Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.2008, Blaðsíða 6
6 MÁNUDAGUR 7. JANÚAR 2008
Fréttir DV
Sýknaður af
líkamsárás
Héraðsdómur Reykjavík-
ur sýknaði á föstudag karlmann
af ákæru um að hafa kýlt annan
mann í andlitið með krepptum
hnefa. Hinum ákærða var gefið að
sök að hafa klukkan 6 að morgni
sunnudagsins 18.júnísíðastliðinn
slegið mann með krepptum hnefa
í andlitið með þeim afleiðingum
að framtönn hans brotnaði.
í niðurstöðu Héraðsdóms
Reykjavíkur segir að ekki sé úti-
lokað að einhver annar en ákærði
hefði slegið fómarlambið í andlitið
þar sem mannmergð hafi myndast
í kringum atganginn. Því sé vafinn
siíkur að sýkna beri hinn ákærða af
ákæru um líkamsárás.
Hyggja á útrás
til Slóveníu
Skipti hf gerði á föstudag
tilboð í slóvenska fjarskiptafé-
Iagið Telekom Slovenije. Skipti
er eitt þriggja fýrirtækja sem
gerðu tilboð í félagið en um
er að ræða 75 prósenta hlut í
fyrirtækinu. Tilboðið er bundið
trúnaði samkvæmt samkomu-
lagi við slóvensk stjórnvöld
sem koma til með að eiga 25
prósent í félaginu. Hjá félaginu
starfa um 4.400 starfsmenn
en tekjur félagsins á fyrstu m'u
mánuðum ársins námu um 54
milljörðum króna og hagn-
aðurinn var 9,4 milljarðar.
Einkavæðingarnefnd slóvensku
ríkisstjómarinnar fundaði um
tilboðin á föstudag og varð
niðurstaðan að þeir aðilar sem
buðu í félagið þurfa að skila
inn nýjum tilboðum fýrir 15.
janúar.
Neitað um leyfi
til ættleiðingar
Ekki var fallist á kröfu manns
um ógildingu tveggja úrskurða
dómsmálaráðuneytisins um
synjun leyfis til að ættíeiða tvær
stjúpdætur hans. Úrskurðir ráðu-
neytisins voru byggðir á því að
lágmarkssambúðartíma foreldra
bamsins hafi ekki verið fullnægt.
Héraðsdómur Reylqavíkur féllst
ekki á kröfu mannsins af sömu
ástæðu og ráðuneytið. Maðurinn
og konan hafi hins vegar aðeins
verið í sambúð í rúm þrjú ár. Stefn-
anda var einnig gert að greiða 150
þúsund krónur í málskostnað.
Grímseyjarferja
í Slippinn
Slippurinn á Akureyri sér um
lokaendurbætur á Grímseyjar-
ferjunni Sæfara ef fer sem horfir.
Fyrir helgi var opnað fyrir tilboð
í endurbæturnar og bauð Slipp-
urinn lægst, tæpar 13 milljónir.
Fjórar stöðvar hér á iandi sem
geta tekið ferjuna í slipp áttu kost
á að bjóða í verkið. Tilboð bámst
frá þeim öllum en þau þrjú sem
hafnað var vom á bilinu 22 til 27
milljónir. Næstíægsta tilboðið var
því um helmingi hærra en það
lægsta.
Vegagerðin fer nú yfir tilboðin
en Slippurinn getur hafið vinnu
við skipið 15. janúar og er áætl-
aður verktími þrjár vikur.
Davíð Smári Helenarsona, eða Dabbi Grensás eins og hann er oft kallaður, hefur átt við
svefnleysi að stríða að sögn móður hans, Helenar Jóönnu Halldórsdóttur. Kunningi Dav-
íðs Smára, Hallgrímur Andri Ingvarsson, var viðstaddur báðar árásirnar um jólin.
VALUR GRETTISSON
bladamadur skrifar: valur(g>dv.is
Ofbeldismaðurinn Davíð Smári
Helenarson, sem sló atvinnufót-
boltakappann Hannes Þ. Sigurðsson
á Hverfisbarnum fýrir jól, er á þriggja
ára skilorði fyrir brot gegn valdstjórn.
Verði hann fundinn sekur fyrir árás-
ina á Hannes gæti hann átt yfir höfði
sér fangelsisdóm.
Móðir Davíðs segir hann góðan
pilt. Hann sé hins vegar þjakaður
af svefnleysi auk þess sem hann sé
skapstór. Árásin á Hannes er sú sjötta
á tveimur árum sem hann er bendl-
aður við. Hann á yfir höfði sér kær-
ur vegna þriggja líkamsárása. Auk
Davíðs var Hallgrímur Andri Ingv-
arsson með honum og er gmnaður
sem einn af þremur árásarmönnum
sem veittust að Hannesi. Sjálfur segir
Hallgrímur að hann hafi reynt að stía
Davíð frá Hannesi.
Svefnlaus í mörg ár
„Hann á sitt skap, ég viðurkenni
það," segir móðir Davíðs, Helen Jó-
anna Halldórsdóttir, um son sinn en
Davíð hefur verið þjakaður í mörg ár
af svefnleysi að sögn Helenar. Síðan
drekkur hann ofan í það auk þess að
vera skapmikill. Sú blanda virðist oft
enda með líkamsárásum.
Helen segist ekki verja það sem
hann hefur gert. Hún segir að Davíð
ætíi að leita sér aðstoðar vegna skap-
ofsans sem virðist heltaka hann. Hún
segir son sinn þó hafa verið bláedrú
þegar árásin hafi átt sér stað. Þá full-
yrðir hún að Davíð hafi alls ekki átt
upptökin.
„Ég er stolt af honum en ekki af
því sem hann hefur gert," segir móð-
ir Davíðs sem hefur þurft að þola
svívirðilegar árásir á einkalíf sitt en
henni hafa borist hótanir í gegnum
smáskilaboð.
Steig á milli
Hallgrímur Andri Ingvarsson varð
vitni að því þegar Davíð Smári réðst á
Hallgrímur Andri Ingvarsson Var
viðstaddur báðar árásirnar en segist ekki
hafa tekið þátt f þeim.
Hannes og hann var einnig viðstadd-
ur árásina sem átti sér stað á Apótek-
inu þar sem piltur fótbrotnaði. f yf-
irlýsingu sem Hallgrímur sendi DV
í gærkvöldi segir orðrétt: „Umrætt
kvöld á Hverfisbarnum var ég í góðra
vina hópi að skemmta mér. Þegar leið
á kvöldið og við vorum að huga að
því að heimsækja annan skemmti-
stað verðum við allir varir við mikinn
hamagang á efri hæð staðarins. Þar
sem við vorum staðnir upp og á leið-
inni út sáum við vel að þarna voru
slagsmál í gangi. Ég þekkti til annars
aðilans og taldi mig geta komið í veg
fyrir að hlutimir færu meira úr bönd-
unum en þá var orðið. Ég stakk mér
þarna á milli beggja aðila og á allan
heiður af því að þessi slagsmál gengu
ekki lengra heldur en raunin varð.
Þessa frásögn mína styður og gemr
staðfest fjöldinn allur af vitnum þar
sem ég var ekki einn á ferð sem og að
margir vom á efri hæð staðarins.
Missti linsu
Svipað var uppi á teningnum á
Apótekinu en þar labbaði ég inn á
salerni staðarins með einum vini
mínum sem er vinur fórnarlambs-
ins þar. Það sem við verðum vitni að
er að sami aðili og áður var í miklum
ham. Æsingurinn var mikill og gekk
ég aftur þar á milli þar sem ég taldi
mig geta stöðvað átökin sem og haft
stjórn á báðum aðilum. Það varð úr
að ég náði að stöðva þetta en það var
ekki áfallalaust þar sem úr mér var
slegin önnur linsan en á endanum
náði ég að stöðva atið.
Það var fyrir einskæra tilvilj-
un að ég varð vitni að báðum þess-
um slagsmálum en ástæða þess að
ég taldi mig geta stöðvað það sem í
gangi var er sú að ég þekíci til aðila
sem átti í hlut.
Ég vil ekki meina að það hafi verið
mistök af minni hálfu að stöðva bæði
þessi átök því mun verr hefði getað
farið."
Yfirlýsingin er birt í heild sinni á
www.dv.is.
Lögreglan hefur hvorki tekið
skýrslur af Hallgrími né Davíð Smára
en hún hefur myndbandsupptökur
af árásinni undir höndum.
Eiður Smári Guðjohnsen Ráðist var á
hann f miðbæ Reykjavíkuren Davíð
Smári var bendlaður við málið.
mffi
Hannes Þ. Sigurðsson Þrfbrotnaði á
andliti eftirfólskulega líkamsárás.
Kostnaöur samstarfsverkefnis RÚV og Sjónarhóls skiptist milli samstarfsaðilanna:
Vinsæl önd boðar mannkærleika
Kostnaður við framleiðslu þátta
fyrir Stundina okkar um Engilráð,
andarunga sem býr á Sjónarhóli,
skiptist á milli Sjónvarpsins og leik-
skólasviðs Reykjavíkurborgar. Borgin
greiðir fyrir leikíestur þáttanna, vel á
hálfa milljón króna, á meðan Sjón-
varpið greiðir ýmsan annan kostnað,
svo sem upptökur, grafi'ska vinnslu,
hljóðsetningu og klippingu. Þess
ber að geta að framlag Sjónvarpsins
er stærsti hluti kostnaðar við fram-
leiðslu þáttanna og fjöldi vinnu-
stunda starfsmanna stofnunarinnar
er þar að baki.
DV greindi frá samstarfi leik-
skólasviðs borgarinnar og RÚV við
Sjónarhól, samtök fjölskyldna barna
með sérþarfir, þar sem framleidd-
ir verða 8 þættir með Engilráð sem
sýndir verða í Stundinni okkar. Ofs-
agt var að allur kostnaður þáttanna
sé greiddur af leikskólasviðinu. Hið
rétta er að kostnaðurinn deilist nið-
ur á milli þess og Sjónvarpsins. Full-
yrðing á forsíðu DV að Sjónvarpið fái
efnið endurgjaldslaust var því röng.
Innslög í Stundina okkar þar sem
Engilráð er í aðalhlutverki hafa áður
verið sýnd hjá RÚV. Sjónvarpsvetur-
inn 2004-2005 voru 8 þættir sýndir í
Stundinni okkar. Þórhallur Gunnars-
son, dagskrárstjóri RÚV, segir þá hafa
notið mikilla vinsælda meðal áhorf-
enda. „Þættirnir byggjast á mann-
kærleika og umhyggjusemi eins og
Sjónarhóll stendur fýrir. Vegna vin-
sælda þáttanna og góðs samstarfs
við Sjónarhól var ákveðið að hefj-
ast handa á nýjan leik og fer öndin
ljúfa nú í leikskóla og vinnur verkefni
með börnum á sama aldri og marka
áhorfendahóp Stundarinnar okkar"
segir Þórhallur. trausmdv.is
Þórhallur Gunnarsson Dagskrárstjóri RÚV segir öndina Ijúfu vinsæla meðal
áhorfenda barnaþáttarins.