Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2008, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2008, Page 13
g get ekki bent nákvæm- lega á hvað heillar en það er eitthvað mjög prímitívt við þetta sport," segir Freyr Ingi Bjömsson, formað- ur Islenska alpaklúbbsins. Hann segir að í klifrinu felist ákveðin ögrun. „Það er náttúrulega mjög apa- legt að klifra upp frosna fossa en á sama tíma ögrar þú sjálfum þér og nánasta umhverfi. Þessar axir og mannbrodd- ar gera líka eitthvað fyrir egóið sem ég get ekki útskýrt," segir hann glaður í bragði. Freyr segir ísklifur aftur á uppleið eftir nokkur stöðug ár. „Það varð mikil aukning í þessu sporti árin 1995 til 98 en síðan þá hefur fjöldi þeirra sem iðka þetta sport staðið í stað. Ég veit ekki hvað veldur en það virðist vera upp- sveifla aftur núna," segir hann. Árshátíð fram undan Dagana 22. til 24. febrúar verður nokkurs konar árshátíð ísklifursmanna haldin. „Við sem stundum þetta sport höfum það að reglu að hittast einu sinni á ári og klifra saman. Þetta er eins konar ísfestíval. Vegna þess hve fámenn við emm sem stundum þessa íþrótt er það yfirleitt þannig að menn klifra einir. Þess vegna er sérstaklega gaman þegar allur hópurinn hittist og kliffar. Þetta höfum við gert í tíu ár en í fyrra fómm við í Köldukinn í Skjálfandaflóa. Mætingin var alveg frábær en til okkar komu nokkrir af fremstu ísklifrurum í heiminum," segir Freyr sem telur að heimsókn þeirra eigi stóran þátt í vaxandi áhuga á ísklifri. „Festivalið í ár verður haldið í Bemfirði á Austfjörðum," segir hann. Um hundrað ísklifrarar á landinu ísklifur er fremur fámennt sport á íslandi enn sem komið er. Landið þyk- ir þó gott til klifurs. „Klifrararnir sem komu hingað í fyrra sögðu að ísland væri sannkölluð paradís ísklifrara. Þeir vom heillaðir af því sem náttúran hafði upp á að bjóða," segir hann en heldur áffarn. „Erlendis em menn vanir því að þurfa að slást um svæði tíl að klifra á, en hér má auðveldlega finna fyrsta flokks ósnortin svæði til kliffa á." íslenski alpaklúbburinn stend- ur reglulega fýrir námskeiðum fyr- ir byrjendur í ískliffi. „Við vorum með tvö námskeið í janúar; byijendanám- skeið og svo ffamhaldsnámskeið. Það er æskilegt að hafa lokið þeim nám- skeiðum áður en þú ferð að kliffa á eigin ábyrgð," segir Freyr en bætir við. „Við höfum líka verið með hugmyndir um að lýsa upp einn fossinn í nágrenni Reykjavíkur og halda þar kvöldklifur. Þá gætu bæði byrjendur og vanir hist og átt skemmtilega stund saman," segir Freyr að lokum en virkir kliffarar á Is- landi em um hundrað talsins. L\ i ‘11 Freyr Ingi Björnsson, formaður íslenska alpaklúbbsins, segir vinsældir ísklifurs aukast. ISKLIFRARA www. visitakureyri.is - ■ www.akureyri.is m Akureyri www. visitakureyri.is o Hafnarstræti 82 • 600 Akureyri • Sími 550 0720 UÓSMYNDARI: GUÐLAUGUR INGI GUÐLAUGSSON KLIFRARI: BJÖRGVIN HILMARSSON

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.