Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2007, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2007, Page 13
 Runólfur Ólafsson er framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, en félagið heldur upp á 75 ára afmæli sitt þann 30. nóvember. Margt hefur auðvitað breyst á þessum langa tíma en Runólfur segir gildin enn þau sömu. „Félagið var stofnað vorið 1934 Ien helstu hvatamennirnir að því voru þeir Einar Pétursson stór- kaupmaður og Helgi Tómasson læknir á Kleppi. Þann 6. maí var boðað til stofnfundar í Eimskipa- félagshúsinu í Tryggvagötu en 36 manns sátu fundinn," segir Run- ólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB, en félagið er 75 ára um þess- ar mundir. „Félagar urðu hundrað talsins á fyrsta árinu en alls voru 1637 bílar á landinu árið sem fé- lagið var stofnað," segir Runólf- ur. Helstu bflategundirnar á þess- um tíma voru Ford og Overland en seinna vörumerkið er ekki til í dag. „Þetta var meira að segja fyr- ir tíma Willis-jeppanna sem komu með Könunum um 1942. Á þess- um tíma voru það aðallega efnaðir menn sem áttu bfla, enda var félag- ið stofnað í miðri heimskreppunni. Árgjaldið var mjög hátt, líklega sem nemur um 20 þúsund krónum í dag," segir Runólfur. Umferðaröryggi ávallt í fyrirrúmi Þrátt fyrir að samfélagið hafi tek- ið ótrúlegum breytingum á þessum 75 árum segir Runólfur að FÍB standi enn þann dag í dag íyrir sömu gild- um og þegar félagið var stofnað. „Til- gangurinn með stofnun félagsins var að gæta hagsmuna biffeiðaeigenda, Istuöla að umferðaröryggi fyrir alla vegfarendur og að leiðbeina félags- mönnum við bifreiðaferðir innan- og utanlands. Þetta síðasta á kannski ekki alveg við í dag en FÍB hefur afla tíð staðið fyrir bættu umferðaröryggi og staðið vörð um hagsmuni bifr eiða- eigenda. I gamla daga vildu bflaeig- endur fara með bfla sína til útlanda til að keyra þá um þar, á betri vegum," segir Runólfur léttur í bragði. Fyrstu árin lagði FfB ríkinu tfl fjármagn til vegagerðar. „Vegir voru auðvitað ekki góðir á þessum tíma. FfB lagði því ríkinu til styrki, með- al annars til að leggja ökufæran veg yfir Kópavogsháls og yfir til Hafnar- fjarðar. Það var heilmikið ferðalag í þá daga en félagið sinnti einnig vega- eftirliti. Þeir fylgdust vel með veg- unum og kortlögðu hvar hættumar væru mestar og hvar þyrfti helst að lagfæra." Skýrsla um ástand vega væntanleg í tilefni af afmælinu verður þann 30. nóvember haldið afmælisþing. Þá verður einnig haldin ráðstefna um umferðarröryggi á heimsvísu. Forstjóri FIA foundation, Saul Bill- ingsley, kemur til landsins og ijall- ar um umferðaröryggi í víðu sam- hengi. Hann mun auk þess svara fyrirspumum. Þá verður glæný skýrsla sem unnin var af EuroRAP á íslandi opinbemð en FÍB hefur unnið að henni undanfarin miss- eri. „Skýrslan leiðir margt athygli- vert í ljós, en hringvegurinn var til dæmis myndaður og metinn í bak og fýrir. f skýrslunni kemur með- al annars fram hvaða vegkaflar og svæði eru hættulegust á hringveg- inum," segir Runólfur. Félagar voru í upphafi 36 tals- ins, eins og áður kom fram en þeir eru í dag um 16 þúsund. Runólf- ur segir bílinn þarfasta þjóninn í dag. „Við notum bílinn til nær allra okkar ferða. Við erum háðari hon- um en margar aðrar þjóðir og þess vegna er afar mikilvægt að standa vörð um hagsmuni bifreiðaeig- enda. Félagsmenn í FÍB njóta ým- issa fríðinda víðs vegar um heim- inn. Þeir fá afslætti af dekkjum, bifreiðaskoðunum, bflaleigubfl- Runólfur Ólafsson framkvæmda- stjóri FÍB Segir markmið FÍB enn þau sömu. um, hótelum, matsölustöðum og jafnvel bensíni. Þá býður FfB upp á þá þjónustu að aðstoða ökumenn í vandræðum, hvort sem þeir eru bensínlausir eða með sprungið dekk. Þjónustubflarnir eru við öllu búnir og koma félagsmönnum til hjálpar. Það getur því verið fljótt að borga sig að vera félagsmaður í FÍB," segir Runólfur að lokum en félagið notar allan hagnað í það að efla þjónustu við félagmenn. /--------------- Framhald á næstu opnu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.