Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2007, Side 22
22 FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2007
Fókus DV
HVERT ER LAGIÐ?
ogblessað glingrið
sem bætir mitt geð“
fflKflWfdiR-ILVAfJiHníIHBnfTTl
Hugsað,
skrifað,
elskað, ort
9. apríl síðastliðinn voru lið-
in 150 ár frá fæðingu skáldkon-
unnar Ólafar Sigurðardóttur frá
Hlöðum (1857-1933). í tilefni af
því flytur Helga Kress, prófess-
or í bókmenntafræði, fyrirlestur
um ævi og verk Ólafar á vegum
Hugvísindastofnunar og Rann-
sóknastofu í kvennafræðum í
Hátíðarsal Háskóla íslands í dag.
Fyrirlesturinn nefnist „Hugsað,
skrifað, elskað, ort": Um ævi og
verk Ólafar Sigurðardóttur frá
Hlöðum. Eftir Ólöfu liggur mikið
safri verka, jafiit birtra sem óbirtra,
og í undirbúningi er nýtt ritsafii
með verkum hennar í umsjón
Helgu og kemur það út hjá Bók-
menntafr æðistofriun Hl á vor-
mánuðum. Fyrirlesturinn hefst
Jólatónleikar
KKogEllenar
Systkinin KK og Ellen Kristj ánsdótt-
ir eru á ferð og flugi á aðventunni
og halda jólatónleika víða. í kvöld
gefst fólki tældfæri á að sjá þau og
heyra í Hafnarborg í Hafnarfirði
en á tónieikunum spila þau meðal
annars lög af jóladisld sínum, Jólin
eru að koma, þar sem þau syngja
og spila mörg okkar ástsælustu
jólalög, íslensk og erlend. Auk
þess seilast þau í lögúrlagasjóði
sínum, bæði ný og gömul.
Tónieikamir hefjast kl. 20 en
miðasala er á midi.is.
Reykurinn
afréttunum
Sjöunda og næstsíðasta Súfista-
kvöld vetrarins, þar sem höfund-
ar Forlagsins lesa úr nýjum verk-
um sínum verður haldið í kvöld
klukkan 20. Þeir sem lesa upp að
þessu sinni eru Einar Kárason úr
bók sinni Endurfúndir, Hrund
Þórsdóttir les úr Loforðinu sem
fékk Islensku bamabókaverðlaunin
á dögunum, Pétur Gunnarsson les
úr ÞÞ -1 fátæktarlandi og loks fá
gestir smjörþefinn af bók Þórunnar
Erlu-Valdimarsdóttur, Kalt er
annars blóð. Bækur höfundanna
verða á sérstökum afslætti í tilefni
kvöldsins.
SKATA
OKKAR RÓMAÐA SKÖTUHLAÐBORÐ
Laugardaginn 22. og sunnudaginn 23. desember frá kl. 12.
Pantið tímanlega í síma 552 3030
Kaffi Reykjavík heitir nú Restaurant Reykjavík.
®RESTAURANT
REYKJAVÍK
Vesturgata 2, www.restaurantreykjavik.is,
restaurantflrestaurantreykjavik.is
Á dögunum kom út ljóðabókin Fimmta árs-
tíðin eftir Toshiki Toma sem starfar sem
prestur innflytjenda. Flest bendir til þess að
þetta sé fyrstafrumorta, íslenska skáldverkið
eftir innflytjanda sem gefið hefur verið út.
TOSHIKI TOMA, PRESTUR OG
SKÁLD I þó nokkurár hefurToshiki
notað Ijóðagerð markvisst til að auka
eigin skilning og færni í íslensku.
UPPHAFISLENSKRA
INNFLYTJENDA
BÓKMENNTA?
„Ég orti þessi ljóð á íslensku en
ekki japönsku, sem er svolítið sér-
stakt. Þetta er því ekki þýðing," segir
Toshiki Toma, prestur og skáld, sem
á dögunum sendi frá sér sína fyrstu
bók. Það er ljóðabókin Fimmta árs-
tíðin sem gefin er út undir merkjum
bókaforlagsins Nykurs.
Toshiki kveðst ekki vita til þess
að innflytjandi hér á landi hafi áður
sent frá sér frumort, íslenskt skáld-
verk. „Það hafa komið hér út nokkr-
ar ljóðabækur eftir útlendinga sem
skrifaðar hafa verið á móðurmáli
þeirra og svo þýddar á íslensku. En
ég held að þetta sé sú fyrsta sem er
skrifuð á íslensku. Ég hlustaði líka
á fýrirlestur hjá Sjón í sumar og þar
sagði hann þetta líka."
ÍMMTA ÁRSTÍÐIN
Lengi draumur að gefa út bók
Toshiki er þjóðkunnur fyrir starf
sitt sem prestur innflytjenda en því
starfi hefur hann sinnt í fjórtán ár.
Hann er fæddur í Japan en fluttist
til íslands árið 1992. 1 þó nokkur
ár heíur Toshiki notaö ljóöagerð
markvisst til að auka eigin skiln-
ing og færni í íslensku, og um ieið
hvatt skjólstæðinga sína og aðra
innflytjendur til að gera slíkt hið
sama. „Ég hef fengið mörg tæki-
færi til að tjá skoðun mína um sam-
félagsmál, en ekki um mín pers-
ónulegu mál. Mér finnst því ekki
gaman að fólk sjái mig bara sem
mann sem tali alltaf um fordóma og
óréttlæti."
Fjörutíu og fjögur ljóð eru í bók-
inni, það elsta var ort árið 2001 en
þau nýjustu síðasta sumar. Toshiki
segir að það hafi lengi verið draumur
hjá sér að gefa út ljóðabók. „Svo fyrir
tveimur árum tók ég þá ákvörðun að
gera þettasegir hann og draumurinn
er því loksins að verða að veruleika.
Fimmta árstiðin Þetta er fyrsta bók
Toshiki en elstu Ijóðin í bókinni eru
sex ára gömul.
Ekki pólitík
Þrátt fyrir að lifa og hrærast í trúnni,
verandi prestur, segir Toshiki að þess
sjáist ekki endilega merki í ljóðun-
um hans. „Og það er heldur ekki pól-
itík eða flókin hugmyndafræði í þeim
heldur er ég að benda á fegurð nátt-
úru íslands í tengslum við tilfinningu
mína."
En hver er þessi fimmta árstíð sem
títillinn vísar til? „Af því að ljóðin mín
eru mjög tengd náttúrunni er auð-
velt að flokka þau í árstíðamar fjórar,
vor, sumar, haust og vetur. En svo eru
nokkur ijóð sem ekld passa nákvæm-
lega undir einhverja árstíð, Ijóð sem
fjalla almennt um lífið og tilveruna. Ég
settí þau því í fimmta hlutann sem hef-
ur yfirskriftina „Líf". Svo má líka segja
að fimmta árstíðin sé á milli daga, ein-
hver tími þar sem maðurinn fær inn-
blástur til að semja ljóð. kristjanh@dv.is