Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.2008, Page 8
8 MÁNUDAGUR 7. JANÚAR 2008
Fréttir DV
KORNIÐ SEM FYLLTI
KOLBEINN ÞORSTEINSSON
blaðamaÖur skrifar: kolbeinn@dv.is
Kenía hefur til margra ára verið
undantekningin sem sannar regl-
una í Afríku. Síðan landið fékk
sjáifstæði frá Bretum í árslok 1963
hefur ríkt þar tiltölulega ágætur
stöðugleiki. Stöðugleikinn hefur
þó líkt og annars staðar í Afríku
verið á kostnað minni ættbálka
og hefur sá ættbálkur sem haldið
hefur um stjórnartaumana hverju
sinni gjarnan mulið undir sig og
sína. Undir tiltölulega rólegu yflr-
borði sem gerði Kenía að eftirsóttri
ferðamannaparadís kraumaði sí-
vaxandi óánægja og ættbálkahat-
Meingallaðar kosningar
Nýafstaðnar kosningar í Ken-
ía hafa af flestum verið dæmdar
meingallaðar og telja fáir nokkrum
vafa undirorpið að Mwai Kibaki,
forseti landsins, hafi haft þar hönd
í bagga. I kjölfar kosninganna upp-
hófst í landinu skálmöld mikil þar
sem bárust á banaspjót Kikuyu-
ættbálkurinn og Luo-ættbálkur-
inn.
Eins og von var og vísa þar sem
Afríku-menn eiga í hlut tók of-
beldið á sig óhugnanlega mynd.
Sveðjum var óspart beitt og fórn-
arlömbin allt frá hvítvoðungum
upp í gamalmenni og um fimm-
t£u manns voru drepnir þar sem á
annað hundrað manns höfðu ieit-
að skjóls í kirkju. Skipti þar eng-
um togum að dyr og gluggar voru
byrgð með bensínvættum dýnum
og síðan borinn eldur að.
Dregur úr ofbeldi
Síðan fýrsta alda ofbeldisins
brotnaði á ken'ísku samfélagi hef-
ur aðeins hægst um, en landið er í
sárum. Efnahag landsins, þar sem
gætt hafði ágætrar uppsveiflu, hef-
ur verið stefnt í voða. Ferðamönn-
um hefur verið ráðlagt að velja sér
annan áfangastað, en drjúgur hluti
tekna Kenía hefur einmitt komið
til vegna ferðamannaiðnaðar.
Hátt í þrjú hundruð þúsund
manns eru á vergangi, hafa flúið
óöldina og rústuð heimili sín og
nágrannaríkið Úganda hefur ekki
farið varhluta af ástandinu. Marg-
ir hafa leitað skjóls í kirkjum eða
lögreglustöðvum og öðrum hefur
verið komið fyrir í flóttamanna-
búðum sem komið hefur verið upp
í skyndi.
Að sögn Sameinuðu þjóðanna
er um hálf milljón manns í bráðri
þörf fyrir aðstoð og í vesturhluta
Kenía, sem hefur orðið illa úti,
sverfur hungrið að og börn þegar
tekin að deyja af völdum skorts.
Grunnt á kynþáttahatrinu
Þrátt fyrir stöðugleikann sem að
mestu hefur einkennt kenískt sam-
félag er kynþáttahatur ekki nýtt af
nálinni. Árið 1992 sauð upp úr eftir
kosningar, en Daniel arap Moi, af
Kalenjin-ættbálkinum, hélt þá um
stjórnartaumana.
Moi lét afskiptalaus fjöldamorð
og ofsóknir gegn Kikuyu-mönnum
þá, þar sem Kalenjin- og Masai-
stríðsmenn myrtu um eitt þúsund
Fórnarlömb Hluti
fórnarlamba lagður
i röð á gólfi.
og flmm hundruð Kikuyu-menn.
Líkt og nú var sveðjum beitt við
fjöldamorðin, en einnig var fólk
elt uppi og drepið með boga og
örvum. Hið sama átti sér stað árið
1998. Það voru einmitt Kalenjin-
menn sem kveiktu í kirkjunni í Eld-
oret í Rift-dalnum í síðustu viku.
Ofsóknirnar 1992 fóru meira og
minna framhjá alþjóðasamfélag-
inu, því af nógu var að taka í Kongó
og Rúanda og skyggði ofbeldið þar
á átökin í Kenía. En þau fræ ætt-
bálkahaturs sem þá var sáð í Kenía
féllu ekki í grýttan svörð, en lágu í
dvala og báru ávöxt í síðustu viku.
Birtingarmyndin minnti um margt
á Rúanda, þar sem hópar drukk-
inna ungmenna leituðu fórnar-
lamba með sveðju í hönd.
Flókin samfélagsuppbygging
Kikuyu-ættbálkurinn er sá
stærsti í Kenía og samanstendur af
fjörutíu og tveimur þjóðarbrotum.
Ættbálkurinn fór fremstur í flokki
£ sjálfstæðisbaráttunni gegn Bret-
um og hélt um stjórnartaumana
frá sjálfstæði til ársins 1978. Þessi
ár voru ættbálknum góð, en aðrir
ættbálkar áttu minna láni að fagna
við nýfengið sjálfstæði landsins.
Á meðan landið var undir stjórn
Daniels arap Moi lagði Kikuyu-ætt-
bálkurinn áherslu á að koma undir
sig áhrifum £ verslun og landbún-
aði. f kjölfar misheppnaðs valdar-
áns gegn Moi voru hið opinbera
og her landsins hreinsuð af Kiku-
yu-mönnum. Kikuyu-ættbálkur-
inn komst aftur til valda í kosning-
um árið 1992 og Mwai Kibaki varð
forseti landsins, öðrum minni ætt-
bálkum til ódulinnar óánægju og
upp úr sauð í kjölfar kosninganna
£ lok si'ðasta árs.
Kemurilia saman
Þrátt fyrir að Kenfa hafi verið
það ríki sem státað hefur af mest-
um stöðugleika á svæðinu gæt-
HÖFUÐBORG
RÍKISSTJÓRN
FORSETI
SJÁLFSTÆÐI
STÆRÐ
ÍBÚAFJÖLDI
Sveiflandi sveðjum Sveðjur eru algengasta
morðtólið í allflestum þjóðernisátökum í Afríku.