Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2007, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2007, Qupperneq 10
10 MÁNUDAGUR 19. NÓVEMBER 2007 Umræða DV ÚTGÁFUFÉLAG: Dagblaðið-Vísir útgáfufélag ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Hreinn Loftsson FRAMKVÆMDASTJÓRI: Elín Ragnarsdóttir RITSTJÓRAR: ReynirTraustason og Sigurjón M. Egilsson ábm. FULLTRÚI RITSTJÓRA: Janus Sigurjónsson FRÉTTASTJÓRI: Brynjólfur Þór Guðmundsson AUGLÝSINGASTJÓRI: Ásmundur Helgason Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur. DV áskilur sér rétt til að birta aösent efni blaösins á stafraenu formi og I gagnabönkum án endurgjalds. öll viötöl blaðsins eru hljóörituö. AÐALNÚMER 512 7000, RITSTJÓRN 512 7010, ASKRIFTARSlMI 512 7080, AUGLÝSINGAR 512 70 40. SANDKORN ■ Frægt er að sagt var um Steingrím Hermannsson, eft- ir að hann hætti sem forsætis- ráðherra og var gerður að Seðla- bankastjóra, að hann byggi yfir yfirgrips- mikilli van- þekkingu á efna- hagsmálum. Nú lætur nærri að ámóta sé sagt um Davíð Oddsson, það er eftir að hann fetaði slóð Steingríms, úr Stjórnarráðinu í Seðlabank- ann. Það er nánast sama hvað Davíð segir um efnahagsmál, allt er rengt og allt túlkað á annan hátt en Davíð segir, og jafnvel meinar. ■ Guðmundi Ólafssyni hag- fræðingi leiðist ekki að gagn- rýna Davíð Oddsson fyrir störf hans. Ekki fer á milli mála að Guðmund- ur hefur ekki mætur á störfum Davíðs. Og er svo sem ekki einn um það. Segja má að engir hagspekingar utan Seðlabank- ans taki undir orð Davíðs og gerðir. Nýverið tjáði Davíð sig um vaxandi skuldasöfnun í út- löndum. Það er annarra en rík- isins. Guðmundur Ólafsson hafði hlustað á hagfræðinginn Laffer og sagði að því loknu, aðspurður um orð Davíðs, að orð bankastjórans væru bull. ■ „Nei, það er bara órökstutt bull. Það veit enginn almenni- lega hvað við er átt með að þenslan sé ofmikil og að hag- kerfið geti ofhitnað... Þetta er bara vit- leysa... Hún felst í því að bankastjór- inn hefur miklar áhyggjur af skuldasöfnun almennings og fyrirtækja í útlöndum og að við séum komin að mörkum þess sem þjóðfélagið þolir í þeim efnum. Þetta er í fyrsta skipti í veraldarsögunni sem seðla- bankastjóri kvartar yfir því að almenningur kaupi leikföng." Þetta er bein tilvitnun í Guð- mund. Ekki hrifinn af Davíð. ■ Ólafur Teitur Guðnason hefur gefið út enn eina bók- ina þar sem hann gagnrýn- ir fjölmiðla. f Silfri Egils var hann spurður um neikvæða gagnrýni á bókina. Gagnrýn- andi var ekki sáttur við gagn- rýni á bók sem er ekkert annað en gagnrýni. Til að bæta gráu ofan á svart var honum bent á harða gagnrýni á þýðingu hans á bókinni um Maó. Gagnrýn- andum var ekki skemmt. Upp- lýsti að hann ædaði að svara gagnrýninni með langri gagn- rýni á gagnrýnina. Nokkuð hörundsár gagnrýnandi. -sme LEIÐARI Mdsreknir rithöfimdar REYNIR TRAUSTASON RITSTJÓRI SKRIFAR. Sterk og óbrotin sjálfsmynd íslenskrar þjóðar er ekki síst að þakka bókmenntum á heims- mælikvarða. Það er í raun kraftaverk að þjóð sem telur aðeins 300 þúsund skuli eiga ein- staklinga á sviði heimsins sem etja kappi við rnillj- arða manna og sigra gjarnan. Höfundar á borð við Gunnar Gunnarsson og Iialldór Laxness hafa hald- ið merki þjóðar sinnar hátt á lofti og gera enn. Am- aldur Indriðason er sá höfundur sem mestrar hylli nýtur vegna ritverka sinna um glæpi. Þótt sú gerð bókmennta sé ekki h'kleg til þess að verða sígild styrkir Arnaldur sjálfsmynd okkar sem þjóðar. En það er íhugunarefni hvernig búið er að lista- mönnum á íslandi. Ekki vantar fjöldann sem er á launum frá hinu opinbera en það virðist skorta skynsemi þegar kemur að því að deila út fjármagn- inu. Klíkur ráða því hvaða hvítvoðungar fara á brjóst fjallkonunnar íslensku og fá að vera þar fram í andlátið sumir hverjir. Engin leið er að átta sig á því hvers vegna þessi eða hinn listamaðurinn fer á laun hjá almenningi í landinu. íslenskir rithöfundar búa við þau kjör að ef þeir ekki fá ríkislaun, þá eru þeir háðir grimmum markaði og þeir jafnvel arð- Klikur ráda þvílwada hvitvodungarfara á brjást fjallkonunnar <*! * rændir þegar vel gengur. Engin skynsamleg skýr- ing fæst á þeim yfirgengilegu niðurgreiðslum sem eiga sér stað á sölubókum. Blóðugur slagur á sér stað í stórmörkuðum sem sumir hverjir greiða með hverri seldri bók. Stór forlög gefa af örlæti næst- um helmingsafslátt af bókum sem er góðra gjalda vert ef þeir væru að ráðstafa sínu. Vandinn er hins vegar sá að afslættimir lenda með fullum þunga á pyngjum höfúndanna sem eru ekki spurðir hvort þeir vilji gefa launin sín. Þegar bókaforlag gefúr 50 prósenta afslátt af tiltekinni bók er um leið verið að hlunnfara höfúndinn sem á um sem nemur fjórð- ungshlut í hverri seldri bók. Það stendur því lít- ið eftir þegar gerð er upp sala bókar og oft er eina úrræðið hjá höfúndum sem vilja lifa af list sinni að segja sig til sveitar og þiggja laun frá ríkinu. Það má líkja kjörum rithöfunda á íslandi við það sem gerist hjá sjómönnum á kvótalausum skipum þar sem kvótaverðið er dregið af launum áður en gert er upp. íslenskir rithöfundar sem hafa haldið uppi þjóðarstoltinu eru á sama báti. Með örfáum und- antekningum eru þeir háðir því að vera á opinberu framfæri. Þessu þarf að breyta. MIKILGUÐSBLESSUN DAGGEISLI í vikur hefur íslenska þjóðin ekki skilið, ekki fattað, ekki áttað sig eða verið úti á þekju þegar rætt hefur verið um Reykjavik Energy Invest og Geysi Green Energy. Vilhjálmur, sá sem var borgarstjóri, skildi ekk- ert, stjórnarmenn aðrir skildu ekk- ert og enginn skildi reyndar neitt. Þannig hefur þetta sérstaka mál hrinst áfram. Án þess að nokkur skilji eitt né neitt. Til dæmis hætti Björn Ingi í meirihluta sem vildi ekki sameina Reykjavik Energy Invest og Geysi Green Energy. Nú er hann í meirihluta sem vill ekki sameina Reykjavik Energy Invest og Geysi Green Energy. Svona ein- hvern veginn er þetta búið að vera. Svandís fór í mál en var sögð ekki eiga hagsmuna að gæta. Víst, sagði hún, og gaf sig hvergi. Nú er hún samt hætt við að fara í mál. Það var bara ekki hægt að skilja eitt né neitt í málum Reykjavik Energy Invest og Geysis Green Energy. Þar til á sunnudaginn. Bjartasti dagur ársins. Loksins voru mál- efni Reykjavik Energy Invest og Geysis Green Energy sett fram á mannamáli. Þannig að allir skilja. Loksins. Það var Fréttablaðið sem eyddi öll- um vafa. Með beittum og auðskilj- anlegum texta á forsíðu var efan- um loks eytt. Mikil Guðs blessun og dásemd sem Fréttablaðið getur verið. I þjóðargerseminni, Frétta- blaðinu, segir svo skýrt og svo skorinort: „Rætt er um að Reykja- vík Energy Invest verði fjárfesting- ararmur Orkuveitu Reykjavíkur og kaupi hlut I Geysi Green En- ergy. Á móti myndi Geysir Green kaupa eignir REI. Með þeim hætti gæti Geysir Green unnið áfram að þeim útrásarverkefnum sem voru á teikniborðinu þegar sameining þess og REI var áformuð." Loks- ins er þetta sagt á mannamáli. Nú þarf enginn að efast lengur. Það er sannanlegan mikill léttir. Áfram skýrir Fréttablaðið málið: „Sam- kvæmt heimildum Fréttablaðsins eru hugmyndir í þessa veru upp- runnar í ranni meirihluta borgar- stjórnar og hafa þegar verið unnar nokkuð ítarlega. Er þeim ætlað að leysa þann hnút sem málefni Orkuveitunnar, REI og Geysis Green eru í, ásamt því að tryggja áframhaldandi þátttöku Orkuveit- unnar í útrás á sviði orkumála." Mælt af skilningi og skýrleika. Loks þarf þjóðin ekki að hrista haus- inn þegar rætt er um Reykjavik Energy Invest og Geysi Green En- ergy. Víst er að meira að segja Villi skilur þetta. Orkuveitan eftirlætur Geysi Green Energy útrásina um leið og hún tryggir sér áframhald í útrásinni. Mikið þakklæti þarf að berast Fréttablaðinu fyrir að skýra þetta svona vel. Það kom að því að frá þessu væri sagt á mannamáli. Takk fyrir. DOMSTOLL GÖTUNIVAR MUNIJ HÚSLEITIR SAMKEPPNISEFTIRLITSINS SKILA TILÆTLUÐUM ÁRANGRI? „Ég veit það ekki alveg. Ég held að það verði erfitt að finna út að menn hafi verið I ólögmætu samráöi. Ég held að það muni ekki skila neinu." Frímann Lúðvíksson, 66 ára málari „Ég vona það. Ég er samt ekkert viss um að þarna sé maðkur í mysunni. Ég held að þetta séu það stórfýrirtæki að þau hafa ekkert að fela. Þeir færu ekki að láta koma sér (klandur vegna nokkurra króna." Gunnar Kristinsson, 46 ára múrari „Já, ég reikna með því. Það virðist eitthvað vera á seyði þarna, annars vonum við bara að sannleikurinn komi f Ijós." Málmfríður Sigurðardóttir, 59 ára skólaliði „Já, ég vona það. Þessi húsleit er til merkis um að þessar eftirlitsstofnanir séu virkar. Það er þaö sem við viljum. Annars er erfitt að segja hver niðurstaðan verður. Það verður að koma í Ijós." Óskar Þráinsson, 60 ára bílasmiður

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.