Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2007, Side 2
Fréttir DV
2 MÁNUDAGUR 3. DESEMBER 2007
Reykherbergi til
skoðunar
„Við munum skoða þessi mál
og erum reyndar byrjuð á því,"
segir Rósa Magnúsdóttir, deildar-
stjóri hollustuhátta hjá umhverf-
issviði Reykjavíkurborgar.
DV flutti fféttir í síðustu viku
af reykaðstöðu skemmtistaða
sem efasemdir eru uppi um að
standist lög. Meðal annars var
bent á rými innandyra á Barn-
um við Laugaveg 22 og einnig
hugsanlegar ólöglegar útgáfur
skemmtistaðanna Hressó og Rex
í Austurstræti. Rósa segir ljóst að
séu þessi rými ekki utandyra séu
lög brotin því að reykingar eru
ekki heimilar innandyra.
Reyndi að stinga
lögguna af
Ökumaður undir áhrifum
lyfla reyndi að stinga lögreglu af
er hún var við hefðbundið eftir-
lit á Sæbrautinni á föstudaginn.
Ökumaðurinn ók í gegnum lok-
anir á brautinni en stöðvaði að
lokum bifreið sína eftir nokkra
eftirför. Lögreglan stöðvaði alls
fjögur hundruð og fimmtíu öku-
menn en það er liður í átaki gegn
ölvunarakstri. Einn þeirra reynd-
ist vera undir áhrifum áfeng-
is. Lögreglun mun á næstunni
verða með skipulagt eftirlit við
stofnbrautir borgarinnar.
Fjórir undir áhrif-
um fíkniefna
Lögreglan á Selfossi hand-
tók fjóra ökumenn sem reynd-
ust undir áhrifum fíkniefna um
helgina. Lögreglan hefur haft af
nógu að taka við að leita uppi
slíka ökumenn en undanfarnar
helgar hafa komið upp /-
fimm mál að meðal-
tali um hverja helgi.
Samkvæmt upplýs-
ingum frá lögregl-
unni á Selfossi hafa
sömu ökumenn-
irnir komið ítrekað
við sögu. Það sem
af er ári hafa 92 mál
komið á borð lögregl-
unnar þar sem um er
að ræða fi'kniefnaakstur.
Ennífarbanni
Viggó Þórir Þórisson, fyrr-
verandi framkvæmdastjóri
Verðbréfaþjónustu Sparisjóð-
anna er enn í farbanni á meðan
rannsókn efnahagsbrotadeildar
Ríkislögreglustjóra stendur yfir.
Björn Þorvaldsson segir deildina
enn vera að sækja upplýsingar
til þeirra landa sem málið teyg-
ir anga sína til og rannsóknin
sé afar tímafrek. Viggó Þórir er
grunaður um tilraun til hundruð
milljóna króna fjársvika. Viggó
Þórir hefur verið yfirheyrður ný-
lega vegna málsins.
Mikil sorg ríkir í Reykjanesbæ í kjölfar hörmulegs bílslyss sem leiddi Qögurra ára
dreng, Kristin Veigar Sigurðsson, til dauða. Árni Sigfússon bæjarstjóri er harmi sleg-
inn vegna atburðarins. Hann segir að líklega verði flýtt framkvæmdum til að auka
öryggi vegfarenda á Vesturgötu þar sem slysið varð. Guðmundur Símonarson, íbúi á
Vesturgötu, segir að í sumar hafi í tvígang verið ekið á börn fyrir utan hjá honum.
ÍBÚAR í REYKJANESBÆ
ERU HARMISLEGNIR
Minningarstund (búar við Vesturgötu kveiktu á kertum til að sýna Kristni og fjölskyldu hans stuðning.
EINAR ÞÓR SIGURÐSSON
bladamaður skrifar einar@dv.is
„Ég er harmi sleginn yfir þessum
atburði og við erum það öll hér í
Reykjanesbæ. Okkar hugsunum og
bænum er fyrst og fremst beint til
foreldra og ættingja drengsins," segir
Arni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykja-
nesbæ.
fbúar við Vesturgötu hafa um
nokkurt skeið barist fýrir úrbótum
við götuna því hraðakstur hefur ver-
ið nokkuð tíður þar. Hafa íbúar bent
bæjaryfirvöldum á að úrbóta væri
þörf því annars myndi stórslys eiga
sér stað. Sú varð raunin á föstudag
þegar ekið var á hinn fjögurra gamla
Kristin Veigar Sigurðsson. Krist-
inn lést á laugardag á Landspítalan-
um af völdum áverkanna sem hann
hlaut í slysinu. fbúar við Vesturgötu
voru með táknræn mótmæli á laug-
ardaginn og lokuðu fýrir umferð um
götuna. Hafa þeir bent á að aðgerð-
arleysi yfirvalda sé með hreinum
ólíkindum.
Margt verið gert
Árni segir að bæjaryfirvöld hafi
rætt, með íbúum, hvernig bæta
megi umferðarmenninguna í bæn-
um. Hann segir að margt hafi verið
aðhafst á undanförnum árum og til
marks um það hafi verið settar upp
Gæsluvarðhald Maðurinn sem grunað-
ur er um að hafa ekið á Kristin var
úrskurðaður í gæsluvarðhald til
fimmtudags. dvmyndir: þorgilsjónsson
hátt á annað hundrað hraðahindran-
ir innanbæjar og hraðatakmarkan-
ir inni í hverfum. „Við buðum ungu
fólki nýlega ókeypis í strætó til að
tryggja öryggi barnanna á viðkvæm-
um gönguleiðum. Þar að auki hefur
lögreglan hert viðurlög við hraðakst-
ursbrotum og fylgt þeim fastar eftir.
Við munum halda slíkum aðgerðum
áfram."
Forða slysum
íbúar við Vesturgötu eru margir
hverjir ósáttir við aðgerðarleysi bæj-
aryfirvalda. Vesturgata er tengigata
á milli Hafnargötu og Hringbrautar
og því hafi verið álitamál með hvaða
hætti ætti að setja hraðatakmarkan-
ir á slíka braut. „Hún hefur þá áhrif
og vísar umferð annað. Það þarf að
huga mjög vandlega að þessu og
það eru tvær aðgerðir á dagskrá með
vorinu. Annars vegar eru fyrirhuguð
ljósastýrð gatnamót við Hringbraut
og hins vegar hraðahindrun fyrir
neðan Kirkjuveg sem er rétt við Vest-
urgtötu." Aðspurður hvort til greina
komi að flýta þeim aðgerðum segir
Árni að það komi vel til greina. „Við
viljum gera allt til að forða slysum og
við teljum að þessar aðgerðir okkar
á undanförnum árum hafi átt þátt í
því að ekki hafa orðið önnur alvarleg
slys. Þetta segir okkur að við verðum
að halda vöku okkar."
Slys algeng
Guðmundur Símonarson á heima
á Vesturgötu 15 og segir hann að íbú-
ar séu slegnir eftir atburðinn. „Allir
íbúarnir eru búnir að fá meira en nóg
af þessu. Þessi mótmæli hafa stað-
ið í nokkur ár en samstaðan í gær
var mikil og við vonum að nú verði
hlustað. Ég trúi því að það verði bætt
úr þessu strax. Það virðist ríkja mikil
samstaða um það."
Guðmundur segir að slys hafi ver-
ið nokkuð tíð á Vesturgötunni. Hann
segir að hann hafi horft upp á það í
tvígang í sumar að ekið var á gang-
andi vegfaranda. „Það er gangbraut
beint fyrir utan húsið mitt. f annað
skiptið hjólaði stúlka utan í bíl og í
hitt skiptið var keyrt á strák sem var
að ganga yfir gangbrautina."
Lögreglan þögul
Karlmaðurinn sem handtek-
inn var síðdegis á laugardag var úr-
skurðaður í gær í gæsluvarðhald til
fimmtudágs. Komið hefur fram að
maðurinn er af erlendum uppruna
en lögreglan á Suðurnesjum vildi
þó hvorki staðfesta það né að hann
hefði játað að hafa ekið á drenginn.
Kona sem ók á eftir bílnum taldi
sig hafa séð dökkan skutbíl aka á
drenginn á nokkrum hraða. f kjöl-
farið hóf lögregla leit að bflnum og
þræddi nánast allar götur bæjarins
í leit að bflnum. Sú leit bar árangur
á laugardag og vár eigandi bifreiðar-
innar handtekinn í kjölfarið. Biffeið-
in var dælduð að framan og stendur
rannsókn á henni enn yfir. Lögreglan
er auk þess enn að fylgja eftir fjölda
ábendinga sem borist hafa.
Ólafur F. Magnússon verður kjörinn forseti borgarstjórnar á morgun:
Áhersla á velferðar- og umhverfismál
Kominn aftur Ólafur mun hefja störf að nýju eftir að hafa verið í veikindaleyfi frá þv(
í byrjun árs.
„Ég hafði hugsað mér að koma
aftur til starfa í borginni eins fljótt og
kostur er," segir Ólafur F. Magnússon,
borgarfulltrúi Frjálslynda flokksins
og óháðra. Ólafur hefur verið í veik-
indaleyfi frá því fýrr á þessu ári en er
á leið til baka í borgarstjórn. Margrét
Sverrisdóttir kom inn sem varamað-
ur í stað Ólafs og hefur hún starfað
sem forseti borgarstjórnar síðan nýr
meirihluti var myndaður fyrir ein-
um og hálfum mánuði. Á borgar-
stjórnarfundi sem haldinn verður á
morgun má því vænta þess að Ólafur
verði kjörinn forseti borgarstjórnar í
stað Margrétar sem mun víkja. „Það
liggur fýrir að fulltrúi F-listans gegni
þessu embætti og þar sem við erum
með einn borgarfulltrúa er ekki um
að annað að ræða," segir Ólafur.
Aðspurður hvort einhverra breyt-
inga sé að vænta með endurkomu
hans í borgarstjórn segir Ólafur að
hann muni halda áfram að vinna í
anda þeirrar stefnu sem sett var fram
fyrir borgarstjórnarkosningar í fýrra.
„Ég mun gera mitt besta til að vanda
mig í þeim störfum. Svo verða menn
að ná lendingu í þeim málum sem
ekki hefur náðst samstaða um. Ég
mun fara í þetta samstarf með það
að leiðarljósi að styðja nýjan borgar-
stjóra til góðra verka."
Aðspurður hvaða mál séu honum
hugleikin segist Ólafur ávallt hafa
lagt áherslu á velferðar- og umhverf-
ismál. „Ég er búinn að vera lengi
í þessu og hef haft nokkuð skýra
stefnu í þessum málum. Ég vil búa
borgarbúum öruggt og gott umhverfi
í vistvænni borg. Ég hef áherslur í
samgöngumálum sem ég mun áfram
beita mér fyrir. Það verður að fara vel
yfir þau mál og skoða þau vandlega.
Við munum halda áfram að standa
fyrir okkar áherslum. Ég tel að við
séum ekki flokkur sem hefur sóst eft-
ir völdum, frekar áhrifum með því að
koma okkar stefnu og málum fram."
einar@dv.is