Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.2008, Blaðsíða 27
DV Bíó
MÁNUDAGUR 7.JANÚAR 2008 27
Jón Atii Jónasson
Kvikmyndin Brim
verður tekin upp á
árinu, en hún er
gerð eftir leikriti
Jóns Atla.
Árið 2007 var gott bíóár hjá
íslendingum. Sjö íslenskar
kvikmyndir voru frumsýnd-
ar og mikið var um dýrðir. Á
árinu 2008 verða sex kvik-
myndir til viðbótar frum-
sýndar og líklega fara fimm
aðrar í framleiðslu.
Arið 2008 verður afar viðburðaríkt
í íslenskri kvikmyndagerð. Alls
hefur Kvikmyndamiðstöð fslands
gefið fimm verkefnum vilyrði fyrir
framleiðslustyrkjum á árinu og
þykir líklegt að öll þau verkefni fari í
framleiðslu. Eru það verkefnin Brim
í leikstjórn Arna Úlafs Asgeirssonar,
The Good Heart í leikstjórn Dags
Kára.ReykjavíkWhaleWatchingMass-
acre í leikstjórn Júlíusar Kemp, Hátíð
í bæ í leikstjórn Hilmars Oddssonar
og Baldur í leikstjórn Roberts I.
Douglas. Styrkirnir sem verkefnin
hljóta eru misháir, hæsta styrkinn
fær kvikmynd Dags Kára, The Good
Heart, en bandaríski leikarinn Paul
Delano er orðaður við aðalhlutverk
hennar. Næsthæsta styrkinn, 56,5
millljónir, hlýtur Brim, sem byggð
er á samnefndu leikriti eftir Jón Atla
Jónasson sem vann Grímuverðlaunin
fyrir stykkið og einnig hlýtur Baldur
eftir Róbert Douglas jafnháan styrk.
Athygli vekur að tvær myndir sem fá
styrk eru með ensku tali, The Good
Heart og Reykjavík Whale Watching
Massacre, og hljóða styrkir þeirra
samtals upp á 115 milljónir íslenskra
króna.
Fimm myndir frumsýndar
á árinu
Árið 2007 voru sjö myndir frum-
sýndar, Syndir feðranna, Veðramót,
Astrópía, Foreldrar, Embla, Heima
og Duggholufólkið. Er það í takt við
frumsýningar fýrri ára, en að öllu
jöfnu koma út á bilinu 5 til 6 íslenskar
myndir á hverju ári. Árið 2008 verður
engin breyting þar á en allavega sex
myndir verða frumsýndar á árinu.
Þar á meðal eru Stóra planið eftir
Ólaf Jóhannesson, Heiðin eftir Einar
Þór Gunnlaugsson, Skrapp út eftir
Sólveigu Anspach, The Dark Floors
- Lordi the motion Picture eftir Pete
Riski, Reykjavík - Rotterdam eftir
Óskar Jónasson og síðast en ekki
síst Brúðgumi Baltasars Kormáks
sem byggist á sömu sögu og leikritið
ívanoff sem er nú í sýningum í Þjóð-
leikhúsinu.
Rokland, Gauragangur og
Öðruvísi dagar
Fjölmargir handritshöfundar
fengu styrki á árinu til þess að þróa
sín verkefni lengra. Athygli vekur að
fjöldinn allur af bókum stefnir nú
óðfluga á hvíta tjaldið. Þar á meðal
Gauragangur Ólafs Hauks Símon-
Óskar Jónasson Sýnir kvikmyndina Reykjavfk- Rotterdam næsta haust.
arsonar, Öðruvísi dagar Guðrúnar
Helgadóttur og að lokum Rokland
Hallgríms Helgasonar. Var það ein-
róma álit gagnrýnenda þegar Rok-
land kom út að aðalhetjan, Böddi
Steingríms, myndi sóma sér vel á
hvíta tjaldinu og verður gaman að sjá
hvort hann endi þar. dor'máv.ís
Cfjllglll (1
Sundance
Söngkonan l’atii Smitli og forsprakki
hljónisveitarinnar Crovvded I Iouse
og Tim I'inn, hala verið bókuð sem
aðaltónlistáratriðin á Stmdance-
kvikmyndahátíðinni sem frant fei 17.
til 27. jamiar i Utah. Meðtil annarra
tónlisturmanna sem stíga á svið á
hátíðinni eru Sca Wolf, Missy
I liggins, lessica 1 Ioop og Sondre
l.erche. Á hátíðinni munu einnig
verða sérstakir tónleikar sem kallast
Celehiation ol Musicand Hlin. Á
þcim koma fram tónlistarmenn sem
eru tengdir myndum sem sýndar eru
á hátíöinni. Til að mynda verður
mynd l’atti Smith, Drcam of l.ife,
sýnd á Sundance.
Leikur
iorseia
I'regnir lierma að I Iarrison hord nnmi
lcika varaforsetunn Andrew Johnson í
myndinni I.incoln sem Steven
Spielherg leikstýrir. Myntlin gerist í
valdatíð Ábrahams I.incoln en
Andrevv tók við emhætti forseta þegar
l.incoln var myrtur. I.iam Neeson
helur staðfest þátttöku sína í
myndinni og nnm leika Lincoln
sjálfan en óljóst er hvenær framleiðsla
hennar hefsl |kii sem Spiclberg er nú
að leggja lokahönd á lndiana Jones I
og nuin gera myndina Chicago 7 í
millitiðinni.
í lausu loftl
likki er v íst hvemer framhaldið af
Superman Relurns verður liliniið en
allar líkureru á að tiiluverð frcstun
verði þar á. Ásueðan er verkl'ail
handritshöfunda og myiulin Justicc
l.eaguc. I lún fjallar einmitt um hóp
hcls.ni oliirhetjanna og þar á meðal
Superman. Warner Brothcrs
framleiðir háðar myndirnar og er sagl
vilja leggja meiri áherslu á að kJára
lusticc I.eague fyrst.
Tónlistartímaritiö Rolling Stone valdi lagið Roc Boys með Jay-Z besta lag síðasta árs:
Jay-Z meö besta lagið 2007
Tónlistartímaritíð Rolling Stone
sem er það þekktasta sinnar tegund-
ar í heiminum hefur valið lagið Roc
Boys með rapparanum Jay-Z besta
lag ársins 2007. Lagið er að finna á
plötunni American Gangster sem er
að margra matí ein af bestu plötum
síðasta árs. Jay-Z samdi plötuna eft-
ir að hafa séð samnefnda mynd eft-
ir Oliver Stone sem skartar Denzel
Washington og Russel Crowe í aðal-
hlutverkum.
Listinn samanstendur af 100
bestu lögum ársins að matí Rolling
Stone en í öðru sætí er gamla brýnið
Randy Newman með lagið A Few
Words in Defense of Our Country.
Lagið er pólítfsk ádeiia á heims-
valdastefnu Bandaríkjanna og hefur
verið mjög vinsælt vestra. í þriðja
sætí er svo heitasta poppstjarnan
um þessar mundir, Rihanna, með
lagið Umbrella.
asgeir@dv.is
Jay-Z mcö lag ársins Var hættur en sá sig
tilneyddan til að gera plötu eftir að hafa
séð myndina American Gangster.
Bestu löqin 2007 að
mati Rolíing Stone
1. Roc Boys - Jay-Z
2. A Few Words in Defense of
Our Country - Randy Newman
3. Umbrella - Rihanna
4. D.A.N.C.E.-Justice
5. FourWinds-BrightEyes
6. Dough Is What I Got - Lil
Wayne
7. Rehab - Amy Winehouse
8. LongWalkHome-Bruce
Springsteen
9. Boyz - M.I.A.
10. Intíl Player's Anthem - UGK