Fréttablaðið - 04.03.2016, Síða 44
það kom mér á
óvart þegar við
fluttum hingað hvað
munurinn er mikill á
Íslendingum og frökkum.
Arna Gná Gunnarsdóttir opnaði
nýlega myndlistarsýninguna
Winter in Strasbourg í Listasal
Evrópuráðsins í Strassborg. Hún
kveðst vera undir áhrifum frá
íslenskri handverkshefð en þó
aðallega reyna að túlka hvernig
hún upplifi að vera útlendingur og
reyna að falla inn í nýtt samfélag án
þess að glata eigin menningarein-
kennum.
Arna Gná flutti til Strassborgar
fyrir tveimur árum með manni
sínum, Róbert Spanó, dómara við
Mannréttindadómstól Evrópu, og
tveimur sonum. „Okkur líður mjög
vel hér en það kom mér á óvart
þegar við fluttum hingað hvað
munurinn er mikill á Íslendingum
og Frökkum. Ég flokka mig sem
Skandinava, sem í Suður-Evrópu
þykja frekar lokaðir og stífir en
mér finnst þvert á móti við frekar
opin og frjáls en Frakkar fastir í
reglum. Þeir elska skriffinnsku
meðan við hugsum, æ, við reddum
þessu og erum sveigjanleg. En ég
er auðvitað útlendingur hér en hef
ekki prófað að vera útlendingur á
Íslandi. Kannski er líf útlendings
línudans hvar sem er í heiminum ,
það er áhugavert umhugsunarefni.“
Sem dæmi um menningar-
muninn lýsir Arna Gná því þegar
sonurinn byrjaði í leikskóla, fjög-
urra ára. „Fyrsta daginn klippti
hann út jólatré og þegar ég kom
að sækja hann var mér sýnt hvað
þetta væri hryllilega lélegt hjá
honum. Ef hann litaði pínulítið út
fyrir strik í litabók fékk hann fýlu-
karl í bókina.“
Arna Gná segir ótrúlega marga
hafa mætt á opnun sýningarinnar
og þrjú verk hafi selst. „Það var
gaman að sjá hvað áhuginn var
mikill. Gestirnir töldu sig bara
bara sjá íslenskt yfirbragð á mynd-
unum.“ gun@frettabladid.is
Líf útlendingsins viss línudans hvar sem er í heiminum
Róbert og Arna Gná við opnun
sýningarinnar. Mynd/úR einkAsAfni
Lífið í strassborg. Línurnar eins og höft og kassar til að passa inn í. Bleika línan er
löngunin til að halda í sitt. Mynd úR einkAsAfni.
Skáldsagan Skugga-Baldur eftir Sjón kom fyrst út árið 2003 og hefur síðan verið þýdd á 22 tungumál og er líkast til sú bók höfundar-
ins sem hefur notið hvað mestrar
hylli. Sjón er sérstæður höfundur
um margt og býr meðal annars
yfir þeim eiginleika að vera í senn
fádæma íslenskur og evrópskur og
hafa á valdi sínu ólíka hugarheima.
Það þarf því kannski ekki að koma
á óvart að verkið hafi heillað tékk-
nesku leikkonuna Teru Hof sem
hefur á undanförnum árum búið
bæði í Reykjavík og Prag sem er ein
elsta og rótgrónasta menningarborg
Evrópu.
„Ég heillaðist strax af þessari bók
og af þessu mínímalíska formi sem er
fullt af fallegum myndum en skapar
í senn svo ótrúlega mikið rými fyrir
ímyndunaraflið og hvetur það áfram.
Svo er sagan sjálf líka áhrifarík og
sterk. Þannig að ég hugsaði með mér
að það væri gaman að láta reyna á að
skapa sviðsverk út frá þessari bók og
það féll líka svo að mínu lífi í þessum
tveimur löndum.“
Tenging á milli landa
Skugga-Baldur er byggð utan um
þrjár aðalpersónur en í sviðsverkinu
er Tera ein á sviðinu og hún segir að
verkið sé byggt upp utan um hana
sem aðalpersónu og sögumann.
„Við fórum þá leið að vera með þessa
aðalpersónu sem kallast Skuggi og í
honum koma saman skuggar þessara
þriggja persóna.“
Skuggi notar umbreytingu sem
sína helstu leið til tjáningar og
Tera segir að það falli því einkar
vel að sögunni að vinna sýninguna
með fólki úr ólíkum listgreinum.
Kamila Polívková er meðhöfundur
að handriti og leikstjóri, listrænir
stjórnendur eru þeir Jón Sæmundur
Auðarson og Sindri Ploder og áfram
mætti telja fjölbreyttan hóp lista-
manna frá bæði Íslandi og Tékklandi.
„Sjón er listamaður sem hefur einn-
ig fengist við tónlist og myndlist og
býr yfir mikilli sköpunargleði og ég
finn til skyldleika við hann hvað það
varðar. Hann varð fyrir áhrifum frá
tékkneskum súrrealistum og það
myndar ákveðna tengingu á milli
okkar og á milli landanna.
Heild ólíkra forma
Skugga-Baldur er líka skrifuð eins
og listrænt konsept. Þessi bók
er eins og kvartett eins og Sjón
hefur bent á og svo eru líka í henni
ákveðnar eyður – „empty space“
eins og það er kallað í leikhúsi og
það gefur þér sem lesanda ákveð-
ið svigrúm og andrými sem skiptir
miklu máli. Það gefur þér færi á
að leyfa myndunum að forma sig
í hausnum og að njóta þeirra þar.
Að mínu mati er þessi bók því full-
komin til þess að eiga framhaldslíf
sem annað og sjálfstætt listaverk.
Okkar nálgun felur í sér að nota
myndlistina, tónlistina, söguna
og láta þetta mynda heild á sínum
eigin forsendum. Ég hef alla þessa
frábæru listamenn með mér í þessu
ferli öllu þannig að ég er í raun
ekki ein heldur þvert á móti hluti
af heildstæðu verki ólíkra forma.“
Allt er mögulegt
Verkið var frumsýnt í Prag í síðustu
viku og Tera segir að það hafi verið
henni mikilvægt að Sjón og eigin-
kona hans, Ásgerður Júníusdóttir
söngkona, voru viðstödd frum-
sýninguna. „Hann hrósaði okkur
svo fallega. Sagði að hann hafi alltaf
haldið að bækurnar hans væru
óbreytanlegar, væru bara það sem
þær eru og gætu ekki verið neitt
annað, en að nú hafi hann séð að
það væri nú ekki endilega þannig.
Að hið ómögulega væri mögulegt
og þetta gladdi mig ákaflega mikið.
Við höfum reyndar þurft að
breyta miklu og svo þurfum við
að gera enn meiri breytingar hér í
tengslum við rýmið sem við erum
að vinna með í Hafnarhúsinu sem
er talsvert frábrugðið leikhúsinu
í Prag. En það er bara áskorun rétt
eins og að núna þarf ég að koma
fram á ensku en í Prag gat ég leyft
mér tékkneskuna. En við fengum
frábærar viðtökur í Prag þannig að
við erum farin að hlakka til að sýna
hér.“
Ég er hluti af heildstæðu verki ólíkra listgreina
Í kvöld frumsýnir tékkneska leikkonan tera hof nýja leikgerð af skáldsögunni skugga-Baldur eftir sjón.
sýningin fer fram í hafnarhúsinu og er samvinnuverkefni tékkneskra og íslenskra listamanna.
Tékkneska leikkonan Tera Hof heillaðist af skáldsögu sjóns, skugga-Baldur og í kvöld frumsýnir hún í Hafnarhúsinu leikgerð byggða á verkinu. fRéTTABLAðið/eRniR
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
4 . m a r s 2 0 1 6 F Ö s T U D a G U r28 m e n n i n G ∙ F r É T T a B L a ð i ð
menning
0
4
-0
3
-2
0
1
6
0
4
:1
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
8
A
9
-D
8
F
0
1
8
A
9
-D
7
B
4
1
8
A
9
-D
6
7
8
1
8
A
9
-D
5
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
5
6
s
_
3
_
3
_
2
0
1
6
C
M
Y
K