Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.2008, Qupperneq 32
M
SllB
Litlar samlokur 399 kr.
+ lítió gosglas 100 kr.
= 499 a,
FRÉTTASKOT
51 2 70 70
DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til frétta.
Fyrir fréttaskot sem verður aðalfrétt á forsíðu greiðist 25.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskot vikunnar greiðist allt að 50.000 krónur.
Alls eru greiddar 100.000 krónurfyrir besta fréttaskot hvers mánaðar.
MANUDAGUR 7. JANÚAR 2008 ■ DAGBLAÐIÐ VlSlR STOFNAÐ 1910
Undirbýr
málshöfðun
Jóhannes Gunnarsson, fráfarandi
fyrsti trúnaðarmaður vagn-
stjóra Strætó bs., undirbýr mála-
rekstur gegn Reyni Jónssyni, ffam-
* kvæmdastjóra Stætó bs. Það gerir
hann eftir að hafa hlotið áminningu
íyrir ölvun í starfl eftír formlega
móttöku við trúnaðarmannaskipti
fyrirtækisins fyrir skömmu. Fallið var
frá áminningum á hendur öðrum
trúnaðarmönnum fyrirtældsins og
deilan hefur nú ratað inn á borð
lögmanns BSRB. „Þetta er ennþá stál
% í stál og vagnstjórarnir eru bálillir
yflr hegðun framkvæmdastjórans.
Ég einn fékk áminningu og nú er
ég að undirbúa dómsmál því ég get
eklci annað en farið í hart með þetta,"
segir Jóhannes.
Ókölvaður
inn í garð
Ökumaður missti stjórn á bíln-
um sínum þegar hann ók niður
Furugrund í Kópavogi í fyrrinótt.
Bíllinn endaði inni í garði. Sam-
kvæmt upplýsingum frá lögreglunni
er maðurinn talinn hafa verið ölv-
aður. Hálka var á veginum og telur
lögreglan það einnig hafa átt þátt
í óhappinu. Engin slys urðu á fólki
9É í þessari skiaudegu bílferð en ekki
liggur fýrir hve mildð bíllinn er
skemmdur. Hálka var víða á götum
borgarinnar um helgina, enda hiti
um frostmark.
Ógnaði með hnífi
Lögreglan í Reykjanesbæ hand-
tók karlmann á laugardagskvöld fýr-
ir að ógna öðrum manni með hnífi.
Tilkynnt var um að hann væri einnig
að sprengja skoteldaköku svo ná-
lægt fjölbýlishúsi að ógn stafaði af.
Lögreglan fór á staðinn og handtók
viðkomandi. Að sögn varðstjóra er
þetta ekki í fyrsta skipti sem hann
hefur í hótunum við fólk með hníf-
um og greinilegt sé að viðkomandi
sé í töluverðu andlegu ójafnvægi.
Borgar leikhúsið
ekki?
/
Móðir Dabba Grensás sár eftir miskunnarlausa umfjöllun um son sinn undanfarið:
FJÖLSKYLDU HR0TTA
HÓTAÐ HRÆÐILEGA
VALUR GRETTISSON
bladamaður skrifar: valur@dv.is
„Ég og dóttir mín höfum verið að
fá hræðileg smáskilaboð þar sem
okkur er hótað," segir Helen Jó-
anna Halldórsdóttir, móðir Davíðs
Smára Helenarsonar, oft kallað-
ur Dabbi Grensás, sem hefur ver-
ið kærður ásamt tveimur öðrum
árásarmönnum fyrir að lemja fót-
boltamanninn Hannes Þ. Sigurðs-
son á Hverfisbarnum rétt fyrir jól.
Þá þríbrotnaði Hannes í andliti og
talið er að hann verði að minnsta
kosti mánuð frá æfingum með
norska úrvalsdeildarliðinu Viking
í Stafangri. Davíð hefur margsinn-
is verið dæmdur fyrir líkamsárás-
ir en ávallt hlotið skilorðsbundna
dóma.
Ver ekki soninn
„Maður er hvekktur vegna þess-
arar umfjöllunar og ég er ekki sátt við
að hann sé teldnn af lífi án dóms og
laga," segir Helen um þá miskunn-
arlausu umræðu sem hefur gengið
um Davíð eftir árásina. Hún breið-
ir þó ekld yfir hegðan sonar síns.
Hann réðst tíl að mynda á dómara í
utandeildarkeppni í fótbolta á síð-
asta ári. Sú árás var kærð en Davíð
sópaði löppunum undan dómaran-
um með þeim afleiðingum að hann
braut þrjú rifbein. Þá fór Davíð í við-
tal bæði í íslandi í dag og Kastljósi.
Þar sagðist hann ætla að gera eitt-
hvað í sínum málum og taldi sig hafa
náð botninum þá.
Davíð ekki einn
Aðspurð segist Helen ekki viss
um hvort hún muni kæra hótanim-
ar sem hún hefur fengið vegna sonar
Hverfisbarinn Dabbi Grensás og tveir
huldumenn þríbrutu fótboltamanninn á
Hverfisbarnum.
síns. Henni þyldr verst að systir hans
fái einnig hótanir, en hún er aðeins
fimmtán ára.
Hún segir alla umræðuna um mál-
ið gríðarlega erfiða fyrir sig. Sjálf eigi
hún engan annan son. Hún segist
elska Davíð þrátt fyrir hans galla. Þá
bendir hún á að það sé ósanngjarnt að
nafngreina hann einan en auk Davíðs
voru tveir aðrir árásarmenn.
Særir gríðarlega
„Þetta særir mig gífurlega," seg-
ir Helen sem er bæði þreytt og reið
vegna málsins. Hún segir Davíð vera
að taka sig saman í andlitínu eftir árás-
ina. Hann muni útvega sér lögffæð-
ing í vikunni. Þá hyggst hann leita sér
meðferðar vegna skapofsans og reið-
innar.
Því skal þó haldið til haga að í fyrr-
greindum sjónvarpsviðtölum lofaði
hann því sama. Davíð hefur auk árás-
arinnar á Hannes verið kærður fyrir að
fótbrjóta mann á klósettinu á Apótek-
inu í miðborg Reykjavíkur eftir jól. Þá
vom árásarmennimi einnig þrír.
Itarlega umfjöllun um ofbeldisferil
Davíðs Smára er að finna á blaðsíðu 6
í DV í dag.
Jólin búin Grafarvogsbúar fögnuðu þrettándanum með brennu og flugeldasýningu í gær. Ljóst var að fólk skemmti sér vel í
rökkrinu enda sungið, dansað og skotið uppflugeldum fram eftir kvöldi. DVmyndStefán
Styrmir Gunnarsson segir eðlilegt að fjölmiðlar borgi miða:
EINHLIÐA ÁKVÖRÐUN GUÐJÓNS
„Það var einhliða ákvörðun Guð-
jóns Pedersen leilchússtjóra að taka
Jón Viðar Jónsson, leiklistargagn-
rýnanda DV af gestalista Borgarleik-
hússins," segir Styrmir Gunnarsson,
stjómarmaður í Leikfélagi Reykjavík-
ur og ritstjóri Morgunblaðsins.
Guðjón tók ákvörðun um þetta
vegna dóma Jóns Viðars um verk
leilchússins að undanförnu. Skrif Jóns
Viðars um „nályktína sem leggur frá
Borgarleilchúsinu" taldi hann móðg-
un við leikhúsið og leikhúsgesti.
Styrmir viJl að öðm leytí ekki tjá
sig um þessa ákvörðun án þess að
hafa rætt hana við Guðjón sjálfan en
bætír við að í 110 ára sögu Leikfélags
Reykjavflcur sé þetta ekki einsdæmi.
„Fyrir um hundrað ámm var manni
bannað að mæta á sýningar Leikfé-
lagsins en það hefur sem betur fer
ekki gerst lengi." Styrmir er á þeirri
skoðun að gestalistar séu úrelt fyrir-
bæri. „Almenn skoðun mín er sú að
mér finnst koma til greina að fjölmiðl-
ar greiði alltaf fýrir fúlltrúa sína á við-
burði, hvort sem um ræðir tónleika,
leflcsýningar eða aðra menningarvið-
burði. Það er orðið úrelt og gamal-
dags að fjölmiðlar þiggi ókeypis miða.
Mér finnst að fjölmiðlar eigi sjálfir að
ákveða hvaða viðburði þeir vflji fjalla
um og greiða þá aðgöngumiðana
sjálfir."
Aðspurður hvernig hann hefði
brugðist við ef lefldistargagnrýnandi
Morgunblaðsins hefði hlotíð sömu
meðferð og Jón Viðar segir Styrmir:
„Það hefur margoft gerst að fulltrú-
ar Morgunblaðisins hafi ekki verið
velkomnir á menningarviðburði. Við
látum það hins vegar ekki á okkur fá
og ákveðum sjálf hvað við skrifum
um.“
Dómur Jóns Viðars um upp-
færslu Jesus Christ Superstar í
Borgarleikhúsinu birtíst á blaðsíðu
24 í DV í dag. tmusti@dv.is
Axlarbrotnaði í
hálkunni
Ökumaður missti stjórn á
bílnum sínum við Einarsnes í
Skerjafirði í Reykjavík á laugar-
daginn. Tvennt var í bílnum og
var farþegi fluttur á slysadeild.
Ekki fengust upplýsingar um al-
varleika meiðslanna en þau eru
ekki talin alvarleg. f Mosfells-
bæ missti ökumaður mótorhjóls
stjórn á því. Hann var á suður-
leið á Vesturlandsvegi og rann
tíl í hálkunni þegar hann ók inn
á hringtorg við Lágafellskirkju.
Hann lá í götunni þjáður og kom
sjúkrabfll sem fluttí hann á slysa-
deild. Þar kom í ljós að hann var
axlarbrotinn. Hjólið er nokkuð
skemmt.
JH-897 stolið
Bfl ungrar konu var stolið fýr-
ir utan Mjóddina á laugardag. Ef
marka má Vísi.is lagði hún bfl sínum
og fór í bankann. Þegar hún kom út
aftur var bfllinn horfinn. f bflnum
voru ýmsir persónulegir munir á
borð við fatnað, barnabflstól, geisla-
diska og húslykla. Konan hefur því
þurft að skipta um lás. Þeir sem hafa
upplýsingar um bflinn eru beðnir að
hafa samband við lögreglu. Bfllinn er
silfurlitaður Volkswagen Golf, árgerð
2005, og ber númerið JH-897.
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/