Fréttablaðið - 04.03.2016, Side 54
Á VIP-sVæðInu
getur fólk fengIð
allar þær VeItIngar sem
það getur í sIg lÁtIð, borg-
ara, Pylsur,
bjór,
léttVín
og allt
sem það
VIll
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Bryan
Ferry
Á s a m t s t ór r i h ljóm s v ei t
16.05.16
Harpa, Eldborg
h a r pa .i s
Brya n F er ry.c om
t i x .i s
Miðaverð á tónleika Muse, sem fram
fara í Nýju-Laugardalshöllinni 6. ágúst
næstkomandi liggur nú fyrir. Miða-
verð á A-svæði er 15.900 krónur og á
B-svæði er miðaverðið 12.900 krónur.
Þá verður boðið upp á sérstaka
VIP-pakka en einungis 300 slíkir
miðar verða í boði. VIP-miðarnir
kosta 24.900 krónur. „VIP-svæðið er í
miðjum salnum, sem er besti staður-
inn í húsinu og þar sem besta sándið
er. Svæðið verður við hliðina á einum
af útgöngunum, þannig að það verður
búin til sérstök gangbraut fyrir fólkið á
svæðinu,“ útskýrir Þorsteinn Stephen-
sen sem stendur fyrir tónleikunum.
Ýmis fríðindi fylgja VIP-miðunum.
Þeir sem verða á VIP-svæðinu fá til
dæmis sérstakt bílastæði við húsið
og þá verður sér útisvæði fyrir þá sem
eiga slíkan miða. „Á VIP-svæðinu getur
fólk fengið allar þær veitingar sem það
getur í sig látið, borgara, pylsur, bjór,
léttvín og allt sem það vill,“ bætir Þor-
steinn við.
Hann segir VIP-svæðið svokallaða
vera nýjung í íslensku tónleikahaldi.
„Við erum að prófa þetta í fyrsta skipt-
ið, þetta hefur ekki verið gert áður.“
Ekki liggur fyrir hvort eða hver sér
um upphitun á tónleikunum. „Það
verður eitt eða hugsanlega tvö upp-
hitunarbönd en það liggur ekki alveg
fyrir.“ Hljómsveitin Nothing But
Thieves hefur verið að túra með Muse
að undanförnu en eins og fyrr segir
er ekki vitað hvort sú sveit kemur til
landsins líka.
Húsið verður opnað klukkan 18.00
á tónleikadag. „Við ætlum að gera úr
þessu stóran og skemmtilegan rokk-
dag.“
Tíu þúsund miðar verða í boði
á tónleikana og miðasalan hefst
næstkomandi þriðjudag
klukkan 10.00 á tix.is. – glp
þrjú miðaverð á tónleika muse í sumar
Tíu þúsund miðar verða í
boði á tónleika Muse.
MyND/GETTy
„Ég geri nú bara það sem mér er sagt
að gera, sækja kaffi, klæða módelin
eða hvað það er sem hönnuðinum
dettur í hug. Oftast hef ég verið í að
klæða módelin,“ segir Manuela Ósk
Harðardóttir, sem nú undirbýr sig af
krafti fyrir komandi átök baksviðs á
tískuvikunni í París. Þangað heldur
hún á sunnudag og kemur til með að
aðstoða við sýningu Soniu Rykiel.
„Mér hefur verið boðið fjórum
sinnum og nú buðu þau mér aftur,
sem er geggjað. Ég hef fengið að kynn-
ast öllum hjá merkinu vel svo það að
fara út er eins og að hitta gamla vini
bara,“ bendir hún á og brosir. Upphaf-
lega fór Manuela í starfsnám til þessa
heimsþekkta hönnunarmerkis á fyrsta
árinu sínu í fatahönnunarnáminu við
Listaháskóla Íslands. „Ég náði að koma
það vel fyrir hjá fyrirtækinun og skildi
eftir mig gott orð, sem er mjög mikil-
vægt í bransanum, sem og að þekkja
rétta fólkið.“
Manuela er að vonum yfir sig
spennt fyrir ferðinni, en hún hefur
fengið tækifæri til að klæða einhverjar
stærstu tískupallastjörnur heims. „Ég
vann mjög náið með Miröndu Kerr
tvisvar og þurfti að fylgja henni hvert
fótmál. Hún er náttúrulega súper-
stjarna en það verður að segjast að
hún er ótrúlega indæl manneskja,
alveg laus við stæla og bara virkilega
næs týpa. Annað en Kendall Jenner.“
Þá hefur hún unnið með systurunum
Gigi Hadid og Bella Hadid sem um
þessar mundir þykja þær allra heit-
ustu í bransanum. „Ég veit ekki með
hverjum ég vinn núna, það á eftir að
„kasta“ í sýninguna skilst mér.“
Manuela segist ætla að nýta ferðina í
þessa stórbrotnu tískuborg og fjárfesta
í efni fyrir útskriftarsýningu Listahá-
skólans sem fram fer í lok apríl. Hún
segist þó ekki fá greitt fyrir vinnunna,
það tíðkist ekki, en vonist þó eftir að fá
kannski örlítið af efnum með sér heim
frá Soniu Rykiel eins og í fyrra. „Það
væri vel þegið ef þau myndu gauka
einhverju að mér, þetta er rosalega
kostnaðarsamt ferli og ég myndi aldrei
spandera í svona efni fyrir sýninguna,“
útskýrir hún einlæg.
Spurð hvort markið sé sett á að
stilla sér upp innan raða Soniu Rykiel
að lokinni útskrift í vor svarar hún;
„Upphaflega var það ástæðan fyrir
að ég lagði mig svona mikið fram.
Mig langaði að verða kölluð inn og fá
kannski vinnu. Maður veit aldrei svo
sem og getur ekki gengið að neinu
vísu. En reyndar hef ég þroskast sem
fatahönnuður þannig að draumurinn
um að starfa í París í stóru tískuhúsi er
ekki eins skýr og hann var. Ég er ekki
endilega viss um að París henti mínum
stíl,“ segir hún að lokum.
gudrun@frettabladid.is
Samfélagsmiðlaundr-
ið og fatahönnunar-
neminn Manuela Ósk
Harðardóttir bregður
undir sig betri fæt-
inum og aðstoðar So-
niu Rykiel á sýningu
hönnunarmerkisins
á tískuvikunni sem
fram fer í París um
þessar mundir.
klæðir
ofurfyrirsætur
í París
Manuela er
spennt fyrir ferð-
inni til Parísar og
segist halda upp-
teknum hætti
og snappa sem
aldrei fyrr.
4 . m a r s 2 0 1 6 F Ö s T U D a G U r38 L í F i ð ∙ F r É T T a B L a ð i ð
0
4
-0
3
-2
0
1
6
0
4
:1
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
8
A
9
-D
4
0
0
1
8
A
9
-D
2
C
4
1
8
A
9
-D
1
8
8
1
8
A
9
-D
0
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
5
6
s
_
3
_
3
_
2
0
1
6
C
M
Y
K