Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2007, Page 32
Litlar samlokur 399 kr.
+ lítid gosghis 100 kr.
= 499 kr
FRÉTTASKOT
51 2 70 70
DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til frétta.
Fyrir fréttaskot sem verður aðalfrétt á forsíðu greiðist 25.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskot vikunnar greiðist allt að 50.000 krónur.
Alls eru greiddar 100.000 krónurfyrir besta fréttaskot hvers mánaðar.
MANUDAGUR 19. NÖVEMBER 2007 ■ DAGBLAÐIÐ VfSIR STOFNAÐ 1910
Færri erlendir
'* starfsmenn
Samkvæmt tölum frá Alþýðu-
sambandi íslands voru 972 erlendir
starfsmenn skráðir á vinnumark-
aði hér á landi í október síðastliðn-
um. Þeim fækkaði nokkuð á milli
mánaða því í september voru 1239
erlendir starfsmenn skráðir á vinnu-
markaðnum. Til samanburðar voru
r' um 670 erlendir starfsmenn skráðir
á vinnumarkað í október á síðasta
ári. Langflestir erlendra starfsmanna
eru frá ríkjum Evrópska efnahags-
svæðisins.
Vopnaðrán
Þrír karlmenn réðust inn í
Sunnubúðina við Lönguhlíð í gær-
morgun, vopnaðir kylfu og öxi.
Mennirnir réðust að Þórði Björns-
syni kaupmanni og höfðu á brott
með sér peninga og tóbak. Þórður
hugðist leita á slysadeild eftir árás-
ina, en honum og fjölskyldu hans er
nokkuð brugðið.
Lögregla koma á staðinn nokkr-
um mínútum eftir ránið en þá voru
ódæðismennirnir á bak og burt.
Lögreglan handtók svo fjóra menn
vegna málsins um eftirmiðdaginn í
gær. Þeir verða yfirheyrðir við fyrsta
tækifæri.
Stakk vinnufélaga
með hnífi
Maður sem lagði til vinnu-
félaga síns í Hellisheiðarvirkjun
með hnífi í fyrradag gaf sig fram
við lögreglu í gær. Þá hafði verið
lýst eftir honum. Báðir menn-
irnir eru af erlendum uppruna
og voru þeir ölvaðir í virkjuninni
þegar þeim sinnaðist. Hinn slas-
aði hiaut áverka á læri og kálfa og
var fluttur á sjúkrahús. Áverkar
hans voru ekki jafn alvarlegir og
talið var í fyrstu en mikið blæddi
úr sárunum. Hann hefur verið út-
skrifaður af sjúkrahúsinu.
Wathne heim!
SIGTRYGGUR ARI JÓHANNSSON I
blaðamadur skrifar: sigtryggur@dv.is ■
Jón Ásgeir Jóhannesson og Ingibjörg
Pálmadóttir eru haldin utan í brúð-
kaupsferð. Mikilfengleg veisla var
haldin í Hafnarhúsinu við Tryggva-
götu á laugardagskvöd og var þar ekk-
ert til sparað. Um 280 manns sóttu
veisluna, fjölskylda, vinir, fyrirmenni
og frægðarfólk.
í boðskorti frábáðu brúðhjónin sér
gjafir. í stað þess settu þau Jón Ásgeir
og Ingibjörg á laggirnar Sólarsjóð-
inn, sjóð sem ædað er að styrkja lang-
veik börn og aðstandendur. „Megin-
verkefni sjóðsins er að festa kaup á
húsakosti handa langveikum börn-
um og aðstandendum þeirra á með-
an á meðferð stendur," segir Jóhannes
Jónsson, faðir Jóns Ásgeirs.
Tugmilljóna sjóður
Jón Ásgeir og Ingibjörg leggja sjálf
til stofnfé sjóðsins og tryggja þannig
Óupplýst
lögreglumál
Vonskuveður með hálku og
hríð gekk yfir norðanvert landið
fram eftir laugardeginum. Varð-
stjóri hjá lögreglunni á Akureyri
segir að ekið hafi verið á nokkur
umferðarmerki og götuvita, enda
hafi aðstæður verið erfiðar. Götu-
vitarnir séu ekki til frásagnar af
atvikunum og því ólíklegt að mál-
in upplýsist.
Lögreglumenn fóru á stjá
og aðstoðuðu ökumenn beggja
vegna Víkurskarðs, sem og í
skarðinu sjálfu. Skyggni var ekk-
ert, vegir voru flughálir og vind-
hviður snarpar.
Svaka stemning HK-ingar studdu sfna menn af krafti I gær þegar liðið mætti FCK í Evrópukeppni félagsliða í handbolta og
kvörtuðu sumir sáran undan dómgæslunni. Liðið varð að sætta sig við naumt tveggja marka tap gegn danska liðinu.
Gunnari Wathne hefur verið sleppt gegn 9 milljóna tryggingu:
Móðir Gunnars Wathne mætt til Indlands
„Meginverkefni sjóðs-
ins er að festa kaup á
húsakosti handa lang-
veikum börnum og að-
standendum þeirra."
að strax verði hægt að hefjast handa.
Ef miðað er við að hver brúkaups-
gestur hafi lagt tíu þúsund krónur til
sjóðsins nemur ffamlag veislugesta
2,8 milljónum króna. Þá er ótalið
stofnféð sem kemur frá brúðhjónun-
um sjálfum. Þó nokkrir veislugesta
eru sterkefnaðir og telja þeir gestir
sem rætt hefur verið við óhætt að æda
að ffamlagið til sjóðsins á laugardag
hafi verið mun hærra, tugmilljónir að
lágmarki.
Jóhannes Jónsson staðfestir að
ekki sé enn vitað með vissu hve miklu
fé var safnað. Ekki hafi verið lögð
áhersla á að ræða upphæðir í sjálffi
brúðkaupsveislunni.
Kampavín og Kobe-kjöt
Sjálf athöfnin fór fram klukk-
an 17.30 á laugardag í Fríkirkjunni
í Reykjavík og var það séra Hjörtur
Magni sem gaf hjónin saman. Eftir at-
höfnina dreif gestí að Hafnarhúsinu
þar sem skálað var í Dom Perignon-
eðalkampavíni. Meðal þess sem boð-
ið var upp á í veislunni var sérinnflutt
Kobe-nautakjöt. Kjötíð er sérstakt fýr-
ir þær sakir að í lifanda lífi drakk naut-
ið bjór og var fætt á sérstöku gæða-
fóðri. Til þess að tryggja mýkt kjötsins
er skepnan svo nudduð og hún böð-
uð upp úr græni tei.
Nokkuð var um ræðuhöld og ber
gestum saman um að ræður hafi ver-
ið hnyttnar og viðeigandi. Hljóm-
sveitirnar Nýdönsk og Gus Gus léku
fyrir gestí.
Starfsfólkið fámált
Sérhæft breskt viðburðafýrirtæki,
Élan Productions, sá um öll smáatriði
veislunnar. AJlt starfsólk sem að brúð-
kaupinu kom var látið skrifa undir
sérstakan þagnareið þar sem því er
Gunnar Stefán Wathne var leyst-
ur úr haldi indverskra yfirvalda á
fimmtudag. Það var Mukul Mudgal,
dómari við áffýjunarrétt í höfuðborg
Indlands, sem úrskurðaði að Gunn-
ar skyldi látinn laus gegn ríflega níu
milljóna króna tryggingargreiðslu.
Gunnar þarf að gefa sig fram við yf-
irvöld tvisvar í viku þar til fyrir liggur
hvað gert verður í máli hans.
Gunnar Wathne var handtekinn á
Indira Ghandi-flugvellinum í Nýju-
Delí þann 21. september og hef-
ur setið í varðhaldi í tæpa tvo mán-
uði. Samkvæmt heimildum DV eru
tugþúsund fangar í fangelsinu sem
Gunnar hefur setið í. Þeirra á meðal
er breskur ríkisborgari sem setið hef-
ur í fangelsi í átta ár án dóms.
Gunnar hefur verið eftirlýstur af
Gengin út Jón Ásgeir Jóhannesson
og Ingibjörg Pálmadóttir ganga út úr
Fríkirkjunni að lokinni athöfn.
bannað að ræða málefni veislunn-
ar við nokkra aðra en yfirmenn sína.
Fjölda starfsfólks brúðkaupsins var
svo komið fýrir á hóteli í borginni fyrir
og eftir veisluna.
Þagnareiðurinn virðist halda vatni,
enda hefur starfsfólk veislunnar og
gestír verið fremur fámál. Öllum ber
þó saman um að athöfnin og veislan
hafi verið einstaklega vel heppnuð.
bandarískum stjórnvöldum í tvö ár,
allt frá því að dómstóll í Norður-Kar-
ólínu gaf út handtökuskipun á hann
vegna gruns um þvætti á sem nem-
ur 190 milljónum króna af fíkni-
efnagróða Bandaríkjamannsins
Williams Pikard.
Móðir Gunnars og systír
eru nú á Indlandi og hermir
fréttamiðillinn Earth Times eft-
ir lögmanninum Abhishek
Singhvi að Gunnar hafi
boðist til þess að leggja
vegabréf mæðgnanna
inn til frekari trygging-
ar. „Sakborningurinn
hefur engan glæp fram-
ið á Indlandi og þess utan
var peningaþvætti ekki sak-
næmt athæfi hér í landi fyrr
en í júlí á þessu ári," segir Singhvi.
Talið er að Gunnar hafi dvalist í
Rússlandi síðustu árin og að viðskipt-
in ólöglegu hafi ferið fram í gegnum
fyrirtæki hans í Austur-Evrópu.
Peningaþvættíð er sagt hafa
farið þannig fram að Banda-
ríkjamaðurinn hafi framleitt
umtals- vert magn af of-
skynjunarlyfinu
LSD. Hagnað-
ur af fíkniefna-
framleiðslu Pik-
ards. er talinn
hafa endað hjá
Gunnari í Rúss-
landi og komið tíl
baka sem rann-
sóknarstyrkur.
sigtryggur@dv.is
Talið rænt af
barnaníðingum
Francisco Marco, hjá spæjaraíyr-
irtækinu Metoto 3, segist handviss
um að Madeleine sé á lífi og að hana
sé að finna í Marokkó. Hann telur
henni hafa verið rænt af þremur að-
ilum íýrir hring barnaníðinga.
Spænskir einkaspæjarar sem
sérhæfa sig í að finna týnd börn
hafa verið ráðnir til að hafa uppi á
Madeleine McCann. Hingað til hafa
þeir undantekningalaust fundið þau
börn sem þeir leita að og foreldr-
ar stúlkunnar eru vongóðir um að
Madeleine finnist von bráðar á lífi.
Milljónir söfnuðust í brúðkaupi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og Ingibjargar Pálmadóttur:
MILLJÓNIR SAFNAST í
MILLJÓNABRÚÐKAUPI