Fréttablaðið - 04.03.2016, Side 24

Fréttablaðið - 04.03.2016, Side 24
„Það er mikil saga á bak við þennan varalit sem ég hef notað í tuttugu ár og er alltaf með á mér. Hann er frá Revlon og hét fyrst Red. Svo var hætt að selja Revlon hér á landi en góð vinkona mín, Guðrún Ólafs, sem var flugfreyja hefur séð um að gefa mér varalit. Nú heitir hann Fire and Ice og það er enginn varalitur sem kemst nálægt þessum lit á mér. Ég á alltaf svona tíu stykki heima í skúffu, annars verð ég óróleg.“ Ragna Fossberg er nafn sem marg- ir kannast við enda hefur hún starf- að sem förðunarfræðingur í ís- lensku sjónvarpi og við kvikmynd- ir í tæplega hálfa öld. Hún var um nýliðna helgi sæmd heiðursverð- launum Eddunnar. „Það sem bar hæst í síðustu viku er að ég varð ellilífeyrisþegi þann 27. febrúar og svo kláruðum við kvikmyndina Eiðinn á sunnudaginn og síðan var Eddan um kvöldið með öllu þessum blæstri,“ segir Ragna og hlær. Ragna segist ekkert vera á leið- inni að setjast í helgan stein þótt hún sé kominn á ellilífeyrisaldur, síður en svo. „Ég hef sjaldan haft eins mikið að gera en ég hef allt- af verið virk og komið víða við. Það er ekkert að hægjast á því sem betur fer því ég segi alltaf að á meðan maður lærir eitthvað nýtt getur maður haldið áfram. Og ég er enn að læra eftir um fimmtíu ára starf.“ Þó að Ragna segist ekki vera neinn tískugúrú hefur hún samt alltaf haft puttann á púlsinum og fylgst með straumum og stefnum í tísku í gegnum starf sitt. Hún sýnir lesendum hér sína uppáhaldshluti og kennir þar ýmissa grasa. AlltAf með rAuðA vArAlitinn Ragna Fossberg sýnir okkur nokkra af sínum eftirlætishlutum. Meðal þeirra er rauði varaliturinn frá Revlon sem hún hefur notað í tuttugu ár og hálsmen sem hún bar á Eddunni. „Penzim er efni sem ég hef notað á andlitið á mér sem næturkrem í átta ár. Þetta er vara sem er unnin úr íslensku hráefni, fiski­ ensímum, og er alveg stórkostlegt efni.“ „Þetta er æðislega töff hálsmen sem ég er mikið með, meðal annars á Eddunni. Það er nánast eins og flík, svo stórt og mikið og áberandi. Ég fékk það gefins frá stjúpdóttur minni, Birtu Björns í Júníform, en henni fannst það lýsa mér vel.“ Ragna segir sinn hversdagslega stíl vera stílhreinan, yfirleitt klæðist hún galla­ buxum og peysu og er mikið með hálsklúta. MYND/STEFÁN „Skíða­ hópurinn minn gaf mér þessa úlpu og eigum við öll sjö eins úlpur, strákar í svörtu og stelpur í rauðu. Úlpurnar eru allar merktar Team Ragna en ég hef svolítið séð um þennan hóp.“ „Ég er mikil sólgleraugnamanneskja og er orðin það þroskuð núna að ég er komin með sjóngler í þau svo ég sjái eitthvað. Ég á mikið af sólgleraugum og finnst gott að vera með þau, sama hvort ég er á hestbaki eða skíðum.“ Gerir um 10-12 kexkökur 90 g spelt (fínmalað) 0,5 tsk. bökunarsódi 1 tsk. kanill (má sleppa) Vanillukorn á hnífsoddi (um fimmtungur úr vanillustöng), (má sleppa) 1,5 msk. agavesíróp 3 msk. kókosolía 3-4 msk. eplasafi Hrærið saman í miðlungsstóra skál spelti, bökunarsóda og kanil. Hrærið vel. Ef þið notið vanillu, skerið hana þá langsum og skafið svolítið af vanillukornunum út í. Í annarri skál skuluð þið hræra saman kókosolíu, eplasafa og agavesírópi. Hellið út í miðlungsstóru skálina. Hnoðið lauslega saman. Áferðin á að vera þannig að þið getið haldið á deiginu án þess að það klístrist við hendurnar og það á ekkert af deiginu að vera eftir í skálinni. Deigið á alls ekki að vera blautt en á að vera auðvelt að móta það. Ef deigið er of þurrt má setja 1-2 tsk. af eplasafa út í til viðbótar. Setjið deigið í skál og geymið í ísskápnum í um 30 mínútur. Takið deigið úr kælinum, fletjið það út í um 1 mm þykkt og skerið út úr því t.d. 3 cm hringi (í þvermál) eða mjúkar stjörnur. Setjið bökunarpappír á bökunarplötu og raðið kexinu á pappírinn.Bakið við 180°C í um 10-12 mínútur. Kexið er mjúkt þegar það kemur úr ofninum en harðnar svo aðeins. Uppskriftin er fengin af síðunni cafesigrun.com Heimalagað fyrir börnin Víðir Þór íþrótta og heilsufræðingur veitir ráðgjöf í Lyfju Smáratorgi í dag föstudag, frá kl. 17:00 til 19:00 Víðir Þór Þrastarsson, íþrótta- og heilsufræðingur frá Háskóla Íslands. P R E N T U N .IS 20% afsláttur af vörunum meðan á kynningu stendur fyrstA kexið 4 . m a r s 2 0 1 6 F Ö s T U D a G U r4 F ó l k ∙ k y n n i n G a r b l a ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ i ∙ l í F s s T í l l 0 4 -0 3 -2 0 1 6 0 4 :1 9 F B 0 5 6 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 8 A A -0 5 6 0 1 8 A A -0 4 2 4 1 8 A A -0 2 E 8 1 8 A A -0 1 A C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 5 6 s _ 3 _ 3 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.