Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2007, Qupperneq 7

Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2007, Qupperneq 7
DV Fréttir Illa þefjandi iönaöur og stóraukin bifreiöaeign vekja úlfúö meðal Hríseyinga. HRÍSEYINGAR SKIPTAST í STRÍÐANDIFYLKINGAR Frá Hrísey Úlfúð er meðal Hríseyinga vegna fyrirhugaðrar hausaþurrkunarverksmiðju og stóraukinnar bilaumferðar. ■I Hríseyingar eru klofnir í afstöðu sinni til íyrirhugaðrar hausaþurrk- unarverksmiðju í eyjunni. Borgara- fundi, sem halda átti í dag, hefur ver- ið frestað fram á miðvikudag í þeim tilgangi að bæjarfulltrúar frá Akur- eyri getí mætt til fundarins. „Það er klofningur í bæjarfélaginu vegna áætlana um hausaþurrkunarverk- smiðju og því er áríðandi að fólk getí komið saman og rætt um máliðseg- ir Linda María Ásgeirsdóttir fulltrúi í hverfisráði Hríseyjar, sem stendur fyrir fundinum. Linda segir fólk hafa verið mjög harðort í umræðu um hausaþurrk- unarverksmiðju í eyjunni og Hrísey- ingar hafi nú skipað sér í tvær fylk- ingar, með og á mótí verksmiðjunni. „Ég hef enn ekki heyrt nein rök sem gætu komið í veg fyrir að þessi verk- smiðja fái starfsleyfi. Það dugar til fæmis ekki að segja að það gætí orð- ið ólykt af þessari starfsemi," segir Linda. Hún segir áhyggjur margra beinast að því að hausaþurrkunar- verksmiðja hafi neikvæð áhrif á upp- byggingu ferðaþjónustu í eyjunni. Sjálf verksmiðjan komi tíl með að blasa við fólki þegar það siglir í höfn í Hrísey. „Á hinn bóginn eru þetta út- veggirnir á húsinu sem munu blasa við, þannig að það ættí í sjálfu sér ekki að vera skaði af því." Linda segir Hríseyinga hafa ver- ið óvanalega harða í afstöðu sinni í málinu og bendir á ummæli Smára Thorarensen, forsvarsmanns verk- smiðjunnar, í DV í síðustu viku. „Mér finnst með ólíkindum að fólk vilji standa í vegi fyrir því fáa jákvæða sem fram undan er og við viljum keyra þetta í gegn. Það hvarflar ekki að mér að hlusta á svona kjaftæði og það verður ekkert tillit tekið til óánægju manna sem hafa ekki hug- mynd um hvað þeir tala um," sagði Smári í samtali við blaðamann. Á fundinum ætla fulltrúar í hverf- isráði Hríseyjar einnig að vekja máls á stóraukinni bílaeign í eyjunni. „Eins og málin hafa þróast er orðin talsvert mikil bílaumferð í eyjunni. við getum ekki bannað fólki að aka um, en við viljum ræða hvernig hægt er að sporna við þessari þróun," seg- ir Linda. sigtryggur@dv.is ÞAKKÁRGJDRÐAR KALKUNN A HOTEL CABIN Hm rómaða Þakkargjorðarveisla Hótel Cabin verður haldin dagana 22. og 23. nóvember. í hádeginu 22. og 23. nóvember. Föstudagskvöldið 23. nóvember. Verð einungis: 1.850 kr 2.550 kr föstudagskvöld Léttir djazztónar verða leiknir yfir borðhaldi á föstudagskvöldinu. Borðapantanir í sima 511 6030 HOTEL CABIN HÁlmennar bóklegar greinar eru hluti af námi á öllum brautum skólans. Allt almenna námið er matshæft á milli skóla eftir því sem við á. Einnig er hægt að stunda nám í almennum greinum í eina til fjórar annir. Þeir nemendur sem lokið hafa eða stunda nám á starfsmenntabrautum geta bætt við sig námi sem leiðir til stúdentsprófs af starfsmenntabrautum/ tæknistúdentspróf. % , y A sérdeildarsviði eru tvær brautir: Starfsdeild • Nýbúabraut. Auk þess er endurhæfingarnám janusar (rekið í tengslum Sí við skólann). fjölbreytt^ nam Fjarnám er áhugaverður kostur fyrir þá sem ekki geta nýtt sér staðbundið nám, t.d. vegna vinnu eða búsetu. í fjarnáminu er boðið upp á fjölbreytt námsúrval í bóklegum og fagbóklegum greinum ásamt ýmsum greinum meistaranámsins. Á rafiðnasviði eru eftirtaldar brautir: Grunnnám rafiðna • Rafvirkjun • Rafeinda- virkjun Rafvélavirkjun • Rafveituvirkjun Símsmíði. Stúdentspróf af list- og starfsnámsbraut. við allra hæfi Innritun stendur yfir og lýkur 25. nóvember nk. Innritun er rafræn og eru allar upplýsingar á vef skólans www.ir.is og á skólavef menntamálararáðuneytisins www.menntagatt.is Aðstoð við innritun verður í skólanum 20. og 21. nóvemberfrá kl. 12:30-16:00. Rafræn innritun í fjarnám og kvöldskólann hefst 20. nóvember og eru allar nánari upplýsingar á vef skólans www.ir.is og á skrifstofu í síma 522 6500. ^onat^ Á hönnunarsviði eru fjórar brautir: Listnámsbraut (almenn hönnun og keramik) • Hársnyrting Ekki er tekið inn á Fataiðnabraut og Gull- og silfursmíði á vorönn. Stúdentspróf af list- og starfsnámsbraut. ^9,n9^ Á byggingasviði eru fimm iðnbrautir í framhaldi af grunnnámi bygginga- og mannvirkjagreina: Húsasmfði • Húsgagnasmíði • Múrsmíði • Málun • Veggfóðrun og dúklagningar. Stúdentspróf af list- og starfsnámsbraut. £ £ A upplýsinga- og margmiðlunarsviði eru & Of þrjár brautir: Upplýsinga- og fjölmiðia- "©• S braut • Tækniteiknun • Margmiðlunar- skólinn - en ekki er tekið inn í hann á 1. önn. Á tölvusviði er ein braut: Tölvubraut sem býður upp á sérhæfingu íforritun og netkerfum. Stúdentspróf af list- og starfsnámsbraut. ■iwusv/d ★ IÐNSKÓLINN i REYKJAVlK Skólavörðuholti I 101 Reykjavík Sími 522 6500 I Fax 522 6501 www.ir.is I ir@ir.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.