Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2007, Qupperneq 4
4 MÁNUDAGUR 3. DESEMBER 2007
Fréttir DV
Lengri flugbraut
næsta haust
„Við vonum að það fari að
styttast í framkvæmdir," segir
Hermann J. Tómasson, formaður
bæjarráðs á Akureyri. Á fimmtu-
dag voru væntanlegar fram-
kvæmdir við lengingu flugbraut-
arinnar á Akureyri kynntar á
fundi bæjarráðs.
Hermann segir að gangi allt
eftir verði hægt að bjóða verkið
út í vor og framkvæmdir geti því
hugsanlega hafist næsta sumar.
„Bjartsýnustu spár gera ráð fyrir
að þá væru menn að ganga frá
verkinu næsta haust," segir Her-
mann. Lenging flugbrautarinn-
ar á Akureyri hefur lengi verið í
burðarliðnum. Iceland Express
ákvað að hætta vetrarflugi til og
frá Akureyri vegna þess að braut-
in þótti of stutt.
Nýsundlaug
á Skagann
Bæjarstjórn Akraness hef-
ur samþykkt að láta hanna
og hefja byggingu á nýrri 25
metra langri innisundlaug við
íþróttasvæðið á Jaðarsbökk-
um. Laugin verður með átta
brautum en kostnaðurinn
við laugina verður á bilinu
tvö til þrjú hundruð milljón-
ir króna. í síðustu viku voru
fr amkvæmdirnar kynntar fyrir
bæjarstjórninni en nú þegar
hefrir verið gerður hönnunar-
samningur við VGK hönnun.
Ekki liggur fýrir hvenær fram-
kvæmdirnar hefjast en líklegt
þykir að þeim verði flýtt.
Krufningar beðið
Lögreglan á Selfossi bíður
enn niðurstöðu krufningar til að
skera úr um dánarorsök fanga
sem lést á Litla-Hrauni 22. sept-
ember. Rannsókn málsins miðar
við krufninguna og næstu skref
verða ákveðin þegar niðurstaða
liggur fyrir. Fanginn fannst látinn
í klefa sínum að morgni dags.
Starfsfólk og fjölskylda áttu sam-
töl við fangann laust fýrir mið-
nætti kvöldið áður og þá komu
engar vísbendingar fram um að
eitthvað bjátaði á hjá fanganum.
Grétar Mar Jónsson, þingmaður Frjálslynda flokksins, segir mikinn spillingarþef af
viðskiptum með íbúðir á Miðnesheiði. Angar Sjálfstæðisflokksins teygi sig óeðlilega
víða. Böðvar Jónsson, bæjarfulltrúi i Reykjanesbæ, furðar sig á umræðunni.
rn 1rn
IWJ? n
71
í ,
I
Varnarliðssvæðið Háskólavellir keyptu
tæplega 1.700 íbúðir og er kaupverðið
um átta milljónir króna á hverja (búð.
TIPl iö V
m i] D3
iri
„Þama er bullandi spilling í gangi.
Það er bara þannig," segir Grét-
ar Mar Jónsson, þingmaður Frjáls-
lynda flokksins. Grétar er ósáttur
við sölu Þróunarfélags Keflavíkur-
flugvaliar á 1.660 íbúðum á Miðnes-
heiði í byrjun október. Grétar segir
að málið verði rannsakað ofan íkjöl-
inn þar til niðurstaða fáist um hvort
salan hafi verið lögmæt. Hann hef-
ur safnað að sér gögnum um málið
og segir að mikill spillingarþefur sé
afþví.
Þróunarfélag Keflavíkurflug-
vallar, Kadeco, gekk þann 5. október
frá sölu á 96 byggingum á starfssvæði
Þróunarfélagsins. Háskólavellir
keyptu byggingarnar en af þeim eru
um 1.660 íbúðir. Kaupverðið var um
14 milljarðar króna en að mestu er
um að ræða íbúðarhúsnæði.
Átti að auglýsa
Samkvæmt reglugerð á sala á
fasteignum ríkisins að vera í hönd-
um Ríkiskaupa og auglýstar opin-
berlega. Það var ekki gert við sölu
eignanna á Miðnesheiði. Grét-
ar segir að auðveldlega hefði verið
hægt að fá helmingi hærri upphæð
fyrir eignirnar. „Þetta lítur þannig út
að menn hafi komið sér saman um
að framkvæma þetta svona. Það var
21 aðili sem bauð í íbúðirnar sem
Háskólavellir fengu. Það hefði verið
hægt að fá um helmingi hærra verð
fyrir eignirnar ef þær hefðu verið
seldar í smærri einingum og jafn-
vel bara einstaka hús," segir Grét-
ar en meðalverð hverrar íbúðar var
átta milljónir króna. Grétar segir
að Sjálfstæðisflokkurinn teygi anga
sína um öll Suðurnesin og sjálf-
stæðismenn séu innviklaðir í nán-
ast öll þau fyrirtæki sem koma að
Háskólavöllum.
Siðlaust
Grétar segir að salan sé hugsan-
lega lögleg en að sama skapi alveg
örugglega siðlaus. „Þetta er þannig
gjörningur því fermetraverðið er
helmingi lægra. Meðalfermetraverð-
ið á svæðinu er 89 þúsund krónur.
Þannig væri hægt að selja eignirnar
aftur fyrir um 30 milljarða króna. Þeir
vissu að þegar þetta fer á almennan
markað eftir þrjú til fjögur ár er hægt
að fá miklu hærri upphæð fýrir þetta.
Þetta er líklega ein mesta spilling
sem maður hefur séð í seinni tíð."
Grétar segir að Arni Mathiesen
íjármálaráðherra hafi búið til ramma
utan um Þróunarfélagið. „Maður sér
fýrir sér að búinn hafi verið til hópur
af sjálfstæðismönnum og reynt hafi
verið eftir fremsta megni að troða
þeim inn í til að þeir fengju sem
mest fyrir sinn snúð. Það eru margar
spurningar í þessu og þessi tengsl við
Sjálfstæðisflokkinn eru eins óeðlileg
og hugsast gemr."
Verði rannsakað
Grétar segir að farið verði fram
á rannsókn á málinu til að fá úr því
skorið hvort salan hafi verið brot á
lögum. „Ég vil fá úr því skorið hvort
þetta hafi verið brot á lögum. Það er
alveg á hreinu að þarna er að minnsta
kosti um siðferðislegt brot að ræða.
Ef um lögbrot er að ræða þarf að færa
þessa menn til ábyrgðar. Ég veit ekki
með hvaða hætti eða hvernig rann-
Ósáttur Grétar er ekki sáttur við
vinnubrögðin við sölu eignanna á
Miðnesheiði. Hann vill að málið verði
rannsakað ofan í kjölinn.
sóknin verður en það verður farið
ofan í saumana á því."
Grétar segir að angar Sjálfstæð-
isflokksins teygi sig víða í málinu.
Þannig tengjast fimm af sjö bæjarfull-
trúum í Sjálfstæðisflokknum eigna-
kaupunum. „Þetta eru ansi skemmti-
leg og merkileg krosstengsl sem öll
tengjast Sjálfstæðisflokknum."
Ekkert óeðlilegt
Böðvar Jónsson, bæjarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ
og aðstoðarmaður Arna Mathiesen
fjármálaráðherra, furðar sig á um-
ræðunni um að þarna hafi verið um
spillingu að ræða. „Það er talað um
að þetta hafi ekld verið auglýst. Þetta
var hins vegar auglýst í öllum helstu
fjölmiðlum landsins. Svo er talað um
að bæjarstjórinn hafi verið vanhæf-
ur af því að hann þekkir okkur og
er í bæjarstjórn með okkur hinum.
Ég er einnig dreginn inn í þetta út af
vinnunni minni sem aðstoðarmað-
SJÁLFSTÆÐISMENN
SEMTENGJAST
SÖLUNNI:
Árni Sigfússon
Bæjarstjóri í Reykjanesbæ
Stjórnarmaður í Þróunarfélaginu
Stjórnarformaður í Keili
BöðvarJónsson
Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks (
Reykjanesbæ
Aðstoðarmaður Árna Mathiesen
fjármálaráðherra
Steinþór Jónsson
Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks f
Reykjanesbæ
Stjórnarformaður Base
Hótel í hans eigu á hlut í Base
Þorsteinn Erlingsson
Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks í
Reykjanesbæ
Stjórnarformaður Sparisjóðsins í
Keflavlk
Sparisjóðurinn á 22 prósenta hlut í
Háskólavöllum
Garðar Vilhjálmsson
Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins
Á eignarhaldsfélagið 520 ehf
Það hefur keypt 800 fermetra
skemmu á varnarliðssvæðinu
sem var í eigu Base
Bjarni Benediktsson
Stjórnarformaður hjá N1 og
þingmaður Sjálfstæðisflokks
N1 á hlut í Base sem keypti eignir á
varnarliðssvæðinu
ur ráðherra sem kemur ekki nálægt
sölumálunum. Þetta er að mínu mati
með ólíkindum."
EINAR ÞÓR SIGURÐSSON
bladamaður ikrifar einar@dv.is
/ /\ _L_ /\ \\*
Leiðarvísir
; User Manual
i Um þig, manninn,
konuna eða börnin.
Á Loksins! 1 \ a v
^ Nas&W
m$M/i
Stjörnuspekistöðin m ' ■
Síðumúli 29 Á'jfiá
5537075 ÍB-rf
www.stjornuspeki.is
Starfsmenn Alcan telja að vegið sé að starfsöryggi þeirra:
Stjórnvöld binda hendur Alcan
Urgur og kurr er í starfsmönnum
álvers Alcan í Straumsvík vegna þess
að þeir telja að yfirvöld hafi bundið
hendur fyrirtæksins með því að út-
hluta fyrirtækinu ónægar losunar-
heimildir á koltvíóxíði fyrir næstu ár.
Með því geti yfirvöld hamlað vexti
og starfsemi álversins á næstu árum.
Gylfi Ingvarsson trúnaðarmaður
starfsmanna Alcan telur að aðgerðir
yfirvalda vegi að starfsöryggi starfs-
manna. „Alcan í Straumsvík hefur
staðið sig afar vel í öllum umhverfis-
málum og þau mál eru til fýrirmyndar.
En því miður njótum við starfsmenn
þess ekki í nýjustu úthlutun losunar-
heimilda og það skerðir rekstrarstöðu
fyrirtækisins," segir hann.
Gylfi telur að álver Norðuráls á
Grundartanga og Fjarðaráls á Reyð-
arfirði hafi fengið rýmri úthlutunar-
heimildir. Hann ætlar að kalla eft-
ir skýringum frá yfirvöldum. „Okkur
finnst lykt af því að það sé verið að
stýra því þannig að okkar vinnu-
staður fái ekki að þróast. Ef við gerð-
um úrbætur til þess að hægt yrði að
ffamleiða meira, þá þyrfti að draga
úr framleiðslu. Starfsmenn vilja að
hægt verði að reka fyrirtækið á hag-
stæðan hátt en ekki að draga saman
og hætta."
Gylfi álítur yfirvöld senda mjög al-
varlega skilaboð til starfsmanna og
stjómerida fyrirtækisins. „Það skerðir
starfsöryggi okkar ef stjórnvöld halda
þannig á spöðunum að fýrirtæki fái
að vaxa og dafria annars staðar, en Al-
can sem uppfyllir alla staðla í öryggis-
og umhverfismálum, sé refsað á sama
tíma."
valgeir@dv.is