Fréttablaðið - 29.02.2016, Side 50
Grænar plöntur á baðið
Grænar plöntur og blóm lífga upp á hvers konar rými
svo um munar. Baðherbergið er kannski ekki sá staður
sem fólki dettur fyrst í hug þegar raða á blómum en þó
geta margar plöntur þrifist vel inni á baðherbergi.
Aloe vera-plantan getur haft það fínt inni á baðher-
bergi. Hún þarf ekki mikla birtu og ekki mikið vatn, rak-
inn inni á baðherberginu getur því vel haldið henni í
góðum gír. Hana er líka gott að hafa við höndina við
spegilinn en gelið úr plöntunni er gott á viðkvæma húð.
Tannhvassa tengdamömmu eða indjánafjöður má
vel loka inni á baðherbergi. Hana þarf afar sjaldan að
vökva og hún plummar sig því vel í rakanum frá sturt-
unni. Þó tannhvöss sé er þessi planta sérstaklega góð
í að hreinsa andrúmsloftið og fer því vel hvar sem er á
heimilinu.
Bambus spjarar sig líka afar vel inni á baði. Stað-
setningin þar inni gæti þó skipt máli þar sem hann vex
hratt. Hann fer því best þar sem hann hefur pláss til að
vaxa upp og getur vel staðið á gólfi.
Rakt og gluggalaust umhverfi henta orkídeum
líka ágætlega. Þær eru líka sérstaklega fallegar og gera
mikið fyrir herbergið þó þær blómstri ekki í langan
tíma.
NJÓTTU ÞESS AÐ GERA
BAÐHERBERGIÐ AÐ VERULEIKA
FINGERS 70x120 cm
• Ryðfrítt stál
JAVA 50x120 cm
• Ryðfrítt stál
COMB 50x120 cm
• Ryðfrítt stál
Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - 577 5177 - www.ofnasmidja.is
hafðu það notalegtm i ð s t ö ð v a r o f n a r
HönnunarMars fer fram í Reykjavík
í áttunda sinn dagana 10.–13. mars.
Þar er hönnun kynnt sem atvinnu-
grein sem byggir á traustum grunni
og gegnir veigamiklu hlutverki í
samtímanum. HönnunarMars er
frábær vettvangur fyrir almenn-
ing til að kynna sér það nýjasta og
ferskasta í hönnun og kaupa beint
frá listamanninum sjálfum.
Fjölmargir viðburðir verða á dag-
skrá þessa daga en þar sameinast
allar greinar hönnunar; fatahönn-
un, arkitektúr, húsgagna- og inn-
anhússhönnun, grafísk hönnun og
vöruhönnun.
Meðal viðburða má nefna sýn-
ingar, fyrirlestra, uppákomur og
innsetningar og er ókeypis inn á
flesta viðburði HönnunarMars, þ. á
m. viðburði sem eru sniðnir að fjöl-
skyldufólki.
Viðburðir HönnunarMars eru
skipulagðir af íslenskum hönnuð-
um og arktitektum en á hverju ári
taka um 400 manns þátt. Hönnun-
arMars vekur sífellt meiri athygli
utan landsteinanna og sækja hann
árlega fjöldi erlendra þátttakenda
enda fyrir löngu búinn að sanna sig
sem mikilvægt hreyfiafl í íslensku
samfélagi.
Dagskrá og nánari upplýsingar má
finna á www.honnunarmars.is, á
Facebook og Instagram (@design-
march).
Fersk hönnun
heImIlIð Kynningarblað
29. febrúar 201620
2
9
-0
2
-2
0
1
6
0
4
:2
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
8
9
C
-D
2
E
4
1
8
9
C
-D
1
A
8
1
8
9
C
-D
0
6
C
1
8
9
C
-C
F
3
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
6
4
s
_
2
8
_
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K