Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2007, Side 21
DV Umræöa
FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2007 21
Karl Sigurbjörnsson biskup
S islands fær plúsinn i dag
fyrir hugmyndir sinar um
friðarsetur á Miðnesheiði
þar sem áður stóð herstöð.
SPURNINGIIV
NOTAST ÞÚ VIÐ
VISA-KORT?
„Þaö hefur svo sem komiö fyrir, en ég
versla þó ekki við hvern sem er," segir
SóleyTómasdóttir.
Öryggisráð Feministafélags (slands
hefur kaert forstjóra og stjómarmenn
Valitors, áöur VISA (sland, fyrir að
stunda klámviðskipti. Það geri
fyrirtækiö með þvl að þjónusta
netfyrirtæki sem bjóða upp á klám og
hagnast töluvert á umsýslunni.
MYNDIN
Rennibraut Sundlaugin á fyrrverandi varnarsvæðinu á Miðnesheiði er með öðru móti en þekkist annars staðar
á Islandi. Laugin er innanhúss, en angi af rennibrautinni nær út fyrir húsið og svo aftur inn fyrir. DVmyndStefdn
Bréf til ríkisendurskoðanda
Kæri ríkisendurskoðandi.
Áður en þú einhendir þér í það
verkefni að skoða ofan í kjölinn
hvort ekki hafi allt verið með
felldu þegar eignir almennings á
Keflavíkurflugvelli voru seldar langar
mig til þess að benda þér í fullri
vinsemd á fáein atriði sem kunna að
skipta máli. í fyrsta lagi er verðugt að
skoða ábendingar nefndar á vegum
Evrópuráðsins (GRECO) sem fjallar
um spillingu. Sérffæðingar á vegum
hennar rannsökuðu spillingarástand
hér á landi fyrir fáeinum árum og
skrifuðu skýrslu árið 2003 sem þú
væntanlega þekkir. Þar stendur
orðrétt: „Andvaralausir íslenskir
embættismenn, sem trúa því sjálfir
að þeir og þjóðin séu óspillt, eru
ekki líklegir til að grípa til aðgerða til
þess að uppræta spillingu, hvað þá
að grípa tU fyrirbyggjandi úrræða.
Það væri því sæmandi að takast á
við fyrirsjáanlegan spillingarvanda,
sem þegar hefur komið upp í öðrum
löndum. Með frumkvæði væri
auðveldara að takast á við vanda sem
kann nú að vera mönnum hulinn."
Þama tala menn af reynslu, enda
gáfu þeir gaum að því að einkavæðing
hér á Iandi væri afar viðkvæm sökum
smæðar þjóðarinnar og hættu á
einkavinavæðingu eða frændhygli. Já,
þetta eru þeirra eigin orð.
Baráttumaður gegn spillingu
Stefán Þórarinsson, einn þriggja
stjómarmanna í Þróunarfélaginu, sak-
aði Áma Sigfússon, samverkamann
sinn í stjóm félagsins, um spillingu
síðastiiðiðvorþegarHáskólinníReykja-
vík samdi við Fasteign hf. um hönnun
og byggingu nýrrar háskólabyggingar
„Stefán Þórarinsson, einnþriggja
stjórnarmanna I Þróunarfélaginu,
sakaöi Árna Sigfússon, samverka-
mann sinn i stjórn félagsins, um spill- ^
ingu sfðastliðið vorþegar Háskólinn
iReykjavik samdi viö Fasteign hf. um
hönnun og bygglngu nýrrar háskóla-
byggingar viÖ öskjuhliðina."
við Öskjuhlíðina. Þama vísaði
Þórarinn meðal annars til þess að Ámi
er varaformaður stjómar Fasteignar
hf. sem samdi við háskólaráð HR.
Þar á sæti Þór Sigfússon, bróðir hans,
ásamt BjamaÁrmannssyni, þáverandi
forstjóra Glitnis, en lengi átti bankinn
um 70 prósenta hlut í Fasteign hf.
ásamt Reykjanesbæ þar sem Ámi er
bæjarstjóri.
f öðm lagi er því vert fyrir þig að
spyrja Stefán hvort hann hafi viðhaft
forval við sölu á almenningseigum
á Keflavíkurflugvelli til þess að finna
hæfa aðila til þess að bjóða í eignimar
í samræmi við markmið stjómvalda.
Þetta vildi Stefán endilega gera
varðandi háskólabygginguna um-
ræddu.StefánerstjómarformaðurNýs-
is sem þróar, byggir og rekur fasteignir
líkt og Fasteign hf og hefur opinberlega
lýst yfir baráttu sinni gegn spillingu,
meðal annars í útvarpsþætti 3. apríl
síðastliðinn hjá Morgunhananum
(morgunhaninn.is).
Hvaða afrek?
f þriðja lagi er vert að spyrja íjár-
málaráðherra hvort eðlilegt hafi verið
að undirrita þjónustusamning við
Þróunarfélagið 8. desember í fýrra
áður en lög um ráðstöfun eignanna
vom tilbúin og samþykkt af Alþingi.
Lögin vom samþykkt skömmu fyrir
jól og tóku gildi 30. desember í fyrra.
Var samningurinn því ekki gerður
án stoðar í lögum? Var hann ekki
heimildarlaus?
í fjórða lagi: Af hverju gaf fjármála-
ráðherra Þróunarfélaginu 8. maí
síðastíiðinn almennt umboð til sölu
fasteigna þannig að hverja einstaka
sölu þyrfti ekki að bera undir hann?
Siakaði fjármálaráðherrann á opin-
bem eftirliti til að forðast aðstæður
þar sem hæfi hans til að samþykkja
sölu yrði dregið í efa?
Eftirfarandi setningu er að finna í
yfirlýsingu frá forsætisráðherra vegna
málefna Þróunarfélagsins 22. nóvem-
ber: „Einnig er mikilsvert að fá inn
öfluga aðila sem em líklegir til að
hleypa lífi í atvinnuuppbyggingu á
svæðinu og taka þátt í frekari þróun
þess." - í ljósi þessara orða er í fimmta
og síðasta lagi vert að spyrja hvort til sé
sérstakur Iisti yfir „öfluga" aðila og aðra
sem ekki teljast öflugir. Hverjir meta
hvaða aðilar em öflugir? Hvernig er
það gert? Gildir ekki reglan um að selja
skuli hæstbjóðanda?
Kæri rfldsendurskoðandi. Kann-
ski last þú leiðara Þorsteins Páls-
sonar í Fréttablaðinu í gær þar sem
hann kemst nánast að því að stjóm
Þróunarfélagsins hafi unnið afrek í
þágu landsmanna. Skyldi það vera
svipað afrek og þegar Þorseinn, þá
sjávarútvegsráðherra, seldi Sjóvá og
fleiri „öflugum" aðilum almennings-
eignina SR-mjöl árið 1993? Kannski
var Þorsteinn þá með leynilista ofan í
skúffu um „öfluga aðila" því sannarlega
vom kaupendumir ekki með hæsta
tilboðið.
Kristján Hrafn Guðmundsson
lætur hugann reika
Sandkassi gærdagsins er hér birt-
ur aftur þar sem síðasta efiiis-
greinin birtíst ekki í blaðinu í gær.
SK0NDIÐ ATVIK þegar ung-
ur hrekkjalómur á Skaganum
fékkpantaðan
símafund við
Bandaríkjafor-
seta á dög-
unum. Til að
bæta gráu ofan
á svart plataði
hann líka frétta-
mann Stöðvar
2 með því að
senda vin sinn í viðtal við hann í
sinn stað eftir að fféttamaðurinn
hafði brennt upp á Skaga. Vil ekki
kalla það skondið eða sniðugt
þar sem fréttamaðurinn, Guðjón
Helgason, er fyrrverandi vinnu-
félagi minn og var augljóslega
ekki skemmt. Það sést auðvitað
skýrast í því að hann skilaöi inn
uppsagnarbréfi í kjölfar atviksins.
Fréttastjóri Stöðvar 2, Steingrím-
ur Ólafsson, vildi hins vegar ekki
taka uppsögnina gilda.
ÞEGAR ÉG fréttí þetta kom í huga
mér atburðarás fyrir bráðum
þremur ámm sem á ýmislegt
sameiginlegt með þessu. Það er
þegar Róbert Marshall, þáverandi
fféttamaður Stöðvar 2, sagði upp
eftir að hafa - í nokkuð einföld-
uðu máli - vænt Davíð Oddsson
og HalldórÁsgrímsson um óhei-
lindi í tengslum ákvarðanatöku
um stuðning (slands við innrásina
í írak. Byggði hann það aðallega
á tímasemingum á fréttum á vef
CNN en reiknaði tímamismun
ranglega. Ef ég man rétt vildi þá-
verandi fféttastjóri Stöðvar 2, Páll
Magnússon, eldd taka uppsögn-
ina til greina til að byrja með.
FYRIR UTAN sjónvarpsstöðina,
uppsagnirnar og að fréttstjórinn
vúji láta hana sem vind um eyru
þjóta, er fleira þarna sameiginlegt.
Hvíta húsið
og George W.
Bush eiga hlut
að máli í báð-
um tilvikum.
Ogeflangter
seilst má finna
báða ffétta-
stjóranaíbáð-
um málum;
Steingrímur var upplýsingafull-
trúi Halldórs þegar Róbertsmálið
átti sér stað og Páll er núverandi
hæstráðandi hjá RÚV sem sakað
hefur verið um að hafa átt ein-
hverja sök í því að vinur húmor-
istans af Skaganum fór í viðtalið
á Stöð 2.
0G HVAÐ með það þó þessi mál eigi
ýmislegt sameiginlegt er eðlilegt
að einhver spyrji. Það slaptir nefiii-
lega engu máli. En getur ekki verið
að Steingrím-
ur hafi stork-
að örlögunum
með því að leyfa
Guðjóni ekki
að hætta. Hafi
þannig hugsan-
lega svipt hann
möguleikanum
á að verða að-
stoðarmaður samgönguráðherra
þegar ffam líða stundir, og þar '
með að aðstoða hann í hugsan-
legri ákvarðanatöku um tvöföldun
Hvalfjarðarganga? By the way, ef af
því yrði verður enn hægara um vik
fyrir fjölmiðlamenn að bruna upp
á Skaga og taka viðtal við hrekkja-
lóma. Eða vini þeirra.