þessi mynd var tekin þann 22. janúar síðastliðinn er Aron Kristjáns-
son hætti. Síðan þá virðist lítið hafa gerst. FRéTTABlAðið/vilhelM
Óskar Bjarni er til-
búinn en ekki Gunnar
Það hafa ýmsir menn verið orðaðir
við starf landsliðsþjálfara síðustu
vikur. Nöfn manna sem hafa tengst
liðinu á síðustu árum. Menn eins
og Óskar Bjarni Óskarsson og
Gunnar Magnússon.
Einnig hafa nöfn fyrrverandi
landsliðsmannanna Geirs Sveins-
sonar og Kristjáns Arasonar verið í
umræðunni.
Gunnar er að þjálfa Hauka og
tjáði Fréttablaðinu í gær að hann
væri ekki að sækjast eftir aðalþjálf-
arastarfinu. Hann útilokaði þó ekki
að vinna með HSÍ áfram en hann
hefur verið með landsliðinu frá
árinu 2002. Það var aðeins á þeim
stutta tíma sem Viggó Sigurðsson
þjálfaði liðið sem Gunnar var ekki
hluti af þjálfarateyminu.
Óskar Bjarni Óskarsson
var aðstoðarþjálfari liðsins
er það vann silfur í Peking
og brons í Austurríki á EM.
Hann hætti með landsliðinu
árið 2012 en sagði í gær að
hann væri til í að snúa aftur.
„Ég er til í að taka liðið
að mér eða aðstoða annan
mann. Ég er klár í verk-
efnið en hef ekki heyrt
frá neinum enn sem
komið er. Ég naut þess
að vera með lands-
liðinu á sínum tíma
og er til í að koma
aftur,“ segir Óskar
Bjarni.
Víkingar fallnir í 1. deild þótt enn séu fimm umferðir eftir
Fallnir Víkingar féllu í gær úr Olís-deild karla í handbolta eftir eins árs dvöl. Víkingar urðu að vinna Aftureldingu til að halda sér á lífi en það hefði
ekki einu sinni dugað því FH vann óvæntan sigur á nýkrýndum bikarmeisturum Vals á sama tíma. Víkingar eru nú 13 stigum frá öruggu sæti þegar
aðeins tíu stig eru eftir í pottinum. Þjálfarinn Ágúst Jóhannsson hefur ekki fundið svör við vandamálum Víkingsliðsins í vetur. FRéTTABlAðið/STeFáN
domino’s-deild karla í körfubolta
Stjarnan - höttur 90-72
Stigahæstir: Tómas Tómasson 18, Justin
Shouse 17, Arnþór Guðmundss. 15, Tómas
Þórður Hilmarsson 11 - Tobin Carberry 27.
Höttur er fallið í 1. deild.
ÍR - Snæfell 108-74
Stigahæstir: Björgvin Ríkharðsson 25/7
stoðs., Sveinbjörn Claessen 21, Vilhjálmur
Theodór Jónsson 20, Kristján Andrésson 17
- Sherrod Nigel Wright 19, Sigurður Á. Þor-
valdsson 18, Stefán Torfason 12/16 fráköst.
FSu-Keflavík 73-112
Stigahæstir: Christopher Woods 22/14
frák., Gunnar Ingi Harðarson 16 - Jerome
Hill 26 Reggie Dupree 19 Magnús Már
Traustason 16. FSu er fallið í 1. deild.
Tindastóll-KR 91-85
Stigahæstir: Anthony Gurley 26, Darrel
Keith Lewis 21, Pétur Birgisson 13 - Michael
Craion 21/13 frák., Helgi Már Magnússon 18.
Tindastóll kom í veg fyrir að KR tryggði sér
deildarmeistaratitilinn.
Grindavík-haukar 71-105
Stigahæstir: Þorleifur Ólafsson 12, Jón Axel
Guðmundsson 12 - Emil Barja 35, Brandon
Mobley 21/11 frák., Kári Jónsson 13/9 stoð-
sendingar, Kristinn Marinósson 11. Haukar
unnu sinn sjötta leik í röð.
efri hluti
KR 32
Keflavík 28
Stjarnan 28
Haukar 26
Tindastóll 24
Þór Þorl. 22
Neðri hluti
Njarðvík 22
Snæfell 16
Grindavík 16
ÍR 12
FSu 6
Höttur 6
olís-deild karla í handbolta
ÍBv - Fram 31-27
Markahæstir: Agnar Smári Jónsson 8,
Grétar Þór Eyþórsson 7 - Þorgrímur Smári
Ólafsson 7, Garðar B. Sigurjónsson 6.
Grótta - ÍR 22-30
Markahæstir: Finnur Ingi Stefánsson 7 - Jón
Kristinn Björgvinsson 8, Aron Örn Ægisson
6 Sturla Ásgeirsson 5, Davíð Georgsson 4.
valur - Fh 23-28
Markahæstir: Geir Guðmundsson 8 - Einar
Rafn Eiðsson 9, Ásbjörn Friðriksson 7, Gísli
Þorgeir Kristjánsson 5.
víkingur - Afturelding 26-28
Markahæstir: Jóhann Reynir Gunnlaugsson
6, Atli Karl Bachmann 5, Karolis Stropus 5 -
Árni Bragi Eyjólfsson 15, Mikk Pinnonen 5.
Akureyri - haukar 17-28
Markahæstir: Halldór Logi Árnason 5 -
Janus Daði Smárason 5, Brynjólfur Snær
Brynjólfsson 5, Hákon Daði Styrmisson
5/3, Adam Haukur Baumruk 4. Giedrius
Morkunas varði 21/1 eða 64%.
Stig liðanna: Haukar 38, Valur 32, Aftur-
elding 24, ÍBV 23, Fram 22, Grótta 21, Akur-
eyri 21, FH 20, ÍR 12, Víkingur 7,
VinnA StELpurnAr dAni Í
FyrStA Sinn Í FiMM Ár?
Íslenska kvennalandsliðið í fót-
bolta spilar í dag annan leikinn
sinn á Algarve-mótinu og mót-
herjinn er danmörk. Íslensku
stelpunum hefur ekki tekist
að vinna dani í síðustu fjórum
leikjum (1 jafntefli, 3 töp)
en eini sigur Íslands á
dönum hjá
A-landsliðum
karla og
kvenna
(31 leikur)
kom þegar
stelpurnar
unnu dani
1-0 á Algarve-
mótinu fyrir
fimm árum.
4 . m a r s 2 0 1 6 F Ö s t U d a G U r20 s p o r t ∙ F r É t t a b l a ð i ð
sport
0
4
-0
3
-2
0
1
6
0
4
:1
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
A
9
-F
6
9
0
1
8
A
9
-F
5
5
4
1
8
A
9
-F
4
1
8
1
8
A
9
-F
2
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
5
6
s
_
3
_
3
_
2
0
1
6
C
M
Y
K