Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2007, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2007, Blaðsíða 18
18 FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2007 Sport PV ÍÞRÓTTAMOLAR þrIrAem Þrír íslenskir sundmenn taka þátt I Evrópumótinu í 25 metra laug sem hefet í Debrechen (Ungverjalandi í dag. Sundmenn- irnir eru Jakob Jóhann Sveinsson, Örn Arnarson og Ragnheiður Ragnarsdóttir. I dag keppir Örn ( lOOmetra fiugsundi, Jakob Jóhann í 100 metra bringusundi og Ragnheiður i 100 metra skriðsundi. ( frétt á vef Sundsambands Islands segir aö um 50 (slendingar stundi nám í Debrechen, flestir i laeknisfræði. (slensku sundmennirnir vonast þvi eftir öflugu stuðningsliði. Mótinu lýkurá sunnudag. TEITUR TIL VANCOU VER Teitur Þórðarson hefur veriö ráðinn þjálfari kanadíska knattspyrnuliðsins Vancouver Whitecaps.Teitur, sem seinast þjálfaði KR, skrifaði undirtveggja ára samning.„Ég er mjög spennturfyrir þessu einstaka tækifæri. Mér list vel á hugmyndir yfirstjórnarinnar og hlakka til að leiða samræm- ingu þjálfunar allt frá yngstu flokkunumtil atvinnumann- anna,“ er haft eftir Teiti á vef félagsins. Þar er kennt hvemig bera skuli nafn Teits fram„TAY-tourTOR- dar-SUN. Forsvarsmenn félagsins segjast ánægðir með að hafa fengiö Teit til starfa og vonast til að reynsla hans nýtist þvi vel. Vancouver leikur (USL1 sem er næsta deild fyrir neðan bandarisku MLS-deildina. Vancouver vann (deildinni árið 2006. AÐALSTEINN OG RAKEL DANSPARÁRSINS Rakel Guðmundsdóttir og Aöalsteinn Kjartansson eru danspar ársins að mati Danssambands (slands. Þau taka þátt i suður-amerískum dönsum (flokki ungmenna með frjálsri aðferð en þau keppa einnig upp fyrir sig (flokki fullorðinna. (ár urðu þau (slands- og bikarmeistarar (sinum flokki og tóku þátt í fjölmörgum alþjóölegum keppnum. Sú seinasta var heimsmeist- arakeppnin ( suður-ameriskum dönsum sem framfóríVilniusí Litháen um seinustu helgi. Rakel og Aðalsteinn urðu í 55. sæti en annað íslenskt par, Ásta Sigvaldadóttirog Przemek Lowicki, varð (38. sæti. Áttatíu pörtóku þátt (keppninni. Rakel og Aðalsteinn hafa dansað saman i þrjú ár og keppa fyrir Dansiþróttafélag Hafnarfjarðar. Þau eru númer 232 af 3.000 pörum á heimslista Alþjóðlega dansiþróttasambandsins. Þau munu keppa um helgina á Norður-Evrópu móti ungmenna. ÍDAG Enska urvalsdeildin Enska úrvalsdeildin Ensku mörkin Heimur úrvalsdeildarinnar Bestu leikir úrvalsdeildarinnar Stórbrotin viðureign frá Anfield þar sem mættust Liverpool og Newcastle. Bestu leikir úrvalsdeildarinnar Bestu mörk úrvalsdeildarinnar frá upphafi. íþróttakona ársins úr rööum fatlaðra er Karen Björg Gísladóttir úr Firði og íþrótta- maður ársins er Jóhann Rúnar Kristjánsson úr Nesi. DAGUR SVEINN DAGBJARTSSON bladamadur skrifai: dagur^dv.is Karen Björg Gísladóttir og Jóhann Rúnar Kristjánsson voru í gær út- nefnd íþróttakona og íþróttamaður ársins 2007 úr röðum fatlaðra. Ka- ren Björg er sunddrottning og Jó- hann Rúnar er borðtennisspilari. Þá fékk Margrét Kristjánsdóttir af- hentan Guðrúnarbikarinn, en bikar- inn er afhentur ár hvert þeirri konu sem hefur starfað sérlega vel í þágu fadaðs íþróttafólks. Margrét hefur verið virkur þátttakandi í starfi með íþróttafélaginu Ösp. Karen Björg hefur æft sund und- anfarin 6-7 ár hjá íþróttafélaginu Firði í Hafnarfirði og er íþróttakona Fjarðar árið 2007. Karen Björgkeppir í flokki þroskaheftra og er í úrvalsliði fþróttasambands fatlaðra. Karen Björg tók þátt í Heims- meistaramóti Alþjóðasamtaka þroskahamlaðra sem fram fór í Belgíu í sumar. Þar vann hún þrenn bronsverðlaun, auk þess sem Karen Björg setti tíu íslandsmet á mótinu. Einnig tók Karen Björg þátt í Norðurlandamóti fatíaðra í október, þar sem hún vann fimm gullverðlaun og varð Norðurlandameistari í öllum þeim greinum sem hún tók þátt í. Karen Björg er núverandi hand- hafi Sjómannabikarsins 2007 en hann er veittur stigahæsta sund- manni á Nýárssundmóti fatíaðra barna og unglinga. Karen er 16 ára. „Mér líður bara mjög vel og er mjög stolt. Árið er búið að vera betra en ég bjóst við og ér er ánægð með árangurinn. Næst fer ég til Tyrklands að keppa og ég stefni á verðlaun þar,“ sagði Karen Björg eftir að henni voru afhent verðlaunin sem íþróttakona ársins 2007. Góð vítamínsprauta Jóhann Rúnar Kristjánsson er 33 ára borðtennismaður úr Keflavík. Hann er með þverlömun og er lamaður upp að brjósti. Jóhann Rúnar keppir í fötíunarflokki C2 en á alþjóðlegum mótum er keppt í flokkum C1 tii C10 þar sem lægsta taian gefur til kynna mesta fötíun og sú hæsta minnsta fötlun. Jóhann Rúnar hóf markvissa borð- tennisiðkun árið 1998 og er félagi í íþróttafélaginu Nesi í Reykjanesbæ, en hefur æft borðtennis með fþrótta- félagi fatíaðra í Reykjavík, HK og íþróttaakademíunni í Reykjanesbæ. Jóhann vinnur nú að því að vinna sér þátttökurétt á Olympíumóti fatlaðra í Peking 2008. f dag skipar Jóhann Rúnar 14. sæti styrkleikalista alþjóðaborðtennisnefndar fatíaðra og mun keppa á opna bandaríska meistaramótinu milli jóla og nýárs, í von um að vinna sig ofar á listann. „Tilfinningin er rosalega góð. Þetta er í fyrsta skipti sem ég hlýt þennan titil. Nú er hann kominn og hann er sætur. Þetta er góð vítamínsprauta í Frábært íþróttafólk Karen Björg Gisladóttir og Jóhann Rúnar Kristjáns- son, iþróttakona og iþróttamaður ársins, eru hér með verðlaun sin. Með þeim á myndinni er Kristín Rós Hákonardóttir sem var íþróttakona ársins fyrir ári og fékk bikar til eignar. mstarfS' róttasami ■■atlaðr, KAREN 0GJ0HANN STÓÐU UPPÚR það sem ég er að gera, hjálpar mikið til að halda áff am og er vindur í seglin. Ég er rosalega sáttur," sagði Jóhann Rúnar og bætti við að árangurinn á árinu hafi verið fr amar vonum. „Ef við tökum þetta ár í burtu hefur árangurinn verið upp og niður. Ég hef þurft að saftia sjálfur pening en þetta árið hef ég verið á B-styrk hjá Iþróttasambandi Islands. Það hefur losað mig aðeins undan þessum peningaáhyggjum. Ég hef getað einbeitt mér meira að mótunum og hef nánast undantekningalaust verið í verðlaunasæti. Árangurinn hefur verið jafn þetta árið og það er ég sérlega ánægður með," sagði Jóhann Rúnar, sem stundaði aðrar íþróttir áður en hann lamaðist. „Ég var reyndar ekki í borðtennis, en ég var í körfubolta, fótbolta og handbolta. Ég var búinn að prófa allt saman en var mest í körfunni og fótbolta. Síðan fór ég á sjóinn sautján ára og íþróttirnar áttu að bíða aðeins. Síðan lenti ég í slysi," sagði Jóhann Rúnar, sem stefnir ótrauður á ólynmíuleikana. „Eg er í einhverjum línudansi núna. Ég er í 14. sæti og það er eldd alveg nógu öruggt, ég þyrfti að vera í 13. Þá gæti ég sagt að ég væri á leiðinni á ólympíuleikana. Það eru sextán sem komast á mótið en 15. og 16. sætið eru wildcard-sætí og teamtarget-sæti og eins og staðan er í dag er maðurinn í 15. sæti Ameríkumeistari, þannig að hann hoppar upp í fýrstu fjögur sætin og þar með fer ég niður í 15. sæti. 15. og 16. sæti eru sæti sem allar þjóðir geta sótt um. Ég er alveg í fullu prógrammi að æfa og ætia að skella mér til Chicago annan í jólum, þar er síðasta mótið sem telur á þessum lista. Það leggst rosalega vel í mig, ég er áhyggjulaus fyrir þetta mót og þori næstum því að lofa að það gerist eitthvað," sagði Jóhann Rúnar. „Ég væri ekki hérna ef ekki væri fyrir rosalega góðan stuðning frá fjölskyldu og vinum, fýrirtækjum sem styrkja mig, góðu íþróttasambandi og íþróttafélaginu mínu. Ég er ofboðslega þakklátur fyrir gott lið á bak við mig," sagði Jóhann Rúnar að lokum. Þaö verða stórleikir í 8 liða úrslitum Lýsingarbikars karla og kvenna i körfubolta: Njarðvík og KR mætast í karlaflokki Spennandi dráttur Hannes S. Jónsson (til vinstri) og Arnar Kárason stjórnuðu bikardrættinum af miklum myndarskap. Dregið var í 8 liða úrslit Lýsingarbik- ars karla og kvenna í körfubolta í gær. Nokkrar áhugaverðar viðureignir eru fram undan, til dæmis leikur Njarðvík- ur og KR í karlaflokki. Leikimir fara fram 11., 12. og 13.janúar. Njarðvfk og KR áttust við í úrslitaein- vígi Iceland Express-deildar karla á síð- ustu leiktíð, sem endaði með sigri KR í fjórum leikjum. KR vann Grindavík í 16 liða úrslitum og Benedikt Guðmunds- son, þjálfari KR, segist fullur tilhlökkun- ar fyrir bikarleikinn gegn Njarðvík. „Við erum bara í stórleikjum í bik- arkeppninni. Við tökum því bara eins og menn og ætlum að sjálfsögðu að slá Njarðvík út. Það er misjafht hvaða leið lið fara í bikarkeppninni og ég held að við munum fara erfiðustu leiðina sem hægt er að fara. Það gerir þetta bara meira spennandi og við mætum full- ir tilhlökkunar til Njarðvíkur þegar þar að kemur. Okkur finnst mjög gaman að spila á móti Njarðvík, eigum góðar minningar frá síðustu leiktíð og Njarð- vík er með hörkulið. Þannig að þetta verður alveg svakalegur leikur" segir Benedikt. Teitur Örlygsson, þjálfari Njarðvík- ur, segir að ef lið ætli sér stóra hluti í bikarkeppni þurfi að vinna bestu lið landsins. „KR er tvímælalaust eitt af sterkustu liðum landsins. Þeir unnu titilinn í vor og síðan unnu þeir leikinn gegn okk- ur í haust á síðustu sekúndunni. Þetta er mér því allt í fersku minni og mín- um leikmönnum og það ætti bara að hjálpa okkur, bensín á tankinn," segir Teitur. Leikurinn verður fyrsti heimaleilcur Njarðvílcur í bikarkeppninni í þtjú ár og Teitur segir að því sé erfitt að meta það hvort heimavöllurinn komi til með að hjálpa Njarðvfldngum. 8 LIÐA ÚRSLIT KARLA Skallagrimur-ÍR Snæféll-Keflavík Fjölnir-ÞórÞorláksh. Njarðvík-KR 8 LIÐA ÚRSLIT KVENNA Valur-Keflavík Snæfell-Fjölnir Grindavik-KR Haukar-Hamar „Við þekkjum þessa stöðu varla, þetta er fyrsti heimaleikur Njarðvíkur í bikarkeppni í þrjú ár. Það er kærkom- ið. Að sjálfsögðu er alltaf best að vera á heimavelli, þótt við höfum ekki staðið undir því í ár. Við skuldum bara fólk- inu okkar góðan heimaleik og erum staðráðnir í að gera það í næstu leikj- um," segir Teitur. dagur@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.