Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2007, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2007, Side 6
6 MÁNUDAGUR 19. NÓVEMBER 2007 Fréttir DV A . . .D-r FRÉTTIR Svandísarmálið erfrá Borgarráð hafnaði á föstudag samruna REI og Geysis Green Energy. Á sama fundi var borin upp tillaga um að leita sátta í dómsmáli sem Svandís Svavars- dóttir höfðaði vegna ólögmæts eigendafundar Orkuveitu Reykja- víkur. Þessi sáttatillaga var sam- þykkt og verður því fallið frá málshöfðunirmi. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sátu hjá í atkvæðagreiðslunni og er haft eftir Vilhjálmi Vilhjálms- syni, oddvita Sjálfstæðisflokks í borginni, að best væri að málið gengi sinn feril í dómskerfinu. Kaupþing verst Viðskiptavinir Kaupþings eru óánægðastir, ef marka má könnun sem Capacent Gallup gerði fyrir hönd ís- iensku ánægjuvogarinnar og Sparisjóðsins þeir ánægðustu. Tekið var mið af einstök- um þáttum líkt og þjónustu, vörugæðum og tryggð. Kem- ur fram að Sparisjóðurinn er bestur á öllum sviðum en Kaupþing verst. Þrátt fyrir að ánægjuvog þeirra hafi hækk- að um þrjú stig á milli ára er bankinn enn með lægri ein- kunn í öllum þáttum en aðrir. Byr sparisjóður er nú í fyrsta skipti mældur sem sjálfstætt fyrirtæki og kemur betur út en þrír stærstu bankar lands- ins, Landsbankinn, Glitnir og Kaupþing. Fangelsi vegna ýmissa brota Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi á föstudag þrjá 17 til 19 ára pilta til skilorðsbundinnar fangavistar vegna ýmissa brota. Þyngsta dóminn hlaut lóhann Ari Einarsson, 17 ára, sjö mánaða fangelsi. Hann var meðal annars ákærður fyrir að hafa framið inn- brot og stolið myndbandsupp- tökuvél í verslun ELKO. Hann var auk þess sakfelldur vegna líkamsárásar en hann réðist á starfsmann Intersport. Hann hafði nokkru áður verið staðinn að þjófnaði á skóm. Hinir tveir fengu styttri dóma, annar sex mánaða og hinn tveggja mán- aða. Dómarnir eru allir skilorðs- bundnir til þriggja ára. Athugasemd Ofsagt var í fyrirsögn DV að fréttastjórar RÚV og Stöðvar 2 hefðu verið víttir af Útvarpsrétt- arnefnd fyrir að sýna myndefni sem gæti misboðið börnum og viðkvæmum áhorfendum án þess að varað væri við efninu fýr- ir fram. Nefndinni höfðu borist formlega kvartanir vegna slíkra myndbirtinga og fýrir vikið voru fréttastjórar stöðvanna boðaðir á fund nefndarinnar. Þar var þeim tilmælum beint til fréttastjóranna að varast að birtingu myndefn- is sem getur misboðið bömum auk þess sem birta eigi viðvaranir þegar slíkt efni sé sýnt. Fjárfestingafélagið FL Group hefur tapað allt að fimmtiu milljörðum króna á síðustu Qórum mánuðum. Lækkun á virði bréfa í Finnair, Commerzbank og American Airlines vegur þar þyngst. Eigið fé félagsins hefur lækkað úr 47 milljörðum í 29,5 milljarða króna. Halldór Kristmannsson segir ekkert hæft í fréttum Berlingske Tidende um að félagið gæti þurft að selja hlut sinn í félagi i Danmörku. Hannes Smarason FL Group hefur tapað nærri 2 milljörðum króna frá því október. ,9 m 1É Peningar Talsmaður FL Group segir félagið ekki hafa verulegar áhyggjur þó gengi bréfa í félögum sem FL Group á hlut í hafi lækkað. TflPA HÁLFOM MILLJARÐIA DAG EIGNASAFN FL GROUP í SKRÁÐUM FÉLÖGUM Félag Eignarhlutur Breyting á hlutabréfaverði á ársfjórðungnum Glitnir banki 32,0 prósent - 1,7prósent Commerzbank 4,3 prósent - 20,0 prósent Trvaainqamiðstöðin 83,7 prósent +19,6 prósent AMR Corporation 9,1 prósent -15,4 prósent Finnair 24,2 prósent -11,0 prósent VALGEIR ÖRN RAGNARSSON bladamaður skrifar: valgeir^dv.is Fjárfestingafélagið FL Group hef- ur tapað allt að fimmtíu milljörðum króna á þriðja ársfjórðungi ársins og það sem af er fjórða og síðasta árs- fjórðungi. Eins og ffam kom í upp- gjöri félagsins fýrir þriðja ársfjórðung nam tap félagsins tuttugu og sjö millj- örðum króna. Má það að miklu leytí rekja til mikils taps af rekstri AMR, móðurfélags bandaríska flugrisans American Airlines. Eins og fram hefur komið er FL Group í hópi stærstu eig- enda félagsins með rétt innan við tíu prósenta hlut. Það sem af er þessu ári hefur gengi bréfa í því fallið um fimm- U'u prósent. Hið gífirrlega hrun á bréf- um í American Airlines hefur kost- að FL Group um það bil 25 milljarða króna á þessu ári. Hálfur milljarður á dag Gengi bréfa í FL Group féll nokkuð í Kauphöll íslands fyrir helgi og hafði ekki verið lægra í rúmt ár. Samkvæmt fréttavef danska dagblaðsins Berl- ingske Tidene hefur tap FL Group frá því ársfjórðungsuppgjörið var kynnt, verið um 25 milljarðar króna til við- bótar við það sem áður hafði verið kynnt. Samkvæmt heimildum DV má ætla að óinnleyst gengistap á þessu tímabili sé ekki svo hátt, heldur nemi það nærri 20 milljörðum króna. Mið- að við þessar forsendur má áætla að tap FL Group hafi verið um allt að hálfúr milljarður króna á dag frá því í byrjun október. f tílkynningu FL Group í byrjun þessa mánaðar seg- ir að afkoma félagsins það sem af er ári hafi verið neikvæð um 4 milljarða króna. Til samanburðar hagnaðist fé- lagið um 11 milljarða á fyrstu þremur ársfjórðungum síðasta árs. Því er spáð í dönskum fjölmiðl- um að FL Group gætí neyðst tíl þess að selja hlut sinn í dönsku bruggverk- smiðjunni Royal Unibrew. Félagið á fjórðungshlut í bruggverksmiðjunni en bréf í henni hafa lækkað mikið á síðustu misserum og má reikna með að það tap nemi allt að 1,7 milljörð- um króna. Þá hefur verðmætí bréfa í eigu FL Group í Commerzebank og Finnair lækkað umtalsvert. Gífurlegar eignir Eigið fé FL Group hefúr lækkað það sem af er ári úr 47 milljörðum króna í 29,5 milljarða króna. Heild- areignir félagsins eru metnar á 369 milljarða króna, samkvæmt nýjasta uppgjöri félagsins. Meðal helstu eigna FL Group í skráðum fyrirtækjum má nefna tæp- lega þriðjungshlut þess í Glitni banka. Þá á félagið 4,3 prósenta hlut í næst- stærsta banka Þýskalands, Commerz- bank. FL Group á jafnframt tæpan tíu prósenta hlut í AMR, móðurfélagi American Airlines. Félagið á einnig fjórðungshlut í Finnair sem og Royal Únibrew. FL Group fjárfestí nýlega í um 19 prósenta hlut í breska fyrirtækinu In- spired Gaming Group sem framleiðir hugbúnað til fjárhættuspila. Þá á það 49 prósenta eignarhlut í Referesco sem framleiðir ávaxtasafa og svaladrykki og er stærsta fyrirtæki sinnar tegundar í Evrópu. Félagið á einnig stóran hlut í Geysi Green Energy og House of Fras- er, auk annarra minni eigna. Hallar undan fæti? Halldór Kristmannsson, fram- kvæmdastjóri samskiptasviðs FL Group, segir stefnu félagsins að tjá sig ekki um gengi bréfa félagsins. „Það er ekkert launungarmál að það hafa verið miklar sveiflur og þær eiga við FL Group jafnt og aðra." Aðspurður hvort félagið hafi áhyggjur af gengi bréfa síðustu mánuði svarar Halldór því að fyrirtækið sé sannfært um að góður rekstur sé á stærstu eignum fé- lagsins og góðir framtíðarmöguleikar í virðisaukningu þeirra tíl lengri tíma litíð. Hann segir ekkert hæft í frétt Berlingske Tidende um að FL Group gætí neyðst til að selja hlut sinn í Roy- al Unibrew. Reyni Harðarsyni sálfræðingi finnst óviðeigandi að prestar komi að skólastarfi: Lágkúrulegt af prestinum Reynir Harðarson Reyni finnst lágkúrulegt að nota sjálfsvígsumræðu til að verja innrás kirkjunnar í skóla. „Ég hef reynslu af alvarlegum vanda ungmenna í vinnu fyrir barna- vernd og finnst lágkúrulegt að nota svo alvarlegt mál til að verja innrás Þjóðkirkjunnar í skóla," segir Reynir Harðarson sálfræðingur. f nýjasta helgarblaði DV var ítar- lega íjallað um sjálfsvíg. Séra lóna Hrönn Bolladóttir, sóknarprest- ur í Garðabæ, sagði þar að svoköll- uð Vinaleið gagnaðist vel fyrir ung- menni í vanda. Starf Vinaleiðar felst í sálgæsluviðtölum djákna úr Þjóð- kirkjunni við skólabörn. Reynir telur ekki við hæfi að ræða Vinaleið Þjóðkirkjunnar og sjálfs- víg í sömu andránni. Hann bendir á mörg félög sem hafi ályktað gegn starfi kirkjunnar í skólum. „Hún spyrtí þarna á afar óviðeigandi hátt saman sjálfsvígum og Vinaleið Þjóð- kirkjunnar í skólum - kristílega sál- gæslu. Enginn efast um að gott er að börn geti talað við velviljaða full- orðna manneskju í skólum en ef fjár- magn fæst til þess ætti það að vera fagmaður, ekki prestur eða djákni," segir Reynir. „Fagmaður er ódýrari en prest- urinn og hlutlaus í trúmálum. lóna Hrönn fullyrðir enn einu sinni með röngu að „örfáir aðilar" séu á móti Vinaleiðinni þó að Siðmennt, Ung vinstri græn, Samband ungra sjálf- stæðismanna, Ásatrúarfélagið og samtökin Heimili og skóli hafi álykt- að gegn afskiptum trúfélaga af skól- um í gegnum Vinaleiðina." Nýlega var fallið frá Vinaleið Þjóð- kirkjunnar í Flataskóla í Garðabæ. Foreldri barns við skólann mislík- aði að þurfa að tilgreina sérstaklega ef það vildi ekki að fulltrúi trúfélags nálgaðist barn þess í skólanum, en um ætlað samþykki foreldra fyr- ir Vinaleiðinni var að ræða. f kjölfar fyrirspurnar frá Persónuvernd var starfsemin lögð af í skólanum. Af þeim þremur skólum sem tóku Vina- leiðina upp í Garðabæ er nú aðeins einn eftir, en verkefnið var líka tekið upp í Álftanesskóla í fyrra samkvæmt fyrirmynd úr Mosfellsbæ. erla@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.