Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2007, Blaðsíða 19
DV Bilar
FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2007 19 *■
Gengi Skoda hefur verið
ótrúlegt eftir að gamla
sovétið hrundi og Tékkland
varð aftur vestrænt Skoda-
bflarþóttu ámillistríðsárun-
um meðal bestu bfla heims
og þjóðhöfðingjar og stórstjörnur
sóttust efdr að eiga Skoda, ekki síst
Skoda Superb.
Eftir seinna strfð þegar Tékkland
og Slóvakía voru komin undir sovétið
var ísland á sinn hátt líka sovéskt
og í Qötrum hafta, skömmtunar og
forsjárhyggju. Þetta voru þeir tímar
þegaríslensktvinnandifólkfékkaðeins
að eignast nýja bfla sem Sovétrfldn og
önnur ríki á þeirra áhrifasvæði höfðu
látið af hendi í vöruskiptaverslun
fyrir íslenskan fisk. Þetta voru tímar
blöðruskóda, Moskvits, Pobeda, Volgu
og Rússajeppa. Sumir þessara bfla
voru reyndar sæmiiegustu farartæki
en önnur aldeilis afleit.
Tómathlöss í blöðruskóda
Einn fyrsti bíll sem sá sem þetta
ritar ók var blöðruskódi árgerð 1958.
Þetta var talsvert stór bfll og þungur
- langbakur með niðurfellanlegt aft-
ursæti sem hægt var að breyta í sendi-
bfl með hátt í 800 kflóa burðargetu.
Blöðruskódinn tómur var grjóthast-
ur á holóttum malarvegum þess tíma
en ansi mjúkur þegar búið var að lesta
hann með 130-140 tómatkössum sem
hver um sig var fimm kfló að þyngd. En
fúllhlaðinn var hann ansi seinn í snún-
ingum því að 1200 rúmsentimetra vél-
in með sín eitthvað um 25-30 hestöfl
átti fúllt í fangi með að koma bílnum á
ferð. Bót í máli var að fyrsti gír var mjög
hægur og skipti sköpum þegar kom-
ast þurfti upp Kambana með tómata-
hlössin. Þetta var ekki skemmtilegt far-
artæki, milt sagt.
Nýtískulegur stór smábíll
Hinn nýi Skoda Fabia er eins langt
ffá blöðruskódanum og hugsast má.
Fabia er mjög nýtískulegur bfll fáan-
legur með flestu því sem prýðir góða
og ömgga bfla. Miðað við eldri gerðina
sem fram kom árið 2000, gætí manni
sýnst sem nýi bfllinn sé mjórri en það
er einungis sjónvflla því grillið er nú
ffamstæðara en áður og sjálfúr bfll-
inn hábyggðari. Lengdin er nánast sú
sama því að lengdaraukningin er ein-
ungis 2,2 sm. Hæðin er 4,9 sm meiri en
á eldri gerðinni. Hin aukna hæð skilar
sér ekki síst til farþeganna í aftursæt-
inu sem nú hafa mun meira höfuðr-
ými en í eldri gerðinni. Skoda Fabia er
smekklegur í útlití og minnir um sumt
á Suzuki Swift sem aftur minnir á Mini.
Undirvagninn er enn sá sami í grunn-
inn og var árið 2000 enda engin sérstök
ástæða til að skipta því út sem vel hef-
urreynst.
Skoda hefur um nokkurt árabil
verið hluti Volkswagen samsteyp-
unnar og nýtur góðs af þeirri gríð-
arlegu tækniþekkingu sem þar er til
staðar. En Skoda hefur augljóslega
talsvert frjálsar hendur og er Skoda
Fabia 2 einmitt ágætt dæmi um það.
Á bílnum sést og finnst að eins kon-
ar ódýr útgáfa af VW Polo hefur feng-
ið eigin sérkenni. Betur er vandað til
efnisnotkunar og frágangs en áður
(sem þó var ekki sérstök ástæða tíl
að kvarta undan) og hvað það varð-
ar er Skoda fyllilega jafnfætis bílum
móðurfyrirtækisins.
Ágætur heimilisbíll
Skoda Fabia er ágætlega búinn.
í því sem kalla má grunngerð eru
sex loftpúðar /gardínur, spólvörn
og ESC-stöðugleikabúnaður. Af þæg-
indabúnaði má nefna fjarstýrða sam-
læsingu, raf-rúðuvindur frammi í,
rafstýrða og -hitaða útispegla og hæð-
arstillingu á ökumannsstól. í betur
búnum útfærslum eru aukþess álfelg-
ur, vandaðra hljóðkerfi með geisla-
diskamagasíni, raf-rúðuvindur við
aftursætí, skriðstíllir og hálfsjálfvirkt
hita- og loftræstikerfi. Verðið er
samkvæmt verðlista umboðsins
frá 1.620.000 kr. og upp í 1.980.000
kr. Við tilteknar vélagerðir fást svo
sjálfskiptíngar.
Skoda Fabia er góður fjölskyldubfll
og státar af besta rýminu í aftursætinu
í flokki smábíla og mesta farang-
ursrýminu - sem nú er 300 lítra. Þetta
eru atriði sem skipta máli við val á
heimilisbfl. Reynsluakstursbfllinn var
með 1,4180 hestafla dísilvél. Þessi vél
er mjög spameytin og með henni er
Fabia sjálfsagt hagkvæmust í rekstri.
Gallinn við hana er bara sá að hún
er nokkuð hávær, sérstaklega í borg-
arakstri. Auk hennar er í boði 1,91TDI
dísilvélin velþekkta frá Volkswagen.
Hún er 105 ha
Sú næsthagkvæmasta er trúlega
minnsta bensínvélin. Hún er 1,2 1 og
þriggja strokka og 70 hö. Langmesta
eftirspumin er eftír Fabia með þeirri
vél í grannlöndum okkar, þar á með-
al Svíþjóð. Auk hennar er í boði 1,4
1 86 ha. og 1,6 1 105 bensínvélar. Með
þeirri síðastnefndu fæst sex gíra sjálf-
skiptíng.
Þægilegur akstur
{ akstri er Skoda Fabia þægilegur
og fyrirsjáanlegur. Þegar hann er þving-
aður í harða beygju gætir lítils háttar
yfirstýringar sem er alveg eins og það
á að vera, því að hæfileg yfirstýring
hjálpar. ESC-stöðugleikakerfið virkar
eðlilega og hægir ekki um of á bflnum
eins og stundum vill verða. Dísilbfllinn
með 1,4 1 vélinni sem við ókum gerði
bflinn svosem ekki að neinu tryllitæki
en hún stendur fyllilega fyrir sínu. Hún
mættí bara að ósekju verða hljóðlátarí.
Fimm gíra handskiptingin var létt og
nákvæm.
Látlaus og smekkleg innréttíng Betur
er vandað til efnis og frágangs en áður.
Farangursrýmið er eitt hið stærsta í
flokki smábíla. Aftursætið er niðurfell-
anlegt í tveimur hlutum (60/40).
Skoda Fabia 2:
Skoda Fabia 2 Eereinna
rúmbestur i flokki smábíla. Hann
er hábyggðari en eldri gerðin var.
Niðurstaða
+ Gott rými - sparneytni -
Hagstætt verð
“ Háværdisilvél
HELSTU UPPLVSINGAR
■ Skoda Fabia 2 Comfort 1.4TDI.
■ Verð: 1.790 þúsund kr.
■ Lengd/breidd/hæð í m:
3,99/1,64/1,50
■ Þyngd tilbúinn til aksturs: 1050 kg.
■ Vél: dísilvél, 1422 rúmsm
■ Afl: 80 hö.
■ Vinnsla: 195 Nm
■ Gírkassi: 5 gíra handskipting
■ Viðbragð 0-100:ca. 14sek.
(FÍB-mæling)
■ Hámarkshraði: 165 km/klst.
■ Eldsneytiseyðsla: 4,6 1/100 km i
blönduðum akstri.
■ C02 útblástur: 120 g / km
■ Hámarksþyngdtengivagns:900kg
■ Helstu keppinautar: Toyota Yaris,
Suzuki Swift, Opel Corsa, o.fl.
HPI Savage X 4,6
fjarstýrður torfœru trukkur.
Öflugasta útgáfan til þessa.
HPI Savage X 4,6
fjarstýrður torfœru trukkur.
Öflugasta útgáfan til þessa.
Meira pláss Með meiri lofthæð er
Nethyl 2, sfmi 5870600,
www.tomstundahusid.is
SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FYRIR
Jeep
DOOGE
BÍLJÖFUR
BIFREIÐAVERKSTÆÐI
rýmið i aftursæti þægílegra en áður.
Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi
Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is