Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2007, Qupperneq 17
DV Sport
MÁNUDAGUR 19. NÓVEMBER 2007 17
Tólf íslandsmet og tuttugu og þrjú unglingamet féllu um helgina á íslandsmeistaramótinu í sundi í 25 metra .
laug. 196 keppendur voru skráðir til leiks frá 12 sundfélögum.
MET FELLll EINSOG HLUTABREF
Um helgina fór fram fslandsmeist-
aramótið í sundi í 25 metra laug, í
Laugardalslauginni. 196 keppendur
voru skráðir til leiks ffá 12 sundfélög-
um. Bestu sundmenn landsins, þar á
meðal Örn Arnarson, Ragnheiður
Ragnarsdóttir og Erla Dögg Haralds-
dóttir, voru mættir til leiks og eins og
við var búist rigndi metunum niður.
Inga Elín Cryer, fA, náði lágmark-
inu í 800 metra skriðsundi íyrir Norð-
urlandameistaramót unglinga sem
fram fer í Færeyjum í desember. Hún
synti á 9:41,52 og lenti í öðru sæti.
Sex sundmenn öðluðust keppnisrétt
á Norðurlandameistaramótinu.
Erla Dögg Haraldsdóttir úr
Reykjanesbæ setti fslandsmet í 100
metra fjórsundi. Hún synti á tíman-
um 1:02,71. Erla Dögg, setti íslands-
met í 100 metra bringusundi fyrir
þremur vikum, er í feiknagóðu formi
og sýndi hversu fjölhæf sundkona
hún er. í sömu grein synti Ragnheið-
ur Ragnarsdóttir úr KR einnig undir
gamla metinu en varð í öðru sæti á
eftir Erlu. Hafnfirski sundkóngurinn
Örn Arnarson bætti enn einu sinni
met í 100 metra skriðsundi þegar
hann synti af ógnarkrafti á 48,42 sek-
úndum.
Karlasveit ÍRB setti íslandsmet í
fjórum sinnum 50 metra skriðsundi.
Nýja metið er 1:33,82 og bættu þeir
eldra metið um tæpa sekúndu.
Eygló Ósk Gústafsdóttir úr Sund-
félaginu Ægi setti tvö meyjamet í
Laugardalslauginni. Hún bætti fimm
ára gamalt met Erlu Arnardóttur SH
um tæplega 1,5 sekúndurí 100 metra
baksundi þegar hún synti á 1:08,92.
Eygló bætti einnig eigið met í 200
metra skriðsundi um tæplega 1 sek-
úndu, 2:14.57.
f fjórum sinnum 50 metra fjór-
sundi bætti Stúlknasveit ÍRB eldra
stúlknametið um 2 sekúndur þegar
þær syntu á 2:04,13.
Metin héldu áffam að falla, Soff-
Viðbúinn, tilbúinn... Sundið
er greinilega á mikilli uppleið.
ía Klemenzdóttir, ÍRB synti 400
metra fjórsund á tímanum 5:00,24
og bætti þar með þriggja ára telp-
namet Jóhönnu Gerðu Gústafsdótt-
ur um 18/100. f 100 metra baksundi
setti Eygló Ósk Gústafsdóttir, Ægi,
sitt fjórða meyjamet á mótinu, hún
synti á 1:08,69 og bætti þar með eig-
ið met úr undanrásunum fyrr um
morguninn.Erla Dögg Haraldsdótt-
ir, fRB, setti nýtt íslandsmet í 100
metra bringusundi. Hún bætti sitt
eigið met og synti á tímanum 1:09,63
og er fyrsta íslenska sundkonan til
að synda undir 1:10 í þessari grein.
Sigrún Brá Sverrisdóttir, Fjölni, sigr-
aði í 200 metra skriðsundi á 2:01,68.
Hún var 6 sekúndum á undan næsta
manni og setti nýtt íslands- og
stúlknamet. Lára Hrund Bjargar-
dóttír átti gamla íslandsmetið sett
árið 2001 og bætti Sigrún það um 1
sekúndu.
í fjórum sinnum 50 metra fjór-
sundi gerði telpnasveit Óðins sér lít-
ið fyrir og bætti telpnamet sveitar KR
sem var sett á þessu sama móti fyrir
ári. Þær syntu á tímanum 2;07,42.
Karlasveit ÍRB sigraði í 4 x 50 fjór-
sundi og setti um leið nýtt íslands-
met á tímanum 1:44,36. Þeir bættu
eigið met um tæplega 1 sekúndu.
Piltasveit fRB lenti í þriðja sæti í
greininni og gerði sér lítið fýrir, setti
nýtt piltamet á tímanum 1:55,55.
Ragnheiður Ragnarsdóttir sund-
kona úr KR gerði sér lítið fyrir og setti
nýtt íslandsmet í fyrstu grein sunnu-
dagsins, 50 metra skriðsundi. Hún
synti á á tímanum 25.46 sekúndum
ogbætti eigið íslandsmet um 10/100
sekúndum.
Eygló Ósk Gústafsdóttir, Ægi, setti
tvö meyjamet. Hún bætti eigið met í
200 metra fjórsundi á 2:29,75 og bætt
eigið met um tæplega 2 sekúndur.
Eins setti hún nýtt meyjamet í 200
metra baksundi á tímanum 2:27,97
um og bætti sitt eldra met um tæp-
lega 1 sekúndu.
Drengjasveit ÍRB setti drengjamet
í 4 x 100 metra skriðsundi á 4:03,72,
sem er bæting um tæplega 2 sekúnd-
ur ffá gamla metinu.
Kóngurinn í fantaformi Örn Arnarson, sundkóngur íslands, er í fantaformi og setti
eitt íslandsmet. Mynd - Benedikt Ægisson
Loyfishafl
Ferdamálastofu
Tveir stórieikir í vor
Urval Utsýn býöur upp á tvær flottar ferðir á Stamford Bridge, heimavöll Chelsea
í vor. Boðið er upp á flug með lcelandair til London, gistingu á 4 stjörnu hóteli í
miðborginni og miða á leikina. ATH að við erum ekki með marga miða í boði á þessa
leiki, fyrstir koma fyrstir fá.
Chelsea v Arsenal
21 .-24. mars
$ SftWlSUtt
mobi
SlXWlSU^ fþjágrannaslagur af bestu gerð, sannkallaður risaslagur í baráttunni um London
m0b,l,Verð: 97.500 kr. á mann í tvíbýli
Innifalið: flug, skattar, gisting í 3 nætur með morgunverði og miði á leikinn
Englandsmeistarar síðustu tveggja ára takast á í leik þar sem úrslit deildarinnar
gætu hreinlega ráðist
Glæsilegur VIP pakki í boði, 3 rétta máltíð á Stamford Bridge fyrir leik ásamt
drykkjum og sæti í West upper stúkunni
Verð: 105.000 kr á mann í tvíbýli
Innifalið: flug, skattar, gisting í 2 nætur meó morgunverði og miði á leikinn (VIP
pakki) Nánari upplýsingar hjá Úrval Útsýn á www.uu.is eða í síma 585-4000
vVELS/r