Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2007, Síða 10
10 MÁNUDAGUR 3. DESEMBER 2007
Sport DV
íslenska kvennalandsliðið í handbolta tryggði sér rétt til umspils
fyrir lokakeppni EM en ísland endaði í öðru sæti síns riðils í
undankeppninni. Anna Úrsúla Guðmundsdóttir var valin í
úrvalslið mótsins.
ÍÞRÓTTAMOLAR
DREGIÐ f RIÐLA Á EM 2008
í gær var dregið í riðla á EM 2008. (talla,
Frakkland og Holland leika saman í riðli
ásamt Rúmeníu og er óhætt að segja að
þettasésannkallað-
urdauðariðill. Fyrir
dráttinn óttuðust
ítalirog Frakkar
meðal annarra að
lenda í riðli með
öðrum sterkum
þjóðum þarsem
ekki var farið eftir
frammistöðu liðaá
síðustu HM-keppni.
Þetta þýðir að ein af þeim þjóðum sem þyk-
ir líklegust til þess að sigra í keppninni mun
falla úr keppni við fyrstu hindrun. Italir og
Frakkar léku einnig hvorir á móti öðrum í
undankeppninni auk þess sem nokkrar
eftirminnilegarviðureignirhafafariðframá
milli liðanna á undanfömum árum.
Skemmst er að minnast úrslitaleiksins á EM
2004 sem Frakkar unnu. Raymond
Domenech þjálfari Frakka var svekktur eftir
dráttinn.„Ég er ekki ánægður með dráttinn
frekar en hinir þjálfararnir. Það er erfitt að
gleðjast eftir að hafa dregist niður í slíkan
riðil," segir Domenech. Roberton Donadoni
var yfirvegaður þrátt fyrir að lenda í erfiðum
riðli.„Ég hafði það á tilfinningunni að við
myndum lenda í þessu, en þú breytir ekki
reglunum og í lokakeppni er hver leikur
erfiður," segir Donadoni. Marco Van Basten
þjálfari Hollands segir riðilinn sannkallaðan
dauðariðil.„Við þurfum að undirbúa okkur
vel fýrir þennan dauðariðil. Þetta verður
erfitt fyrir okkur þar sem við spilum á móti
tveimur þjóðum sem voru í úrslitum (
síðustu keppni. Ef við komumst í gegnum
fyrstu tvo leikina (Italía og Frakkland) eigum
við góða möguleika á því að komast áfram í
16 liða úrslit," segir Marco Van Basten.
Riðlarnir
A-riðill: Sviss,Tyrkland, Portúgal.Tékkland.
B-riðill: Austurríki, Pólland, Þýskaland, Króatía.
C-riðill: Holland, Frakkland, Rúmenia, Italía.
D-riðill: Grikkland, Rússland, Spánn, Sviþjóð.
ÍDAG
Enska úrvalsdeildin
Útsending frá leik Liverpool og Bolton
sem fórfram sunnudaginn 2. desember.
16:05 READING - MIDDLESBROUGH
Enska úrvalsdeildin
Útsending frá leik Reading og
Middlesbrough íensku úrvalsdeildinni
sem fór fram laugardaginn 1. desember.
Ensku mörkin
Ný og hraðari útgáfa af þessum vinsæla
þætti þarsem öll mörkin og helstu atvik
umferðarinnar eru sýnd frá öllum
mögulegum sjónarhornum.Viðbrögð
þjálfara, stuðningsmanna og sérfræð-
inga.
Bestu mörk ensku úrvalsdeildarinnar
skoðuð.
Enska úrvalsdeildin
Bein útsending frá leik Man. Utd og
Fulham í ensku úrvalsdeildinni.
Ensku mörkin
Ný og hraðari útgáfa af þessum vinsæla
þætti þar sem öll mörkin og helstu atvik
umferðarinnar eru sýnd frá öllum
mögulegum sjónarhornum. Viðbrögð
þjálfara, stuðningsmanna og sérfræð-
inga.
Farið yfir öll mörkin og helstu atvikin í
leikjum síðustu umferðar í Coca Cola
deildinni en þar eiga Islendingar nokkra
fulltrúa.
Enska úrvalsdeildin
Útsending frá leik Man. Utd og Fulham i
ensku úrvalsdeildinni sem fór fram
mánudaginn 3. desember.
DAGUR SVEINN DAGBJARTSSON
blaðamaður skrifar: dagur(a<dv.is
1
íslenska kvennalandsliðið í hand-
bolta náði stórkostlegum árangri í
undankeppni EM. í gær bar íslenska
liðið sigurorð af Hvít-Rússum, 31-30,
og tryggði sér annað sætið í riðlin-
um.
Útlitið var ekki bjart í hálfleik í
gær því Hvít-Rússar höfðu fjögurra
marka forskot þegar flautað var til
leikhlés, 19-15. fslenska liðið tók við
sér í þeim síðari og með nokkrum
hraðaupphlaupsmörkum náði ís-
land að jafna stöðuna.
f stöðunni 23-23 náðu íslensku
stelpurnar að skora fjögur mörk í röð
og breyttu stöðunni í 27-23. Hvít-
Rússar voru hins vegar ekki af baki
dottnir og náðu að jafna metin í 30-
30 þegar rúm mínúta var eftir. Það
var svo Rakel Dögg Bragadóttir sem
skoraði 31. mark íslands og þar við
sat. 31-30 urðu lokatölur.
Efstu þrjú liðin í riðlinum munu
leika umspilsleik um sæti í loka-
keppni EM. ísland tryggði sér eitt af
þremur sætunum á laugardaginn
þegar liðið vann Bosníu 27-22. Leik-
urinn í gær hafði því enga þýðingu
fyrir liðið að því leyti en það verður
ekki tekið af stelpunum og þjálfurum
liðsins að sigurinn í gær var frábær.
Dregið verður í umspilið síðar í þess-
um mánuði.
Hafði alltaf trú á þessu
Júlíus Jónasson landsliðsþjálfari
var í sjöunda himni þegar DV náði
tali af honum í gær. „Eg vissi að þetta
yrði erfitt en ég hafði alltaf trú á að við
kæmumst áfram. En við gerðum það
með ákveðnum glæsibrag, myndi ég
segja.
Við unnum ísrael og Grikkland ör-
ugglega og spiluðum mjög vel á móti
báðum þessum þjóðum og héldum
dampi, eins og úrslitin sýna. Síðan
var Bosmuleikurinn úrslitaleikurinn
og fyrir fram hefði hann getað farið á
hvom veginn sem er.
Auðvitað hafði maður trú á þessu
en við unnum Bosm'u í hörkuleik og
svo var leikurinn í dag bara rósin í
hnappagatið.
Leikurinn í dag skipti engu máli
þannig séð, við vorum búin að tryggja
okkur áfram. Ég hef oft upplifað það
að síðasti leikur í móti hafi farið miður
og lagði því áherslu á að vinna þennan
leik, bara upp á sjálfstraustið og klára
flott mót með sigri. Það gekk eftir. Þó
að ég segi að leikurinn hafi ekki skipt
máli, þá skipti hann máli að þessu leyti
til. Þetta fer bara í reynslubankann,"
sagði Júlíus og bætti við að sigurinn á
Hvít-Rússum í gær sýndi vel þann kar-
akter sem væri í íslenska liðinu.
„Það sýnir karakterinn í liðinu og
sýnir viljann. Við spiluðum vel og spil-
Sigurgleði Árangur íslenska
kvennalandsliðsins (
undankeppninni erfrábærog
stelpurnar eiga hrós skilið.
MYND: HLYNUR SIGMARSSON
kaupþik
FRÁBÆRÁRANGUR
uðum eins og við höfum verið að spila
að undanfömu, með góðri vöm og
markvörslu. Rakel spilaði mjög vel og
hefur spilað mjög vel í síðustu þrem-
ur leikjum, Dagný hefúr verið í stóru
hlutverki hjá okkur í vörn og sókn. Það
var komin ákveðin þreyta í hana og
því tók Guðbjörg við hennar hlutverki
og hún gerði það frábærlega. Sara og
Arna hafa þurft að hvíla fleiri leiki en
hafa alltaf skilað sínu þegar á reynir.
Þetta er mjög mikilvægt. Maður reynir
að veðja á réttu hestana hverju sinni og
þeir hafa ekki brugðist," sagði Júh'us.
Fyrir mótið talaði Júh'us um að ís-
lenska liðið þyrfti að nýta sér hraðann í
hðinu og spila góða vöm til að komast
áfram. Hann sagði að það hefði geng-
ið vel upp á heildina htið, fyrir utan
fýrsta leikinn sem Island tapaði með
16 mörkum.
„Fyrir utan fyrsta leikinn tókst
þetta ffábærlega. Við sjáum það á
þeim hraðaupphlaupum sem við
fengum og einnig á markvörslunni.
Það er ekld oft sem markmenn eiga
góðan leik einir og sér, það þarf allt-
af vörnina til. Þetta hjálpar líka svo
mikið til. Þetta em auðveld mörk,
þetta eykur sjálfstraustið og þetta
drepur líka sjálfstrausdð hjá hinu lið-
inu," sagði Júlíus, sem hrósaði Berg-
lindi Irisi Hansdóttur markverði fýrir
hennar frammistöðu á módnu.
Anna Úrsúla í lið mótsins
„Hún er búin að spila mjög vel
og hefur verið ein af þeim bestu.
Það er erfitt að taka einhverjar út.
Berglind, Rakel, Dagný og Anna
Úrsúla," sagði Júlíus, en Anna Úr-
súla Guðmundsdóttir var valin í
úrvalslið mótsins.
„Þeda er frábær árangur og ég
er mjög stoltur af stelpunum. Þær
eru aldeilis búnar að gera flott
mót enn betra. Við höfum verið að
yngja upp hjá okkur og meðalald-
urinn er rétt um 21 ár. Þeda er frá-
bært líka í því ljósi að það eru ekki
margar með mikla reynslu á bak
við sig," sagði Júlíus að lokum.
HK-ingar áttu ekki í vandræðum með slaka Eyjamenn í Digranesi í gær:
ARFASLAKIR EYJAMENN
ÍBV sótti HK heim í Digranes í
gær, fyrsti sigur Eyjamanna kom
í síðustu umferð þegar liðið vann
Aftureldingu. HK-ingar hafa hins
vegar verið á góðu skriði undanfar-
ið og eru farnir að sækja á Hauka.
Leikurinn var frekar daufur en HK-
ingar sigu þó hægt og sígandi fram
úr Eyjamönnum, Ragnar Hjaltested
átti góðan dag hjá HK og skoraði tíu
mörk, mörg hver úr hraðupphlaup-
um eftir slakar sóknir ÍBV. Hjá ÍBV
áttu tveir leikmenn fínan leik, Kol-
beinn Arnarson, 17 ára markvörður
varði 17 bolta, og Sergey Trotsenko
skoraði 12 mörk í leiknum og var
yfirburðamaður í liði ÍBV. Eins og
svo oft áður í vetur fékk leikmaður
ÍBV að líta rauða spjaldið og það var
Sindri Haraldsson sem fékk að líta
það í síðari hálfleik eftir að hafa ýtt
í Sigurgeir Árna Ægisson. Lokastað-
an í leiknum var 36-22 og HK-ingar
komnir í annað sæti með 17 sdg og
eru tveimur stigum á eftir Haukum
en eiga leik til góða.
„Þú verður að halda einbeitingu
allan leikinn því að öll lið geta refsað
þér, við byrjuðum vel og stjórnuð-
um leiknum. Við gátum leyft öllum
að spila í seinni hálfleiknum," sagði
Migilius Astrauskas þjálfari HK eftir
leikinn. Leikurinn ádi að fara fram
á fimmtudag en var frestað vegna
veðurs, hann ádi svo að fara fram á
föstudag en var aftur frestað. „Það
er erfitt að halda liðinu á tánum því
þú veist ekki hvort þú átt að spila á
morgun eða ekki. Ég held að það sé
betra að fresta leiknum um nokkra
daga í staðinn fyrir að setja leiki á
næsta dag. Við erum með marga
góða leikmenn og erum vel mann-
aðir í allar stöður. Það er erfitt að
segja hver vinnur deildina, það eru
ennþá tvær umferðir eftir og það
er erfitt að segja til um þetta," sagði
Astrauskas.
„Þetta var mjög slakur leikur hjá
okkur eins og svo oft áður í vetur,
við erum ekki að gera hlutina eins
og við eigum að vera að gera. Svo
fáum við heimskulegt rautt spjald
og það er orðið þreytandi að við
erum alltaf að missa menn í bann.
Við eigum alveg möguleika á því
að halda okkar sæti í deildinni og
ég held að þeda muni ráðast á inn-
byrðisviðureignum hjá okkur, Aft-
ureldingu og Akureyri," sagði Grét-
ar Þór Eyþórsson leikmaður ÍBV
við DV eftir leikinn.
HSJ
Inn úr horninu Tomas Eitutis fer inn úr
horninu í leiknum, hann skoraði þrjú
mörk.