Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2007, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2007
Fréttir DV
STEINÞÓR JÓNSSON
Bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ og formaður stjórnar Base
ehf, sem keypti 22 byggingar af Þróunarfélagi
Keflavíkurflugvallar fyrir 715 milljónir króna. Steinþór er
jafnframt einn af stofnendum Keilis ehf, sem keypti tvær
fasteignir af Þróunarfélagi Keflavikur fyrir 320 milljónir
króna. Hann er stofnandi, framkvæmdastjóri og
prókúruhafi Hótels Keflavlkur sem er einn af stofnend-
um Base ehf. Þá er hann varamaður í stjórn Hitaveitu
Suðurnesja hf, sem er einn af stofnendum Keilis.
Arni sigfússon
Bæjarfulltrúi og bæjarstjóri Reykjanesbæjar, sem ereinn
stofnenda Háskólavalla ehf, sem keypti íbúðirnar af
Þróunarfélagi Keflavíkurflugvallar ehf. Hann erjafnframt
stjórnarmaður í Þróunarfélagi Keflavíkurflugvallar ehf.
Formaður stjórnar Keilis ehf, sem keypti tvær byggingar
af Þróunarfélagi Keflavíkur fyrir 320 milljónir króna.
Formaður stjórnar Hitaveitu Suðurnesja hf og fram-
kvæmdastjóri Þróunarsjóðs Reykjanesbæjar hf, sem er
einn af stofnendum Keilis ehf.
BJÖRK GUÐJÓNSDÓTTIR
Alþingismaður Sjálfstæðisflokksins
og forseti bæjarstjórnar Reykjanes-
bæjar. Hún er varamaður í stjórn
Keilis ehf, sem keypti tvær
fasteignir af Þróunarfélagi
Keflavíkurflugvallar.
BJARNI BENEDIKTSSON
Alþingismaður Sjálfstæðisflokksins
og formaður stjórnar N1, sem er
eitt þeirra félaga sem koma að
Base ehf, sem keypti 22 skemmur á
Miðnesheiði fyrir rúmar 700
milljónir króna.
eigenda í Háskólavöllum, sem
keypti 1.660 íbúðir í 96 byggingum
á Miðnesheiði fyrir rúma 14
milljarða króna. Þorgils er bróðir
Árna Mathiesen flármálaráðherra.
stofnenda Háskólavalla ehf, sem
keypti (búðirnar af Þróunarfélagi
Keflavíkurflugvallar ehf. Böðvar er
jafnframt aðstoðarmaður Árna
Mathiesen fjármálaráðherra.
RUNÓLFURÁGÚSTSSON
Framkvæmdastjóri og prókúruhafi
Keilis ehf, sem keypti tvö hús af
Þróunarfélaginu. Stofnandi,
prókúruhafi og í framkvæmdastjórn
Teigs ehf, eins stofnenda Háskóla-
valla ehf, sem keypti af Þróunarfé-
laginu fyrir 14 milljarða króna.
Meðstjórnandi I Háskólavöllum.
ÞORSTEINN ERLINGSSON
Bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ og
situr (stjórn Sparisjóðs Keflavíkur,
eins stofnenda Base ehf, sem
keypti 22 byggingar af Þróunarfé-
laginu fyrir 715 milljónir króna.
Sparisjóðurinn er einn stofnenda
Keilis ehf, sem keypti tvær
byggingar fyrir 320 milljónir króna.
Þessir einstaklingar tengjast
fasteignasölu Þróunarfélags
Keflavíkurflugvallar til Háskólavalla
Base ehf og fleiri félaga.
í \ -,
1 BÖÐVAR JÓNSSON W ÞORGILS ÓTTAR MATHIESEN fff I ]
I Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks í |g|œ ^ JH H Forsvarsmaður fjárfestingafélags-
W\ I ■ •■ /
. JJ MM t
: |'£.|í '-■ ■ jr
pÉS Jftk í'
' / '•••'
SELJUM ALLT AFTUR
fr)
VALGEIR ORN RAGNARSSON
bladamaður skrifar
Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykja-
nesbæ, var augljóslega vanhæfur
þegar kom að sölu fasteigna á Mið-
nesheiðinni og hefði átt að stíga til
hliðar, að mati Atla Gíslasonar al-
þingismanns vinstri grænna og
hæstaréttarlögmanns. „Árni situr
báðum megin við borðið. Hann er
bæjarstjóri og um leið er hann stjórn-
armaður í Þróunarfélaginu. Hann er í
tvöfaldri stöðu vegna þess að Reykja-
nesbær er einn stofnandi Háskóla-
valla ehf sem seldi Þróunarfélaginu
1.660 íbúðir," segir hann. Atli telur
vanhæfi Árna algjörlega augljóst og
bendir á að hann sé líka stjórnar-
formaður Keilis ehf, sem keypti tvær
„Upphafog endirþessa
máls er hjá sjálfstæðis-
mönnum í Reykjanesbæ."
Eiga ekki að hafa neitt að fela
Tvær vikur eru liðnar síðan ósk-
að var eftir því að kaupsamningarn-
ir yrðu gerðir opinberir, en það hefiir
ekki gerst ennþá. Ekki náðist í Magn-
ús Gunnarsson, stjórnarformann
Þróunarfélags Keflavflcur í gær, þrátt
fyrir ítrekaðar tilraunir. Atli segir
þennan tíma mjög óeðilegan. „Þeir
hafa ekkert að fela nema eitthvað
sé að, en þeir vilja ekki láta mig hafa
kaupsamningana. Það eina sem þarf
að gera til þess að eyða öllum grun-
semdum er að koma með öll gögn
upp á borðið. Upphaf og endir þessa
máls er hjá sjáífstæðismönnum í
Reykjanesbæ."
Kaupverð fasteignanna er mjög
umdeilt og hafa margar sögur geng-
ið um að hærri tílboðum í fasteignir
á svæðinu hafi verið hafnað. Þannig
er Atla kunnugt um tilboð í eina af
þeim tuttugu og tveimur skemm-
um sem Base keyptí fyrir rúmar 700
milljónir króna. Það kauptilboð var
margfalt hærra en kaupverð Base á
skemmunum.
Árni Sigfússon var algjörlega vanhæfur í fasteignakaupum Há-
skólavalla og Base af Þróunarfélagi Keflavíkur, segir Atli Gíslason
Hann vill að eignasalan verði endurtekin fyrir opnum tjöldum og
skilur ekki hvers vegna hann hefur ekki fengið að sjá kaupsamn-
inga. Málið var rætt á Alþingi í gær. Ríkisendurskoðun ætlar að
gera stjórnsýsluúttekt á þjónustusamningi Þróunarfélagsins.
Atli Gíslason „Árni situr báðum megin
við borðið. Hann er bæjarstjóri og um
leið er hann stjórnarmaður í Þróunarfé-
laginu. Hann er í tvöfaldri stöðu vegna
þess að Reykjanesbær er einn stofnandi
Háskólavalla ehf sem seldi Þróunarfé-
laginu 1.660 íbúðir."
tilkynnt að Ríkisendurskoðun ætlaði
að gera stjórnsýsluúttekt á þjónustu-
samningnum sem Þróunarfélag-
ið vinnur eftir. Rfldsendurskoðandi
hyggst bæði skoða þau mál sem
tengjast fjárhagnum og samninginn
sem fjármálaráðuneytið og Þróunar-
félagið gerðu.
byggingar af Þróunarfélaginu. „Þetta
er einfaldlega bullandi vanhæfi og
mér finnst það mjög sorglegt að bæj-
arstjóri sé ekki betur að sér í stjórn-
sýslulögum en raun ber vitni."
Þar sem Árni hafi verið vanhæfur
í málinu verði að hefja söluferlið al-
veg upp á nýtt fýrir opnum tjöldum.
„Það er mín krafa að söluferlið verði
endurtekið því þetta eru gríðarleg-
ar eignir og gríðarlegir möguleikar.
Ríkissjóður fór á mis við milljarða í
þessu samhengi."
Stjórnsýsluúttekt
Eignasala Þróunarfélags Keflavík-
ur á Miðnesheiði var rædd á Alþingi
í gær og við upphaf þingfundar veitti
Sturla Böðvarsson, forsetí Alþingis,
Atla Gíslasyni tiltal fýrir að hafa bor-
ið sig með röngum hætti eftir gögn-
um um eignasöluna.
Sturla tjáði Atla að hann hefði átt að
fara í gegnum forsætísnefnd en ekki
upplýsingasvið Alþingis til þess að
óska eftír gögnum. Nokkrar umræð-
ur urðu á Alþingi og var titringur inn-
an þingsins. Nokkrir þingmenn úr
öllum flokkum tóku undir að knýja
þyrfti á um að kaupsamningarnir
yrðu gerðir opinberir. Árni Mathie-
sen fjármálaráðherra tilkynntí svo
á fundinum að Atli gætí fengið að
skoða gögn Ríkisendurskoðunar um
málið, en gætí ekki fengið þau í sínar
hendur.
f gær var þingmönnum jafnffamt