Fréttablaðið - 04.03.2016, Qupperneq 38
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@365.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða
hringja í síma 512 5000.
Minningarathöfn um
Ragnar Þórisson
verður haldin sunnudaginn 13. mars
kl. 15 í Gyllta salnum á Hótel Borg.
Blóm eru vinsamlegast afþökkuð en
þeim sem vilja minnast hans er bent á
Kraft, stuðningsfélag fyrir ungt fólk með
krabbamein, eða minningarsjóð í nafni
Ragnars við Grinnell College Sociology Department c/o
Office of Development & Alumni Relations 733 Broad
Street Grinnell Iowa 50112 eða á vefnum: https://forum.
grinnell.edu/giving-at-grinnell/make-gift
Sigríður Hjaltadóttir Þórir Ragnarsson
Alyssa Penner
Hjalti Már Þórisson Halla Björg Lárusdóttir
Arnar Þórisson Jóhanna María Sigurðardóttir
og frændsystkini.
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Magnús Guðmundsson
Kvígindisfelli, Tálknafirði,
lést á Heilbrigðisstofnun Patreksfjarðar
þriðjudaginn 1. mars.
Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartans þakkir sendum við öllum
þeim sem sýndu okkur samúð og
hlýju við andlát og útför elskulegrar
móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
Sigurbjargar Óskarsdóttur
Gullsmára 9, Kópavogi.
Hreinn Sveinsson Svanhildur Sigurjónsd.
Bylgja Björk Guðmundsdóttir Bragi Ingvason
Óskar Karl Guðmundsson Helga Guðný Jónsdóttir
Vilhelm Guðmundsson
Gunnbjörn Guðmundsson Kristjana Möller
Sigurbjörn L. Guðmundsson Halldóra S. Sigurþórsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Kær vinur,
Björn Jónsson
sjómaður,
Túngötu 18, Vestmannaeyjum,
lést á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja
13. febrúar sl. Útför hans fór fram frá
Landakirkju í Vestmannaeyjum
laugardaginn 27. febrúar. Útförin fór fram í kyrrþey að ósk
hins látna. Þakkir til starfsfólks Sjúkrahúss Vestmannaeyja
fyrir stuðning og góða umönnun.
Aðstandendur.
Ástkær eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Örn Jónsson
Sæbóli 38,
Grundarfirði,
lést á heimili sínu að kvöldi
fimmtudagsins 25. febrúar. Útförin fer fram
frá Grundarfjarðarkirkju laugardaginn 5. mars kl. 14.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem
vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið Von
í Grundarfirði, 0321-13-700101, kt. 650107-0200.
Sigríður Gísladóttir
Jóhann Arnarson Margrét Lukka
Brynjarsdóttir
Sigríður Guðbjörg Arnardóttir Hinrik Konráðsson
Gísli Valur Arnarson Karen Ósk Þórisdóttir
og barnabörn.
„Ég er bara mjög hamingjusamur með
að verða fimmtugur, það eru ekkert
allir sem verða það,“ segir myndlistar-
maðurinn Pétur Gautur Svavarsson sem
stendur á miklum tímamótum í dag er
hann fagnar fimmtíu ára afmæli sínu.
Hann ætlar að fagna þessum merka
áfanga í góðra vina hópi. „Ég er í skíða-
hópi og við ætlum að hittast og gera
okkur glaðan dag saman,“ segir Pétur
Gautur.
Það er þó ekki það eina sem hann
ætlar að gera, því hann ætlar að opna
afmælislistasýningu á morgun í Gall-
eríi Fold. „Á sýningunni horfi ég fram á
veginn, til baka og til hliðar þannig að
hún er óhefðbundin að því leyti. Ég leyfi
mér kannski að gera það sem menn gera
yfirleitt ekki á sýningum, að sýna eldri
myndir og slíkt en mér finnst það allt í
lagi á svona tímamótum. Svo er ég líka
að endurnýta gamlar hugmyndir og
nálgast þær aftur og eiginlega mála þær
upp á nýtt. Það er líka gaman og hollt
fyrir mann að sjá hvað maður var að
gera fyrir tíu, tuttugu árum. Auðvitað
verður það aldrei eins en það á heldur
ekki að vera það,“ segir Pétur Gautur um
sýninguna.
Sýningin verður opnuð klukkan 15.00
á morgun í Galleríi Fold og mun standa
til 23. mars næstkomandi.
Eins og fyrr segir ætlar Pétur Gautur að
eyða stóra deginum með skíðahópnum
sínum, en er hann mikill skíðamaður?
„Ég er ekkert rosalega klár á skíðum en
skemmtilegustu frí sem maður fer í eru
skíðaferðir með góðum vinum,“ segir
Pétur Gautur, sem ætlar að klæðast
hinu þýska glæsidressi, Lederhosen, í
gleðskapnum. „Ég sagði við fólkið að
það ætti að reyna að vera í eins hallæris-
legum skíðafötum og hægt væri,“ bætir
hann við og hlær.
Pétur Gautur hefur átt farsælan feril
sem listmálari en er eitthvað sem stend-
ur upp úr á hans ferli? „Ég hef verið mjög
farsæll í mínu starfi og mér hefur alltaf
verið tekið rosalega vel. Ég get alls ekki
kvartað yfir velgengni og hvernig fólk
hefur tekið mér. Ég lít mjög ánægður
til baka og einnig fram á veginn. Það
hafa auðvitað verið erfiðir tímar eins
og í kringum hrunið, þegar dýrir hlutir
hættu að seljast, skiljanlega, en sem
betur fer held ég að þjóðin sé komin yfir
þann leiðinlega kafla. Annars er ég mjög
sáttur við sjálfan mig.“
Á sýningunni sem verður opnuð á
morgun verða um fjörutíu verk sem
fæst hafa komið fyrir sjónir almennings
áður en þó verða einnig gömul og þekkt
verk á sýningunni. Allir eru velkomnir á
opnunina og sýninguna.
gunnarleo@frettabladid.is
Fagnar með skíðahópnum
sínum í Lederhosen
Myndlistarmaðurinn Pétur Gautur Svavarsson er fimmtugur í dag. Hann opnar listasýn-
ingu af því tilefni á morgun og þá ætlar hann að gera sér glaðan dag með skíðahópnum.
Yfir fjörutíu listaverk verða til sýnis á afmælislistasýningunni sem Pétur Gautur heldur í tilefni fimmtíu ára afmælisins. fréttablaðið/stefán
1861 Abraham Lincoln verður sextándi forseti Bandaríkjanna.
1877 Emile Berliner finnur upp hljóðnemann.
1936 Zeppelin-loftfarið Hindenburg flýgur sitt fyrsta reynsluflug.
1945 Finnland segir Þýskalandi stríð á hendur.
1955 Armed Forces Radio and Television Service Keflavik fær heim-
ild íslenskra stjórnvalda til sjónvarpsútsendinga.
1963 Jason Newsted, bandarískur bassaleikari, kemur í heiminn.
1964 Hljómar frá Keflavík slá í gegn á fyrstu bítlatónleikum á Ís-
landi, sem haldnir eru í Háskólabíói. Fjórar aðrar hljómsveitir koma
fram á þessum tónleikum.
1968 Fyrsta leikritið sem sett er upp sérstaklega fyrir sjónvarp
á Íslandi sent út. Það er verkið Romm handa Rósalind eftir Jökul
Jakobsson.
1971 Íslendingar kaupa upp-
stoppaðan geirfugl á upp-
boði í London. Safnað
hafði verið fyrir fuglinum
um allt land fyrir upp-
boðið.
1971 Siglingafélagið
Ýmir í Kópavogi er
stofnað.
1983 Menningarmiðstöðin
Gerðuberg er opnuð í Breið-
holtshverfi í Reykjavík.
2000 PlayStation 2 kemur fyrst
út í Japan.
2005 Háskólinn í Reykjavík og
Tækniháskóli Íslands sameinast
undir merkjum þess fyrrnefnda.
2010 Jarðskjálfti af stærðinni 6,4
mælist sunnan við Taívan.
Merkisatburðir
Jason newsted er líklega
best þekktur fyrir að hafa
leikið með Metallica.
Á sýningunni horfi ég
fram á veginn, til baka
og til hliðar þannig að hún er
óhefðbundin að því leyti. Ég
leyfi mér kannski að gera það
sem menn gera yfirleitt ekki á
sýningum, að sýna eldri myndir
og slíkt en mér finnst það allt í
lagi á svona tímamótum.
Pétur Gautur Svavarsson
4 . m a r s 2 0 1 6 F Ö s T U D a G U r22 T í m a m ó T ∙ F r É T T a B L a ð i ð
tímamót
0
4
-0
3
-2
0
1
6
0
4
:1
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
8
A
9
-F
1
A
0
1
8
A
9
-F
0
6
4
1
8
A
9
-E
F
2
8
1
8
A
9
-E
D
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
5
6
s
_
3
_
3
_
2
0
1
6
C
M
Y
K